Forever Rose Cardigan#foreverrosecardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-2 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu (kantur að framan = 7 lykkjur): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3. og 4. lykkju frá kanti við miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, haldið síðan áfram með lykkjur frá framstykki eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist 5-5-5-6-6-6-6 cm, fellið síðan af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 12-19-26-34 og 42 cm. S: 12-20-28-36 og 44 cm. M: 12-20-28-37 og 46 cm. L: 13-20-27-34-41 og 48 cm. XL: 13-20-27-34-41 og 49 cm. XXL: 13-20-27-35-43 og 51 cm. XXXL: 13-21-29-37-45 og 53 cm. (= fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í skiptingunni á milli framstykkis og hálsmáls). MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING – FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið er út hvoru megin við 6-6-6-8-8-8-8 lykkjur fyrir miðju undir ermi (merkiþráðurinn situr á milli þessa 6-6-6-8-8-8-8 lykkja) – aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er síðan prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING – ERMAR: Aukið út hvoru megin við 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja) – aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breytið eftir þörfum. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka, fram og til baka hvort fyrir sig. Ermarnar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermin prjónuð fram og til baka að loka máli. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Það er prjónað mynstur á framstykkjum og bakstykki. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 231-251-267-289-309-333-361 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Daisy eða DROPS Cotton Merino. Prjónið fyrstu umferð þannig frá réttu: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD - sjá útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið þar til stroffið mælist 3-3-3-4-4-4-4 cm, endið með umferð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð brugðin frá röngu (framkantar halda áfram eins og áður) jafnframt er fækkað um 1 lykkju jafnt yfir í umferð = 230-250-266-288-308-332-360 lykkjur. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 7 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið A.1 alls 2 sinnum (= 38 lykkjur), prjónið A.3 1-1-1-2-2-2-2 sinnum, prjónið 2 lykkjur brugðið, prjónið sléttprjón yfir næstu 120-140-156-162-182-206-234 lykkjur, prjónið A.3 1-1-1-2-2-2-2 sinnum, prjónið A.2 alls 2 sinnum (= 38 lykkjur) prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Setjið 2 merkiþræði í stykkið, 67-72-76-83-88-94-101 lykkjur inn frá miðju að framan = í hliðum. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með þetta mynstur upp á við, jafnframt á að fækka lykkjum og auka út í hliðum eins og útskýrt er að neðan. Munið að fylgja prjónfestunni. ÚRTAKA Í HLIÐUM: Jafnframt, þegar stykkið mælist 6 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræðina – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið svona með 2 cm millibili alls 4 sinnum = 214-234-250-272-316-344 lykkjur. ÚTAUKNING Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 15 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræðina – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Endurtakið útaukninguna með 3 cm millibili alls 4 sinnum = 230-250-266-288-308-332-360 lykkjur. Prjónið fram og til baka með sléttprjóni, mynstri og framkanti eins og áður í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34-35 cm, skiptið stykkinu fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING VIÐ HANDVEG: Í næstu umferð er stykkinu skipt í framstykki og bakstykki og umferðin prjónuð þannig: Prjónið 64-69-73-79-84-90-97 lykkjur eins og áður (= framstykki með framkanti), fellið af næstu 6-6-6-8-8-8-8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 90-100-108-114-124-136-150 lykkjur eins og áður (= bakstykki), fellið af næstu 6-6-6-8-8-8-8 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðustu 64-69-73-79-84-90-97 lykkjur eins og áður (= framstykki með framkanti). Framstykkin og bakstykkið er prjónað til loka hvert fyrir sig. BAKSTYKKI: = 90-100-108-114-124-136-150 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-5-6-6-8-10-12 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkju 3-4-6-4-5-7-8 sinnum í hvorri hlið = 72-72-72-82-82-82-86 lykkjur. Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57-59 cm, fellið af miðju 30-30-30-32-32-32-32 lykkjurnar fyrir hálsmáli og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig = 21-21-21-25-25-25-27 lykkjur. ÖXL: Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð = 20-20-20-24-24-24-26 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 64-69-73-79-84-90-97 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og kant að framan fram og til baka eins og áður. Í hliðinni eru lykkjur felldar af fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: 2 lykkjur 3-5-6-6-8-10-12 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 3-4-6-4-5-7-8 sinnum = 55-55-55-63-63-63-65 lykkjur. Haldið áfram með mynstur upp á við. ÖXL: Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-50-52-54 cm, setjið 17-17-17-17-17-17-17 lykkjur við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (prjónið þær fyrst), fækkið síðan lykkjum í hverri umferð frá hálsmáli: 2 lykkjur 4 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum = 28-28-28-36-36-36-38 lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 8-8-8-12-12-12-12 lykkjur jafnt yfir kaðlana = 20-20-20-24-24-24-26 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. ERMI: Fitjið upp 64-66-68-70-72-74-76 lykkjur á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt/ 1 lykkja brugðið). Haldið áfram með stroff í 3-3-3-3-4-4-4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 58-60-62-64-66-68-70 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, hann verður notaður þegar auka á út lykkjur undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið síðan mynstrið þannig – frá miðju undir ermi: Prjónið 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur sléttprjón, A.3, 24-25-26-27-28-29-30 lykkjur sléttprjón. Haldið áfram með mynstrið svona upp úr. Þegar ermin mælist 8 cm, aukið út lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út um 2 lykkjur með 3½-3-2½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 10-12-14-17-19-21-22 sinnum = 78-84-90-98-104-110-114 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til ermin mælist 44-45-46-44-44-44-42 cm. Prjónið nú ermakúpu eins og útskýrt er að neðan. ERMAKÚPA: Í næstu umferð eru felldar af 6-6-6-8-8-8-8 lykkjur fyrir miðju undir erminni, en til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá, byrjið umferðina 3-3-3-4-4-4-4 lykkjum á undan merkiþræði fyrir miðju undir erminni, fellið af og prjónið síðan út umferðina eins og áður. Prjónið síðan stykkið fram og til baka á prjóninum JAFNFRAMT sem fellt er af fyrir ermakúpu í hvorri hlið, fellið af lykkjur í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 0-0-0-1-1-1-1 sinnum í hvorri hlið, 2 lykkjur 4-4-4-4-4-5-5 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 4-5-6-7-8-8-10 sinnum í hvorri hlið, fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-56-58-56-57-58-58 cm, fellið af og prjónið 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 55-57-59-57-58-59-59 cm. FRÁGANGUR-1: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. HÁLSKANTUR: Prjónið upp ca 111-117 lykkjur í kringum hálsmál (þar með taldar lykkjur á þræði) frá réttu á hringprjón 3 (passið að taka upp 1 lykkju í hverja kantlykkju að framan). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og jafnið lykkjufjöldann ef þörf krefur (fjöldi lykkja á að vera deilanlegur með 2 lykkjum + 1 + kantlykkjum að framan). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið síðan * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar kantur í hálsmáli mælist 3-3-3-4-4-4-4 cm. FRÁGANGUR-2: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #foreverrosecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 51 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.