Le Nevez skrifaði:
Bonjour j\'aimerais les explications pour tricoter avec des aiguilles droites ;,svp. Bien me convertir les explications pas juste me dire de diviser le nombres de mailles Merci pour votre réponse
31.03.2026 - 17:15
Le Nevez skrifaði:
Bonjour j\'aimerais les explications pour tricoter avec des aiguilles droites ;,svp. Bien me convertir les explications pas juste me dire de diviser le nombres de mailles Merci pour votre réponse
31.03.2026 - 17:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Le Nevez, je suis désolée, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, vous trouverez ici la technique pour les adapter à des aiguilles droites, mais vous devrez le faire seule et/ou vous faire aider par votre magasin et/ou un forum de tricot par ex. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!
07.04.2026 - 15:33
India skrifaði:
Welche Größe trägt das Model auf dem Bild, ich würde das Shirt gerne etwas größer machen, dementsprechend würde ich mir die Größe aussuchen.
14.03.2026 - 12:31DROPS Design svaraði:
Hallo India, die Models in unseren Bildern tragen normalerweise Größe S oder M, da wir jedoch alle unterschiedlich gebaut sind, empfehlen wir, die Größe anhand der Maßtabelle am Ende der Anleitung auszuwählen. Am besten ermitteln Sie die richtige Größe, indem Sie einen gut sitzenden Lieblingspullover ausmessen und die Maße mit der Maßskizze in der Anleitung vergleichen. Viel Spaß beim Stricken!
14.03.2026 - 14:27
Vansteenkiste Monique skrifaði:
Dank u wel
09.03.2026 - 15:32
Vansteenkiste Monique skrifaði:
Tussen de meerderingen de markering steek breien of doe ik de meerderingen naast die steek
07.03.2026 - 14:38DROPS Design svaraði:
Dag Monique,
Je plaatst de markeerdraden tussen 2 rechte steken en je meerdert steeds aan beide kanten van die 2 steken, zodat de raglanlijnen 2 rechte steken zijn.
09.03.2026 - 14:14
Golden Mist Tee#goldenmisttee |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og stuttum ermum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-36 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJUM (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJUM (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjum er aukið út jafnt yfir í skiptingunni yfir í stroff, er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar eru síðar prjónaðar brugðið, sléttprjóns lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-128-128-136-144-144-152 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Flora. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 2-2-2½-2½-3-3-3 cm. Prjónið 1 lykkju slétt, þannig að umferðin byrjar á milli 2 lykkja slétt. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 40-42-42-44-46-46-48 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 3. Nú eru settir 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja og þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki á undan fyrstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 40-44-44-48-52-52-56 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, það eru 40-44-44-48-52-52-56 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út. Munið að fylgja prjónfestunni. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið út hvoru megin við laskalykkjurnar alls 27-30-34-36-38-38-39 sinnum = 336-368-400-424-448-448-464 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út eftir fyrstu lykkju og í lok umferðar er aukið út á undan síðustu lykkju. Útaukningu fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 6-5-4-6-5-10-12 sinnum til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) = 360-388-416-448-468-488-512 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án útaukningar þar til stykkið mælist 20-21-23-25-26-28-30 cm frá merki við miðju að framan. Skiptið nú berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 74-80-88-92-96-96-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-20-24-28 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 106-114-120-132-138-148-158 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 74-80-88-92-96-96-98 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-20-24-28 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 106-114-120-132-138-148-158 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 228-248-264-292-316-344-372 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48-50 cm frá merki við miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 56-60-64-68-76-80-88 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 284-308-328-360-392-424-460 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 41-43-45-47-49-51-53 cm frá merki við miðju að framan og ca 45-47-49-51-53-55-57 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 74-80-88-92-96-96-98 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-20-24-28 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 82-90-100-106-116-120-126 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-20-24-28 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 3-2½-1½-1½-1½-3-4 cm millibili, alls 5-6-7-6-6-3-2 sinnum = 72-78-86-94-104-114-122 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 15-14-13-11-10-9-8 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 16-18-18-22-24-26-26 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 88-96-104-116-128-140-148 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 18-17-16-14-13-12-11 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goldenmisttee eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.