Chloé skrifaði:
Guten Tag, vielen Dank für die Anleitung ! Ich verstehe nur nicht weshalb man den Faden der linken Schulter des Vorderteiles nicht abschneiden darf. Wann braucht man ihn dann wieder ?
14.04.2026 - 14:41DROPS Design svaraði:
Liebe Chloé, wenn die linke Schulter des Vorderteiles fertig ist, muss man die rechte Schulter des Vorderteiles stricken, so braucht man den Faden am Ende der linken Schulter nicht mehr. Wenn die rechte Schulter fertig ist, wird man die neuen Maschen für den Halsausschnitt anschlagen und dann die Maschen der linken Schulter stricken = so hat man alle Maschen für Vorderteil. Viel Spaß beim Stricken!
14.04.2026 - 15:41
Lisa skrifaði:
Hallo, wird das Muster jetzt nach den Abnahmen oder den Zunahmen an der Seite in glatten Maschen Weitergeführt? Es steht "Wenn die letzte Zunahme an der Seite...." aber stimmt das auch, dann würde ja das Muster über das gesamte Vorderteil gehen? Vielen Dank schon mal für eine Antwort.
13.04.2026 - 16:08DROPS Design svaraði:
Liebe Lisa, hier wird sicher die Abnahmen gemeint - eine Korrektur erfolgt sicher in den nächsen Zeiten. Danke im voraus für den Hinweis. Viel Spaß beim Stricken!
13.04.2026 - 16:30
Mary skrifaði:
Bonjour, pourriez vous m'expliquer le symbole au milieu de la grille A5 svp ? Je ne le vois pas dans la légende... D'avance, merci beaucoup pour votre réponse Je vous souhaite une bonne journée
12.04.2026 - 04:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie, au 5ème rang de A.5 on tricote à l'endroit - si vous pensez au 7ème rang (à partir du bas), vous allez tricoter (2 m ens à l'end, 1 jeté) - ce symbole va être ajouté aussitôt que possible, merci pour votre retour. Bonne continuation!
13.04.2026 - 09:46
Mònica skrifaði:
¿Por qué este jersey está clasificado como "ganchillo", cuándo casi la totalidad está realizada en punto de media?
17.03.2026 - 12:39DROPS Design svaraði:
Hola Monica, tienes razon. Vamos a cambiar. Saludos!
14.04.2026 - 09:35
Crina skrifaði:
Hi, for the crocheted edge the instructions specify diagram A.10a and A.10b which I don't see. There are only diagrams up to A.6 so could you please help? THX
10.03.2026 - 20:40DROPS Design svaraði:
Hi Crina, The crocheted edges are worked according to A.6a and A.6b (not A.10a and A.10b) which are just above the size chart. Regards, Drops Team.
11.03.2026 - 06:50
Josefin skrifaði:
Den är felmärkt som virkning i listan innan man trycker in sig på mönstret
10.03.2026 - 19:16
Strawberry Pie Tee#strawberrypiesweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri á framstykki, A.-form og hekluðum kanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-36 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað/heklað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. Mynsturteikning A.6 = heklaður kantur neðst í kringum ermar. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Aukið út hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur fyrir miðju í þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið - til að koma í veg fyrir göt. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Bakstykkið og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig niður að handvegi, prjónað er ofan frá og niður. Síðan eru stykkin sett saman og fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli prjónaður. Í lokin er heklaður kantur neðst í kringum báðar ermar. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: HÆGRI ÖXL: Prjónið fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 25-29-32-34-34-36-39 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Flora. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 lykkju GARÐAPRJÓN í hvorri hlið - sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 2 cm - stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Fitjið nú upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið brugðið út umferðina, fitjið upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið brugðið út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmál í lok umferðar. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið brugðið út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar = 29-33-36-38-38-40-43 lykkjur. Leggið stykkið til hliðar og prjónið vinstri öxl. BAKSTYKKI: VINSTRI ÖXL: Prjónið fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 25-29-32-34-34-36-39 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Flora. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 lykkju í garðaprjón í hvorri hlið. Prjónið þar til stykkið mælist 2 cm - stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu. Fitjið nú upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið slétt út umferðina, fitjið upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið slétt út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmál í lok umferðar. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju garðaprjón. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið slétt út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar = 29-33-36-38-38-40-43 lykkjur. Leggið stykkið til hliðar og prjónið vinstri öxl. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Setjið síðan axlirnar saman fyrir bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI (vinstri og hægri öxl saman): Prjónið fyrstu umferðina frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 29-33-36-38-38-40-43 lykkjur frá vinstri öxl, fitjið upp 38-38-38-38-44-44-44 lykkjur fyrir hálsmál í lok þessarar umferðar, prjónið eins og áður yfir 29-33-36-38-38-40-43 lykkjur frá hægri öxl = 96-104-110-114-120-124-130 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 17-18-18-17-17-16-15 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Munið að fylgja prjónfestunni. Aukið nú út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-2-3-7-8-12-15 sinnum (= 2-4-6-14-16-24-30 umferðir prjónaðar) = 98-108-116-128-136-148-160 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn. Prjónið nú framstykkið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 25-29-32-34-34-36-39 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Flora. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið A.1, 17-21-24-26-26-28-31 lykkjur slétt, 1 lykkja garðaprjón. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 lykkja garðaprjón, 17-21-24-26-26-28-31 lykkjur brugðið, A.1 (mynstrið er lesið frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu). Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Jafnframt, í lok umferðar merktrar með ör í A.1, byrjar útaukningin fyrir hálsmáli og nýjar lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4 sinnum, 2 lykkjur 4 sinnum og 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2-2 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstrið eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Prjónið þar til 1 umferð er eftir í A.1 = 40-44-47-49-52-54-57 lykkjur. Síðasta umferðin sem er prjónuð er frá röngu, klippið þráðinn frá. FRAMSTYKKI: HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 25-29-32-34-34-36-39 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Flora. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, 17-21-24-26-26-28-31 lykkjur slétt, prjónið A.2. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Prjónið A.2 (mynsturteikningin er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu), 17-21-24-26-26-28-31 lykkjur brugðið, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. JAFNFRAMT í lok umferðar merktrar með ör í A.2 byrjar útaukningin fyrir hálsmáli og nýjar lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 4 sinnum, 2 lykkjur 4 sinnum og 3 lykkjur 1-1-1-1-2-2-2 sinnum – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstrið eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Prjónið þar til 1 umferð er eftir í A.2 = 40-44-47-49-52-54-57 lykkjur. Síðasta umferðin sem er prjónuð er frá röngu, ekki klippa þráðinn. Nú eru hægri og vinstri öxl settar saman til að mynda framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægri og vinstri öxl saman): Prjónið fyrstu umferðina frá réttu þannig: Prjónið eins og áður yfir 40-44-47-49-52-54-57 lykkjurnar frá hægri öxl (nú er síðasta umferðin í A.2 prjónuð), fitjið upp 24-24-24-24-26-26-26 lykkjur fyrir hálsmál í lok þessarar umferðar, prjónið eins og áður yfir 40-44-47-49-52-54-57 lykkjur frá vinstri öxl (nú er síðasta umferðin í A.1 prjónuð) = 104-112-118-122-130-134-140 lykkjur í umferð. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, prjónið 17-21-24-26-26-28-31 lykkjur brugðið, A.3c (mynsturteikningin er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu), prjónið A.3b þar til 21-25-28-30-30-32-35 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3a, prjónið 17-21-24-26-26-28-31 lykkjur brugðið og 1 lykkja garðaprjón. Frá réttu er prjónað þannig: 1 lykkja garðaprjón, 17-21-24-26-26-28-31 lykkjur slétt, A.3a, prjónið A.3b þar til 23-27-30-32-32-34-37 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3c, 17-21-24-26-26-28-31 lykkjur slétt og 1 lykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 17-18-18-17-17-16-15 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-2-3-7-8-12-15 sinnum (= 2-4-6-14-16-24-30 umferðir prjónaðar) = 106-116-124-136-146-158-170 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23-24 cm frá uppfitjunarkanti á öxl, endið með umferð frá röngu. Setjið nú framstykkið og bakstykkið saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið eins og áður yfir 106-116-124-136-146-158-170 lykkjur af framstykki, fitjið upp 6-6-8-8-12-16-20 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hliðinni fyrir miðju undir ermi), prjónið sléttprjón yfir 98-108-116-128-136-148-160 lykkjur af bakstykki og fitjið upp 6-6-8-8-12-16-20 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hliðinni fyrir miðju undir ermi) = 216-236-256-280-306-338-370 lykkjur í umferð. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-8-12-16-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar lykkjum er fækkað og aukið út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið síðan eins og áður með A.3 á framstykki og sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm frá þar sem stykkin voru sett saman, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið svona með 2-2½-2½-3-3-3½-3½ cm millibili alls 4 sinnum = 200-220-240-264-290-322-354 lykkjur. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú verður síðasti hluti mynsturs á framstykki prjónaður og aukið verður í hvorri hlið á fram og bakstykki fyrir A-laga form. Lesið báða kaflana hér að neðan áður en prjónað er áfram. MYNSTUR: Eftir að síðasta útaukningin á hliðum er lokið og 5. umferð í mynsturteikningu hefur verið prjónuð, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið eins og áður fram að A.3a, prjónið A.4a, prjónið A.4b yfir næstu 60-60-60-60-68-68-68 lykkjur, prjónið A.4c, prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið síðan sléttprjón í hring yfir allar lykkjur. ÚTAUKNING: Þegar stykkið mælist 31-33-35-37-39-41-43 cm frá uppfitjunarkanti á öxl (stykkið mælist ca 13-14-15-16-17-18-19 cm frá þar sem stykkin voru sett saman), aukið út 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina - sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 17 sinnum = 268-288-308-332-358-390-422 lykkjur. Stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61-63 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. Haldið e.t.v. áfram að auka út að óskuðu máli. Prjónið síðan kantinn eins og útskýrt er að neðan. KANTUR: Skipið yfir í hringprjóna 2,5 og prjónið A.5 í kringum fram- og bakstykki. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka, skiptið yfir í hringprjóna 3 áður en fellt er af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá uppfitjunarkanti á öxl. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handvegi og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveginn = axlasaumur. Notið hringprjón 3 og prjónið upp lykkjur aðeins fast (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið mitt á milli nýjar lykkjur sem voru fitjaðar upp undir erminni - prjónið upp 82-88-94-102-110-116-124 lykkjur - stillið af að jafnmargar lykkjur séu prjónaðar upp hvoru megin við merkið. ERMAKÚPA: Nú er prjónað sléttprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpu, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 13-13-14-14-14-12-10 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu við – sjá LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 13-13-14-14-14-12-10 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við síðast, snúið stykkinu við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við síðast, snúið stykkinu við. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 4-4-4-4-5-1-1 sinnum (= 8-8-8-8-10-2-2 umferðir prjónaðar). Síðan er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við síðast, snúið stykkinu við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við síðast, snúið stykkinu við. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 5-5-7-7-7-15-18 sinnum (= 10-10-14-14-14-30-36 umferðir prjónaðar). Snúið hefur verið við alls 20-20-24-24-26-34-40 sinnum (= 10-10-12-12-13-17-20 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu). Ermin mælist ca 6-6-7-7-8-10-12 cm frá merki mitt efst á öxl. Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem snúið var við og prjónað er frá röngu, endið umferðina með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (= miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, merkiþráðurinn er notaður þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. ERMIN ÁFRAM NIÐUR: Nú er prjónað sléttprjón í hring yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-2-2-1-1 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur 2-2-2-2-1-1-0 sinnum á 3 cm millibili = 74-80-86-94-104-112-122 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 21 cm frá merki efst fyrir miðju á öxl í öllum stærðum. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN í hring – sjá útskýringu að ofan. Skipið yfir á sokkaprjóna 3 og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Ermin mælist um það bil 23 cm frá merki efst fyrir miðju á miðju öxl í öllum stærðum. HÁLSMÁL: Notið hringprjón 2,5, byrjið frá réttu við annan axlarsauminn og prjónið upp ca 126-126-126-126-142-142-142 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju – fjöldi lykkja á að vera deilanlegur með 2. Byrjið á 2. umferð í A.5 og prjónið A.5 í kringum hálsmálið. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir í hringprjón 3 áður en fellt er af með sléttum lykkjum frá réttu. HEKLAÐUR KANTUR Á ERMUM: Notið heklunál 3, byrjið frá réttu fyrir miðju undir ermi og heklið mynstur A.10a í fyrstu lykkjuna, heklið síðan A.10b í kringum ermina, endið eftir eina heila mynstureiningu fyrir miðju undir erminni. Klippið og festið þráðinn. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #strawberrypiesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 57 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.