Ranveig Karlsen skrifaði:
1234
15.04.2026 - 19:22
Alma skrifaði:
Buonasera non riesco a comprendere se dove leggo per il raglan lavorate i gettati a dritto per creare i buchi successivamente sotto dice dopo i segnapunti lavorate a dritto ritorto per evitare i buchi non capisco grazie
06.04.2026 - 18:27DROPS Design svaraði:
Buonasera Alma, i due suggerimenti si applicano in punti diversi del lavoro. Buon lavoro!
15.04.2026 - 22:38
Ana skrifaði:
Czy jest to wzor dobry dla poczatkujacych ?
03.04.2026 - 10:44DROPS Design svaraði:
Witaj Ano, jak najbardziej. Konstrukcja jest wyjaśniona na filmie TUTAJ. Różnice tkwią w szczegółach, dlatego trzymaj się wzoru podczas przerabiania topu. W razie jakichkolwiek pytań pisz śmiało. Pozdrawiamy!
03.04.2026 - 12:36
Grey Orchid Top#greyorchidtop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, stuttum ermum og garðaprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-24 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt – svo það myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Á fram- og bakstykki er aukið út hvoru megin við merkiþráðinn fyrir miðju undir hvorri ermi þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkju (merkiþráðurinn situr í miðju á þessum 8 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjón með því stinga vinstri prjóni inn aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-116-120-124-132-136-144 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Safran. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan (= 4 umferðir). Byrjun umferðar er við miðju að aftan. Setjið 1 merki í stykkið í byrjun umferðar (= miðja að aftan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 17-18-19-20-22-24-26 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 19-19-19-19-19-17-17 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 34-37-39-41-45-49-53 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 19-19-19-19-19-17-17 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 17-19-20-21-23-25-27 lykkjur á eftir síðasta merki (= hálft bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 27-28-31-34-37-40-43 sinnum = 326-340-368-396-428-456-488 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Haldið áfram í sléttprjóni eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 18-19-20-22-24-25-27 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Samtímis sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið í fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 45-47-51-55-60-66-72 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 73-75-81-87-93-95-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 90-95-103-111-121-133-145 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 73-75-81-87-93-95-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 45-48-52-56-61-67-73 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 196-210-230-250-274-302-330 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 8-10-12-14-16-18-20 lykkjurnar sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið fram að fyrsta merkiþræði, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingunni, aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 3. cm millibili alls 6-7-7-7-7-7-7 sinnum = 220-238-258-278-302-330-358 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52-54 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Prjónið 2 umferðir garðaprjón hringinn (= 4 umferðir). Fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist 43-45-47-49-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 47-49-51-53-55-57-59 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 73-75-81-87-93-95-99 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 81-85-93-101-109-113-119 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið 1 cm sléttprjón jafnframt sem fækkað er um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi í næstu umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 79-83-91-99-107-111-117 lykkjur. Prjónið 2 lykkjur garðaprjón hringinn (= 4 umferðir). Fellið aðeins laust af. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greyorchidtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.