Spring Hug Wrap#springhugwrap |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, vafningsstykki, i-cord og belti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-3 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið 1 lykkju brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið. RANGA: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. VAFNINGSSTYKKI: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, aukið út innan við 4 lykkjur í hvorri hlið á stykki (þ.e.a.s. innan við 3 kantlykkjur að framan og 1 lykkjur slétt). Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Í BYRJUN UMFERÐAR (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Í LOK UMFERÐAR (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Fyrst er hægri kantur að framan prjónaður fram og til baka, síðan eru lykkjur prjónaðar í uppfitjunarkanti fyrir vinstri kant að framan og framkanturinn er prjónaður til loka fram og til baka. Þegar framkanturinn hefur verið prjónaður til loka eru lykkjur prjónaðar upp fyrir berustykki meðfram framkantsbandi. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu og vafningsstykki. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka ,skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin er prjónað belti. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MED I-CORD: Fitjið upp 3 lykkjur á sokkaprjóna. 8 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Melody (= 2 þræðir). Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til framkanturinn mælist ca 12-12½-13-13½-13½-13½-14 cm – prjónið síðustu umferð frá röngu. Klippið þráðinn og látið lykkjurnar vera á hjálparprjóni. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Prjónið 3 lykkjur slétt meðfram uppfitjunarkantinum á hægra kanti að framan með sokkaprjónum 8 og 1 þræði af hvorri gerð (= 2 þræðir) – passið að brugðnu lykkjurnar, séð frá réttu, séu upp á móti hvor annarri í annarri hliðinni og i-cord lykkjurnar séu á móti hvor annarri hinum megin. Síðar eru prjónaðar upp lykkjur fyrir berustykki meðfram framkanti innan við ystu lykkjubogana á brugðnu lykkjunni frá réttu. PRJÓNIÐ VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til framkantur mælist ca 12-12½-13-13½-13½-13½-14 cm – prjónið síðustu umferðina frá röngu. Framkantur mælist alls 24-25-26-27-27-27-28 cm (uppfitjunarkanturinn er fyrir miðju í framkantbandi að framan). Prjónið nú sléttar lykkjur meðfram öllu framkantbandinu að framan innan við ysta lykkjubogann á brugðnu lykkjunum í næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið vinstri framkant með i-cord eins og áður (= 3 kantlykkjur að framan), prjónið upp 29-30-31-32-32-32-33 lykkjur meðfram framkanti – stillið af þannig að prjónaðar séu upp nokkurn veginn jafn margar lykkjur hvoru megin við miðju framkantbandsins (þ.e.a.s. hvoru megin við uppfitjunarkantinn), að lokum prjónið hægri framkant með i-cord eins og áður (= 3 kantlykkjur að framan) = 35-36-37-38-38-38-39 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 3 kantlykkjur að framan eins og áður í hvorri hlið. Setjið nú 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur kallast laskalykkjur og aukið á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 4 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merkið í næstu lykkju, teljið 5 lykkjur (= ermi), setjið 2. merkið í næstu lykkju, teljið 13-14-15-16-16-16-17 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merkið í næstu lykkju, teljið 5 lykkjur (= ermi), setjið 4. merkið í næstu lykkju. Það eru 4 lykkjur eftir í umferð fyrir hægra framstykki. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 3 kantlykkjur að framan eins og áður í hvorri hlið samtímis sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar í annarri hverri umferð og fyrir VAFNINGSSTYKKI innan við 4 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð – lesið útskýringar að ofan hvernig á að auka út og prjóna eins og útskýrt er að neðan. Munið að fylgja prjónfestunni. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 kantlykkjur að framan, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð samtímis sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar, prjónið 3 kantlykkjur að framan (= 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 kantlykkjur að framan, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í laskalínu), prjónið 3 kantlykkjur að framan. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 15-15-17-17-18-18-18 sinnum (= 30-30-34-34-36-36-36 umferðir prjónaðar) - JAFNFRAMT sem aukið er út fyrir VAFNINGSSTYKKI innan við 4 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð (ATH: Fyrsta útaukningin fyrir vafningsstykki er gerð þegar aukið er út fyrir laskalínu í annað sinn). Aukið hefur verið út 15-15-17-17-18-18-18 sinnum á framstykkjum/bakstykki, 15-15-17-17-18-18-18 sinnum á ermum og 7-7-8-8-9-9-9 sinnum fyrir vafningsstykki = 169-170-189-190-200-200-201 lykkjur í umferð. Nú er ekki lengur aukið út fyrir ermar, heldur er aukið út fyrir framstykkjum og bakstykki í annarri hverri umferð eins og áður samtímis sem haldið er áfram að auka út fyrir vafningsstykki. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 kantlykkjur að framan, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð samtímis sem aukið er út fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki, prjónið 3 kantlykkjur að framan (= 4 lykkjur fleiri fyrir laskalínu). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 kantlykkjur að framan, prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð (munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í laskalínu), prjónið 3 kantlykkjur að framan. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-2-1-2-2-2-4-6 sinnum (= 2-4-2-4-4-8-12 umferðir prjónaðar) JAFNFRAMT sem aukið er út fyrir VAFNINGSSTYKKI innan við 4 lykkjur í hvorri hlið í 4. hverri umferð eins og áður. Aukið hefur verið út 16-17-18-19-20-22-24 sinnum á framstykkjum/bakstykki, 15-15-17-17-18-18-18 sinnum á ermum og 8-8-9-9-10-11-12 sinnum fyrir vafningsstykki = 175-180-195-200-210-220-231 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu og vafningsstykki er nú lokið. Stykkið mælist ca 23-24-26-27-29-31-34 cm frá merki við miðju að aftan. Skiptið nú berustykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptið berustykkinu í fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 3 kantlykkjur að framan, prjónið 26-27-29-30-32-35-38 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 35-35-39-39-41-41-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 47-50-53-56-58-62-67 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 35-35-39-39-41-41-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 26-27-29-30-32-35-38 lykkjur eins og áður, prjónið 3 kantlykkjur að framan (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 113-122-129-138-148-162-177 lykkjur. Prjónið sléttprjón og framkanta eins og áður þar til stykkið mælist 49-51-53-55-57-59-61 cm frá miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu, byrjið stroffið JAFNFRAMT sem aukið er út um 30-31-34-35-37-39-42 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (ekki auka út yfir framkanta) = 143-153-163-173-185-201-219 lykkjur, prjónið þannig: Skipið yfir á hringprjón 6 og prjónið framkant eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið - munið eftir útaukningunni) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og framkant eins og áður. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm frá miðju að aftan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 35-35-39-39-41-41-41 lykkjur af erminni frá öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-6-8-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 39-41-45-47-51-53-55 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-6-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur undir erminni - umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón í hring - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 0-0-10-10-8-8-8 cm millibili alls 1-1-2-2-3-3-3 sinnum = 37-39-41-43-45-47-49 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-39-38-37-36-34 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 11-11-11-13-13-13-15 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 48-50-52-56-58-60-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm, fækkið lykkjum með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-43-42-41-40-39-37 cm frá skiptingunni. BELTI: Notið sokkaprjóna 8 og 1 þráð af hvorri gerð (= 2 þræðir), fitjið upp 4 lykkjur og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið snúru með 4 lykkjum þannig: * Færið allar lykkjur yfir á hægri hlið á prjóninum án þess að snúa stykkinu við, herðið á þræðinum og prjónið slétt yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* þar til beltið mælist ca. 160-170-185-200-215-230-255 cm. Beltið er bundið í kringum mittið, þræðið e.t.v. beltið í gegnum nokkrar lykkjur hvoru megin við fram- og bakstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springhugwrap eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 44 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.