Blue Plume Sweater#blueplumesweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa DROPS Alpaca og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, rúllukanti og öldumynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-20 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki eru sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 30-30-30-38-38-38-38 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1, A.2, A.3, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið A.3, A.2, A.1, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið umferð 2 og 3 alls 13-13-13-11-11-11-11 sinnum (= 26-26-26-22-22-22-22 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru 82 lykkjur í umferð í öllum stærðum. A.1, A.2 og A.3 hefur nú verið prjónað til loka á hæðina. Í stærðum XS og S er útaukningu lokið (prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR). Í stærðum M- L-XL-XXL-XXXL heldur útaukningin áfram í hverri umferð eins og áður innan við 3 lykkjur í sléttprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT er mynstrið prjónað þannig: 3 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 alls 4 sinnum, prjónið 3 lykkjur sléttprjón. Nýju lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Aukið út 0-0-4-4-8-8-13 sinnum í hvorri hlið (= 0-0-4-4-8-8-13 umferðir prjónaðar), það hefur verið aukið út alls 26-26-30-26-30-30-35 sinnum í hvorri hlið = 82-82-90-90-98-98-108 lykkjur í umferð. Prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Setjið eitt merki yst í hliðina. Héðan er stykkið mælt frá! Prjónið nú mynstrið þannig: Prjónið 3-3-7-7-11-11-16 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 alls 4 sinnum (haldið áfram í réttri umferð í stærð M-L-XL-XXL-XXXL), prjónið 3-3-7-7-11-11-16 lykkjur sléttprjón. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar stykkið mælist 11-12-11-12-10-11-7 cm frá merkinu, byrjar útaukning fyrir handveg. Athugið hvaða umferð er næsta umferð í mynstrinu, það er mikilvægt að útaukning fyrir handveg á framstykki byrji í sömu umferð, þannig að mynstrið haldi áfram frá sömu umferð þegar stykkin eru sett saman. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 0-0-4-4-8-8-13 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 alls 4 sinnum, prjónið 0-0-4-4-8-8-13 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-6-6-8-8-12 sinnum = 90-90-102-102-114-114-132 lykkjur í umferð. Stykkið á að mælast ca 15-16-16-17-17-18-18 cm frá merki í hlið, síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, prjónið nú vinstra framstykkið meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er hér að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykkinu þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar frá þræði / hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið stykkisins = vinstri öxl. Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna, takið ekki upp í síðustu lykkjuna út að öxl = 25-25-29-25-29-29-34 lykkjur. Allar lengdarmælingar á framstykkinu eru gerðar frá þessum uppprjónaða kant. Prjónið svona – frá röngu: Prjónið 3-3-7-7-11-11-16 lykkjur brugðið, prjónið A.5. Í umferð með stjörnu, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið fyrstu 3 lykkjurnar í A.5, aukið út 1 lykkju til vinstri, haldið áfram með A.5, prjónið 3-3-7-7-11-11-16 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5 sinnum (= 10 umferðir sléttar) = 30-30-34-30-34-34-39 lykkjur (næsta umferð á að vera prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, prjónið nú hægra framstykki meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við öxlina og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið 1 lykkju inn frá ystu prjónuðu umferðinni, prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna = 25-25-29-25-29-29-34 lykkjur. Allar lengdarmælingar á framstykki eru gerðar frá þessum uppprjónaða kant. Prjónið svona - frá röngu: Prjónið A.6, 3-3-7-7-11-11-16 lykkjur brugðið. Í umferð með stjörnu, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3-3-7-7-11-11-16 lykkjur slétt, prjónið A.6 þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt (= síðustu 3 lykkjurnar í A.6) - munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5 sinnum (= 10 umferðir prjónaðar) = 30-30-34-30-34-34-39 lykkjur (næsta umferð á að vera prjónuð frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Prjónið fyrstu umferðina frá réttu þannig: Prjónið 30-30-34-30-34-34-39 lykkjur frá hægra framstykki slétt, fitjið upp 22-22-22-30-30-30-30 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 30-30-34-30-34-34-39 lykkjur frá vinstra framstykki slétt = 82-82-90-90-98-98-108 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð brugðið yfir allar lykkjur. Prjónið síðan mynstrið þannig: Prjónið 3-3-7-7-11-11-16 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 alls 4 sinnum, prjónið 3-3-7-7-11-11-16 lykkjur sléttprjón. Prjónið þar til stykkið mælist ca. 23-24-25-26-26-27-25 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp og næsta umferð er sama umferð og sú tilgreind var á bakstykki – nú byrjar útaukningin fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 0-0-4-4-7-7-12 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 alls 4 sinnum, prjónið 0-0-4-4-7-7-12 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 slétt alls 4-4-6-6-8-8-12 sinnum = 90-90-102-102-114-114-132 lykkjur í umferð. Stykkið á að mælast ca 27-28-30-31-33-34-36 cm kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er hér að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið eins og áður yfir 90-90-102-102-114-114-132 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 5-5-12-12-19-19-20 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar, prjónið eins og áður yfir 90-90-102-102-114-114-132 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 5-5-12-12-19-19-20 nýjar lykkjur í umferð = 190-190-228-228-266-266-304 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur sem þegar er byrjað, þ.e.a.s. prjónið eins og útskýrt er í A.4. Það er pláss fyrir 10-10-12-12-14-14-16 mynstureiningar af A.4, passið að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjurnar af framstykki og bakstykki. Haldið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66-68 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp við miðju að aftan. Prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið, fellið síðan af með sléttum lykkjum. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handvegi og niður. Leggið stykkið flatt og setjið eitt merki efst í handveginn = miðjan efst á öxl – ATH: Miðjan efst á öxl er ekki á sama stað og þar sem lykkjurnar voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur nokkra cm niður á framstykkið. Notið hringprjón 5 og prjónið upp lykkjurnar frekar fast (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum fitjaðar upp undir erminni – prjónið upp 71-75-85-89-99-101-107 lykkjur – stillið af þannig að jafnmargar lykkjur séu hvoru megin við merkið. ERMAKÚPA: Mynstrið er prjónað þannig: Prjónið 26-28-33-35-40-41-44 lykkjur sléttprjón, A.7, 26-28-33-35-40-41-44 lykkjur sléttprjón. Fyrst er prjónað sléttprjón og mynstur fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna til að ermin fái betra form, umferðin byrjar fyrir miðju undir erminni og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4 lykkjur fram hjá A.7 ofan á öxlinni, snúið stykkinu við – sjá LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur fram hjá A.7, snúið stykkinu við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3-3-3-3-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við síðast, snúið stykkinu við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3-3-3-3-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem stykkinu var snúið við síðast, snúið stykkinu við. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til stykkinu hefur verið snúið við alls 12-12-18-18-24-24-28 sinnum (= 6-6-9-9-12-12-14 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferðin er prjónuð frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð, endið umferðina með því að snúa stykkinu við, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðarinnar (miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, hann er notaður þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. ERMIN ÁFRAM NIÐUR: Nú er prjónað í hring í sléttprjóni og A.7 JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir erminni, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar 1 umferð hefur verið prjónuð, fækkið um 2 lykkjur 2-2-3-3-4-4-4 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur 8-9-12-13-16-16-18 sinnum með 3½-3-3-3-2-2-1½ cm millibili = 51-53-55-57-59-61-63 lykkjur í umferð. Síðan er prjónað þar til ermin mælist 47-49-48-48-47-48-46 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 9-11-9-11-9-11-13 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 60-64-64-68-68-72-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4-4 cm, prjónið 3 umferðir sléttprjón á sokkaprjóna 5 áður en fellt er laust af með sléttum lykkjum (= rúllukantur). Ermin mælist ca 50-52-51-52-51-52-50 cm frá miðju ofan á öxl. HÁLKANTUR: Notið hringprjón 3,5. Byrjið frá réttu við aðra axlarlínuna og prjónið upp 88 til 108 lykkjur innan við 1 lykkju - fjöldi lykkja verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Skiptið yfir í hringprjón 5. Prjónið 3 umferðir sléttprjón og fellið laust af með sléttum lykkjum (= rúllukantur). |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blueplumesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 44 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.