Anita skrifaði:
Klopt het dat het boordpatroon anders is bij de mouwen dank u
25.03.2026 - 11:04DROPS Design svaraði:
Dag Anita,
Ai, ik denk dat hier een foutje in geslopen is, de boord van de mouw hoort ook met 1 recht, 1 averecht gebreid te worden. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling.
25.03.2026 - 16:00
Heather skrifaði:
I'm very pleased to see this pattern has a back elevation. I have knitted several Drops patterns and always knit a back elevation despite the pattern not having one.
24.03.2026 - 19:02
Zoriana skrifaði:
Ja też wole modele z podwyższeniem ,wygodniej, sweter nie zsuwa się do tyłu .Była by bardzo pomocna taka opcja
16.03.2026 - 09:37DROPS Design svaraði:
Witaj Zoriano, takie głosy powtarzają się systematycznie, już zostało to zgłoszone do działu projektów :) Pozdrawiamy!
16.03.2026 - 16:34
JoAna skrifaði:
Wasze wzory sa super! Robie z nich coraz wiecej. Czy mozecie dodac "podwyższenie" jako opcja wyboru? Tak samo jak "kobieta/góra-dol/okragly karczek"- to bardzo pomocne.
13.03.2026 - 09:52DROPS Design svaraði:
Witaj JoAno, Twoje prośby pokrywają się z prośbami innych klientek. Zostały już zgłoszone do działu projektów. Pozdrawiamy!
16.03.2026 - 16:59
Mraz Marie-Jo skrifaði:
Je ne comprends pas le diagramme . Par exemple pour A1 : est ce que je tricote 5 mailles endroit, 1 jeté, 2 mailles endroit ensemble, 4 mailles endroit au premier rang, puis 2ème rang tout à l'endroit et 3ème rang 4 mailles endroit, 1 jeté, 1 jeté, 3 mailles endroit . Est ce bien cela ? Merci
12.03.2026 - 11:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mraz, entre les 2 jetés vous n'avez qu'une seule maille à chaque fois, autrement dit vous tricotez A.1 ainsi: (4 m end, 1 jeté, 1 m end, 1 jeté, 4 m end) et répétez de (à) = vous tricotez chaque A.1 sur 9 mailles et vous obtenez 11 mailles après ce 1er tour. Au 3ème tour, tricotez: (4 m end, 2 m ens à l'end, 1 jeté, 5 m end) et répétez de (à). Bon tricot!
12.03.2026 - 15:49
NellyBoonstra skrifaði:
Ynskjer papir mønster
05.03.2026 - 16:49
Maria skrifaði:
Buongiorno. Nella spiegazione del motivo c'è scritto: "1 gettato tra 2 maglie che viene lavorato a rovescio nel giro successivo per creare un buco". Credo che ci sia un errore. Nel giro successivo deve essere lavorato a diritto per creare un buco. È così? Grazie. Maria
01.03.2026 - 13:08DROPS Design svaraði:
Buonasera Maria, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
01.03.2026 - 20:55
Mint Halo Sweater#minthalosweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Cotton Merino eða DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri á berustykki. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-33 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. UPPHÆKKUN: Til að gera peysuna aðeins hærri aftan í hnakkanum þegar prjónað er í kringum berustykkið, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er hér að neðan. Sleppið þessum kafla ef þið viljið ekki upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= miðja að aftan), lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið næstu 6 umferðir fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 12-13-14-15-16-17-18 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði í byrjun umferðar, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga):Prjónið 24-26-28-30-32-34-36 lykkjur brugðið, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 36-39-42-45-48-51-54 lykkjur slétt, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 48-52-56-60-64-68-72 lykkjur brugðið, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 60-65-70-75-80-85-90 lykkjur slétt, snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 72-78-84-90-96-102-108 lykkjur brugðið, snúið stykkinu og herðið á þræði. Prjónið slétt til baka að merkiþræði fyrir miðju að aftan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í mynstri. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7 (mynsturteikning A.7 á einungis við um stærð XXL og XXXL). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ef upphækkun aftan í hnakka er prjónuð á eftir kanti í hálsmáli, er upphækkunin prjónuð fram og til baka áður en afgangur af stykki er prjónað í hring. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-108-112-116-120-126-130 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Cotton Merino eða DROPS Belle – notið e.t.v. ítalskt uppfit. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3½-3½-4-4 cm. Byrjun umferðar er fyrir miðu að aftan. Setjið 1 merki fyrir miðju í umferð (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skipið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 13-18-23-28-33-36-41 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 117-126-135-144-153-162-171 lykkjur í umferð. Ef prjónuð er UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, prjónaðu áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm frá merki, aukið út lykkjur á berustykki með því að prjóna MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: A.1: Prjónið A.1 alls 13-14-15-16-17-18-19 sinnum berustykkið hringinn = 143-154-165-176-187-198-209 lykkjur. Haldið svona áfram þar til A.1 hefur verið prjónað til loka. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.2: Prjónið A.2 alls 13-14-15-16-17-18-19 sinnum berustykkið hringinn = 169-182-195-208-221-234-247 lykkjur. Haldið svona áfram þar til A.2 hefur verið prjónað til loka. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 8-8-8-8-9-9-9 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.3: Prjónið A.3 alls 13-14-15-16-17-18-19 sinnum berustykkið hringinn = 195-210-225-240-255-270-285 lykkjur. Haldið svona áfram þar til A.3 hefur verið prjónað til loka. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 11-11-11-11-12-12-12 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.4: Prjónið A.4 alls 13-14-15-16-17-18-19 sinnum berustykkið hringinn = 221-238-255-272-289-306-323 lykkjur. Haldið svona áfram þar til A.4 hefur verið prjónað til loka. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 14-14-14-14-15-15-15 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.5: Prjónið A.5 alls 13-14-15-16-17-18-19 sinnum berustykkið hringinn = 247-266-285-304-323-342-361 lykkjur. Haldið svona áfram þar til A.5 hefur verið prjónað til loka. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 17-17-17-17-18-18-18 cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.6: Prjónið A.6 alls 13-14-15-16-17-18-19 sinnum berustykkið hringinn = 273-294-315-336-357-378-399 lykkjur. Haldið svona áfram þar til A.6 hefur verið prjónað til loka. Mynstur með útaukningu hefur nú verið prjónað til loka í stærð XS, S, M, L og XL – prjónið nú frá ALLAR STÆRÐIR: Í stærð XXL og XXXL er prjónað sléttprjón þar til stykkið mælist 0-0-0-0-0-21-21 cm frá merki, aukið síðan út í síðasta skipti í A.7 eins og útskýrt er að neðan. A.7: Prjónið A.7 alls 0-0-0-0-0-18-19 sinnum berustykkið hringinn = 273-294-315-336-357-414-437 lykkjur. Haldið svona áfram þar til A.7 hefur verið prjónað til loka – prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið prjónaðar til loka, prjónið sléttprjón -JAFNFRAMT sem aukið er út í fyrstu umferð um 7-10-9-20-27-2-7 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 280-304-324-356-384-416-444 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 20-20-21-22-23-25-27 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT og næsta umferð er prjónuð, skiptið berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 42-46-50-54-58-64-70 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 56-60-62-70-76-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 84-92-100-108-116-128-140 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 56-60-62-70-76-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), og prjónið síðustu 42-46-50-54-58-64-70 lykkjur í sléttprjóni (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-220-236-256-280-308 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 38-40-42-43-44-46-48 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-32-30-34-38-42-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 212-232-250-270-294-322-352 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, eða fellið af með ítalskri affellingu. Peysan mælist 41-43-45-46-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 46-48-50-52-54-56-58 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 56-60-62-70-76-80-82 lykkjur af erminni af öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni - sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 64-68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-8-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur undir erminni - umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir erminni – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm alls 3-3-3-2-2-1-0 sinnum = 58-62-66-76-84-90-96 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 12-13-12-13-11-10-8 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-8-10-10-10-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 66-70-74-86-94-100-108 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða með ítalskri affellingu. Ermin mælist ca 15-16-15-16-15-14-12 cm frá skiptingunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #minthalosweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.