Christiane skrifaði:
Petite erreur sur le nombre de mailles à relever sur les épaule Droite et Gauche en Taille L. On relève 18 m + 1 m et non 28 comme c'est noté. Cordialement.
11.03.2026 - 11:58DROPS Design svaraði:
Bonjour Christiane et merci pour votre retour, correction faite. Bonne continuation!
11.03.2026 - 15:58
Ksu skrifaði:
Why do you add one stitch (like an edge stitch) to the shoulder in some models, but not in others? They're all the same European shoulder.
03.03.2026 - 19:20DROPS Design svaraði:
Dear Ksu, we add 1 edge stitch for European yoke as we will then pick up stitches for sleeves inside this stitch (along front pieces), when working European shoulders, this is just not worked. Happy knititng!
04.03.2026 - 07:44
Christiane skrifaði:
Re bonjour, Désolée, mais j'ai mal compris les instructions. En visionnant la vidéo, il faut effectivement relever les mailles. Toutes mes excuses. Cordialement, Christiane
01.03.2026 - 20:14
Christiane skrifaði:
Bonjour, N'y aurait-il pas une erreur dans les explications du Rang 1 du Devant ? Vous notez : "Tricoter à l'endroit jusqu'aux 2 premières mailles du devant (on a diminué 1 maille)" , vous ne précisez pas à quel endroit on doit faire la diminution, ni comment (2 m ens, je suppose ?) Ensuite, les instructions disent de relever des mailles pour la/les manche(s), or ces mailles sont déjà sur les aiguilles ? (m en attente), ou bien ? D'avance merci pour votre réponse
01.03.2026 - 18:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Christiane, vous avez raison, merci, il faut effectivement tricoter les 2 premières mailles du devant ensemble à l'endroit, correction faite. Merci! Les mailles des manches sont relevées le long du côté des devants - retrouvez ici, en vidéo comment on relève les mailles des manches. Bon tricot!
02.03.2026 - 10:39
Shy Daffodil Sweater#shydaffodilsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki og litnum köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-29 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eins og útskýrt er í A.1. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni síðan eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan = framstykkin eru sett saman í eitt stykki. Framstykkið er síðan prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu og framstykkið prjónað = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Samtímis sem berustykkið er prjónað, eru lykkjur auknar út fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar og síðan er aukið út bæði fyrir fram- og bakstykki og ermar. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 32-30-32-34-32-34-36 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Big Merino. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 2 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 8-9-9-9-10-10-10 sinnum (= 16-18-18-18-20-20-20 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 64-66-68-70-72-74-76 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxl bakstykkisins þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar á þræði/hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna (= 16-18-18-18-20-20-20 lykkjur), endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja) = 17-19-19-19-21-21-21 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-6-6-7-7-8-9 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 23-25-25-25-27-27-27 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 10-11-11-12-12-13-14 cm frá merki. Ca 2-2-2-3-2-3-3 cm af dýpt af hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið. Setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri öxl prjónuð meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Finnið hægri öxlina á bakstykkinu þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar á þræði/hjálparprjóni snúi að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja9, síðan er prjónuð upp 1 lykkja í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 16-18-18-18-20-20-20 lykkjur) = 17-19-19-19-21-21-21 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-6-6-7-7-8-9 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 23-25-25-25-27-27-27 lykkjur. FRAMSTYKKI: Í næstu umferð (= rétta) eru axlirnar settar saman fyrir framstykki: Prjónið slétt yfir 23-25-25-25-27-27-27 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 18-16-18-20-18-20-22 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið slétt yfir 23-25-25-25-27-27-27 lykkjur frá vinstri öxl = 64-66-68-70-72-74-76 lykkjur. Prjónið sléttprjón, fram og til baka yfir framstykki þar til stykkið mælist 11-12-12-13-13-14-15 cm frá merki – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Setjið síðan framstykkið og bakstykkið saman og prjónið upp lykkjur fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1: Prjónið fyrstu 2 lykkjur frá framstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), og setjið 1 merki í fyrstu lykkju á framstykki, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki í síðustu lykkju á framstykki, prjónið upp 18-20-20-22-22-24-26 lykkjur meðfram hlið frá vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri) og setjið 1 merki í fyrstu lykkju á bakstykki, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki í síðustu lykkju á bakstykki, prjónið upp 18-20-20-22-22-24-26 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna) = 160-168-172-180-184-192-200 lykkjur. BERUSTYKKI: Nú er stykkið prjónað í hring jafnframt því sem aukið er út fyrir ermar. UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvora ermi – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og aukið út lykkjur innan við lykkjur með merki – aukið út 1 lykkju til vinstri í byrjun á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri í lok á ermi, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður sá sami. Prjónið þessa umferð alls 3-3-3-3-3-3-1 sinnum (= 24-26-26-28-28-30-28 lykkjur á hvorri ermi og 62-64-66-68-70-72-74 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 172-180-184-192-196-204-204 lykkjur. Síðan er einungis aukið út í annarri hverri umferð þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju hvoru megin við hvora ermi eins og áður – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður sá sami. UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 4-4-3-2-2-1-1 sinnum (= 8-8-6-4-4-2-2 umferðir prjónaðar. Aukið hefur verið út alls 7-7-6-5-5-4-2 sinnum á ermum = 32-34-32-32-32-32-30 lykkjur á hvorri ermi og 62-64-66-68-70-72-74 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 188-196-196-200-204-208-208 lykkjur. Aukið síðan út á báðum ermum og á fram- og bakstykki samkvæmt mynsturteikningu, aukið út hvoru megin við lykkjuna með merki þannig að það verði 1 lykkja á milli útaukningar á fram- og bakstykki og ermum - til að gera kaðalinn samhverfan, byrjið umferðina þegar 2 lykkjur eru eftir á undan lykkjunni með merki - prjónið næstu umferð þannig: UMFERÐ 1: Byrjið umferðina þegar 2 lykkjur eru eftir á ermi (= 2 lykkjur á undan lykkju með merki), prjónið A.1, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á framstykki (= 2 lykkjur á undan lykkju með merki), prjónið A.1, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á ermi (= 2 lykkjur á undan lykkju með merki), prjónið A.1, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á bakstykki (= 2 lykkjur á undan lykkju með merki), prjónið A.1, prjónið slétt út umferðina (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án þess að auka út. UMFERÐ 3: Byrjið umferðina þegar 3 lykkjur eru eftir á ermi (= 3 lykkjur á undan lykkju með merki), prjónið A.1, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir á framstykki (= 3 lykkjur á undan lykkju með merki), prjónið A.1, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir á ermi (= 3 lykkjur á undan lykkju með merki), prjónið A.1, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir á bakstykki (= 3 lykkjur á undan lykkju með merki), prjónið A.1, prjónið slétt út umferðina (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið allar lykkjur slétt án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 4-5-6-7-8-9-10 sinnum (= 16-20-24-28-32-36-40 umferðir prjónaðar – þ.e.a.s. A.1 er prjónað alls 4-5-6-7-8-9-10 sinnum á hæðina. Það hefur verið aukið út alls 15-17-18-19-21-22-22 sinnum á ermum og 8-10-12-14-16-18-20 sinnum á fram- og bakstykki = 48-54-56-60-64-68-70 lykkjur á hvorri ermi og 78-84-90-96-102-108-114 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 252-276-292-312-332-352-368 lykkjur. Ermin mælist ca 12-14-15-16-18-19-20 cm - þegar peysan er brotin tvöföld við öxlina á stykkið að mælast ca 18-20-21-23-25-26-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist minna en þetta, haldið þá áfram að prjóna að tilgreindu máli án útaukningar. Skiptið nú berstykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptið berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Prjónið fram að fyrstu lykkju með merki og prjóni þannig: Prjónið fyrstu 78-84-90-96-102-108-114 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 48-54-56-60-64-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 78-84-90-96-102-108-114 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 48-54-56-60-64-68-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-180-196-208-224-240-256 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 44-46-48-49-51-52-54 lykkjur frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan,. Skipið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 38-42-48-48-54-58-60 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 206-222-244-256-278-298-316 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 48-50-52-53-56-57-59 cm frá miðju að aftan og 50-52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 48-54-56-60-64-68-70 lykkjur af erminni frá þræði á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni – sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 54-60-64-68-74-80-84 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur undir erminni – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón í hring - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 3-5-6-8-10-12-13 með 10-8-6-4½-3-2½-2 cm millibili = 48-50-52-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-37-37-36-34-33-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-10-12-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 58-60-64-64-66-68-70 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-41-41-40-39-38-37 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3, byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 92-88-94-100-98-102-108 lykkjur innan við 1 lykkju, prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn e.t.v. er jafnaður út – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3½-3½-3½-4-4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #shydaffodilsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 48 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.