Rauni Ja skrifaði:
Hei. En ymmärtänyt takakappaleen alussa tehtäviä lisäyksiä molemmissa reunoissa 12 kertaa ja 24 kerrosta, niin pitäisi tulla 72 silmukkaa. Minulle ei aukea. Jos saatte tästä kiinni, niin kiitän kovasti.
19.03.2026 - 14:00DROPS Design svaraði:
Hei, kumpaankin reunaan lisätään 1 silmukka yhteensä 24 kertaa, eli työhön lisätään näiden 24 kerroksen aikana yhteensä 48 silmukkaa ja tämän jälkeen työssä on 72 silmukkaa (24 + 48 silmukkaa).
20.03.2026 - 17:44
Irene Lai skrifaði:
Does the pattern comes in tradition instruction like from bottom up, I print and read the instruction, I found that its a bit confusing especially for average knitter. For top down raglan sweaters, its pretty easy to follow, but for others, I found that the instruction is a bit hard to follow.
25.02.2026 - 16:57DROPS Design svaraði:
Hi Irene, This particular pattern is top down. You can search for bottom up patterns using our search symbol top right (magnifying glass). Regards, Drops Team.
26.02.2026 - 06:13
Knotted Vine Sweater#knottedvinesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð stór / oversize peysa DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, köðlum og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-23 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Prjónið 5-5-5-5-5-7-7 kaðla á framstykki og sléttprjón á bakstykki. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið mynstur samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki eru sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 24-26-26-28-28-30-30 lykkjur á hringprjón 6 með DROPS Melody. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 OG prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, 3 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 12-12-13-14-15-17-19 sinnum (= 24-24-26-28-30-34-38 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru 72-74-78-84-88-98-106 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Stykkið er síðan mælt héðan! Prjónið síðan sléttprjón - Munið að fylgja prjónfestunni - þar til stykkið mælist 10-10-9-10-8-11-11 cm mælt frá merki yst á hliðinni meðfram handveg. Aukið nú út í hvorri hlið fyrir handveg (ATH: það eru engar útaukningar fyrir handveg í stærð XS). ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 0-1-2-2-3-1-1 sinnum (= 0-2-4-4-6-2-2 umferðir prjónaðar) = 72-76-82-88-94-100-108 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 10-11-11-12-12-12-12 cm, mælt frá merki yst meðfram handveg, endið með umferð frá röngu. Klippið frá, setjið lykkjurnar á þráð eða hjálparprjón, prjónið nú vinstra framstykki meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxlina á bakstykkinu þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar frá þræði/hjálparprjóni snúi að ykkur, vinstri hlið stykkisins = vinstri öxl. Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmálið og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 24-24-26-28-30-34-38 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykkinu eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið fyrstu umferðina frá röngu þannig: Prjónið brugðið jafnframt því sem aukið er út um 5-5-5-5-5-10-10 lykkjur jafnt yfir með uppslætti = 29-29-31-33-35-44-48 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat samtímis sem prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-5-5-4-4-3-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 21-21-21-21-39-39 lykkjur), prjónið 2-3-5-8-10-2-6 lykkjur sléttprjón. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til framstykkið mælist 3-4-5-6-7-8-9 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – prjónið síðustu umferðina frá röngu og takið eftir hvaða umferð var síðasta umferðin sem var prjónuð í A.1 svo að útaukning fyrir hálsmáli á hægra framstykki geti byrjað í sömu umferð. Prjónið síðan á meðan aukið er út að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6-5-5-4-4-3-3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 21-21-21-21-21-39-39 lykkjur), prjónið 2-3-5-8-10-2-6 lykkjur sléttprjón. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7-6-6-5-5-4-4 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 21-21-21-21-21-39-39 lykkjur), prjónið 2-3-5-8-10-2-6 lykkjur sléttprjón. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 9-8-8-7-7-6-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 21-21-21-21-39-39 lykkjur), prjónið 2-3-5-8-10-2-6 lykkjur sléttprjón. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið 12-11-11-10-10-9-9 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 21-21-21-21-21-39-39 lykkjur), prjónið 2-3-5-8-10-2-6 lykkjur sléttprjón. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar. = 38-38-40-42-44-53-57 lykkjur. Klippið frá, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið nú hægra framstykki meðfram hægri öxl eins og útskýrt er hér að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxlina og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið 1 lykkju slétt í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 24-24-26-28-30-34-38 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið fyrstu umferðina frá röngu þannig: Fyrstu umferðina er prjónað slétt frá röngu þannig: Prjónið brugðið jafnframt því sem aukið er út um 5-5-5-5-5-10-10 lykkjur jafnt yfir með uppslætti = 29-29-31-33-35-44-48 lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat jafnframt því sem prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2-3-5-8-10-2-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 21-21-21-21-21-39-39 lykkjur), prjónið 6-5-5-4-4-3-3 lykkjur sléttprjón. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til framstykkið mælist 3-4-5-6-7-8-9 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu, passið að mynstrið hafi verið prjónað jafn langt í A.1 áður en aukið er út fyrir hálsmáli á vinstra framstykki. Prjónið síðan þannig á meðan aukið er út að hálsmáli: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2-3-5-8-10-2-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 21-21-21-21-21-39-39 lykkjur), prjónið 6-5-5-4-4-3-3 lykkjur sléttprjón, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju brugðið, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2-3-5-8-10-2-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 21-21-21-21-21-39-39 lykkjur), prjónið 7-6-6-5-5-4-4 lykkjur sléttprjón, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 4 (= ranga): 2 lykkjur brugðið, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 2-3-5-8-10-2-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 21-21-21-21-21-39-39 lykkjur), prjónið 9-8-8-7-7-6-6 lykkjur sléttprjón, fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 6 (= ranga): 3 lykkjur brugðið, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið 2-3-5-8-10-2-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 21-21-21-21-21-21-39-39 lykkjur), prjónið 12-11-11-10-10-9-9 lykkjur sléttprjón, fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur = 38-38-40-42-44-53-57 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er hér að neðan. FRAMSTYKKI (hægri og vinstri hluti saman): Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 38-38-40-42-44-53-57 lykkjur af hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 21-23-23-25-25-27-27 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 38-38-40-42-44-53-57 lykkjur af vinstra framstykki eins og áður = 97-99-103-109-113-133-141 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð frá röngu eins og áður – nýju lykkjurnar eru prjónaðar brugðið. Prjónið síðan þannig: Prjónið 2-3-5-8-10-2-6 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 (= 21-21-21-21-21-39-39 lykkjur), prjónið A.3 (= 51 lykkja), prjónið A.1 (= 21-21-21-21-21-39-39 lykkjur), prjónið 2-3-5-8-10-2-6 lykkjur sléttprjón. Byrjið mynstrið í A.3 í sömu umferð og í A.1/A.2 (þ.e. athugið hvaða umferð af A.1/A.2 þið eruð komin að og byrjið á sömu umferð í A.3, þannig að það sé snúið í kaðli á sama tíma í öðrum hverjum kaðli – fyrsta umferðin í A.1 samsvarar umferð 1 í A.3). Frá röngu er alltaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið mynstur og sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 28-28-29-30-30-35-37 cm. Aukið nú út í hvorri hlið fyrir handveg (ATH: ekki er aukið út fyrir handveg í stærð XS). ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 0-1-2-2-3-1-1 sinnum (= 0-2-4-4-6-2-2 umferðir prjónaðar) = 97-101-107-113-119-135-143 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 28-29-31-32-34-36-38 cm, endið með umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sameinuð til að mynda fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Framstykkið er lengra en bakstykkið, um 2 cm af dýpt á hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakhliði á peysunni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 97-101-107-113-119-135-143 lykkjur af framstykki eins og áður, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 72-76-82-88-94-100-108 lykkjur af bakstykki eins og áður og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í umferðinni (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 173-181-193-205-217-239-255 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki í umferðina hér (= byrjun umferðar). Prjónið nú í hring með mynstri og sléttprjóni eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist ca 47-49-51-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkantinum fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir í hringprjón 4,5, prjónið nú stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) svona til að kaðlarnir fá fallega skiptingu. Prjónið 2-4-7-10-13-3-7 lykkjur slétt (= á undan byrjun mynsturs), byrjið umferðina hér og prjónið yfir mynstrið þannig: * Prjónið 2 lykkjur brugðið saman, 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið stroff (2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir næstu 12 lykkjur *, prjónið frá *-* alls 5-5-5-5-5-5-7-7 sinnum, prjónið 2 lykkjur brugðið saman og 1 lykkju brugðið (= 11-11-11-11-15-15 lykkjur færri), prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-22-22-26-30-24-28 lykkjur jafnt yfir umferðina = 180-192-204-220-236-248-268 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6-6 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá miðju að aftan og 54-56-58-60-62-64 cm frá efri hluta axlar. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handvegi og niður. Leggið stykkið flatt og setjið eitt merki efst í handveginn = miðjan efst á öxl – ATH: Miðjan efst á öxl er ekki á sama stað og þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 9 til 13 cm niður á framstykki. Notið hringprjón 6 og prjónið upp lykkjurnar aðeins fast (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju á milli nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir erminni – prjónið upp 52-56-58-60-64-66-68 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. ERMAKÚPA: Til að flíkin passi betur er prjónað sléttprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpuna, byrjun umferðar er fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6 lykkjur fram hjá merki efst á öxlinni, snúið stykkinu við – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 6 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 6-6-6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá þar sem stykkið var snúið við síðast, snúið stykkinu við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 6-6-6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá þar sem stykkið var snúið við síðast, snúið stykkinu við. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 6-6-6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá þar sem stykkið var snúið við síðast, snúið stykkinu við. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 6-6-6-7-7-8-8 lykkjur fram hjá þar sem stykkið var snúið við síðast, snúið stykkinu við. Það hefur verið snúið við alls 6 sinnum (= 3 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð, endið umferðina með því að snúa stykkinu við, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðarinnar (= mitt undir ermi). Setjið 1 merkþráð fyrir miðju undir ermi, merkiþráðurinn verður notað þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. ERMIN ÁFRAM NIÐUR: Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð er fækkað um 2 lykkjur 3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur 2-3-3-3-4-4-4 sinnum með 10-8-8-8-5-5-5 cm millibili = 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-42-42-40-39-37-35 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 10-8-10-8-10-12-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 52-52-56-56-60-64-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist u.þ.b. 47-47-47-46-45-43-41 cm frá miðju ofan á öxl. HÁLSMÁL: Notið hringprjón 4,5. Byrjið frá réttu við aðra axlarlínuna og prjónið upp 64-68-72-76-80-84-88 lykkjur innan við 1 lykkju, prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er aðlagaður ef þörf krefur - lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff í hring (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4-4-4½-4½-5-5-5 cm. Prjónið 2 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir í hringprjón 6 og fellið af með sléttum lykkjum. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #knottedvinesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 38 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.