Marie Holmström skrifaði:
Kan ni vänligen förtydliga , varifrån räknas ytterst på axeln enligt nedan beskrivning "ska arbetet mäta ca 16-18-19-22-23-24-26 cm från ytterst på axeln och ner längs ärmhålet"
13.03.2026 - 11:51
Debora skrifaði:
Grazie, potete correggere anche le mie precedenti segnalazioni per favore? Grazie mille e buon lavoro
25.02.2026 - 22:50DROPS Design svaraði:
Buonasera Debora, abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
26.02.2026 - 23:13
Debora skrifaði:
Buonasera, segnalo un' inesattezza nella descrizione dello sprone, quando si aumentano le maglie sia per il corpo sia per le maniche. Giro 1, due maglie a diritto invece che due maglie insieme a diritto. Grazie, il modello è bellissimo
25.02.2026 - 20:35DROPS Design svaraði:
Buonasera Debora, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
25.02.2026 - 22:36
Debora skrifaði:
Buongiorno, sto lavorando la spalla destra e per iniziare gli aumenti per la scollatura l'istruzione dice di avviare le maglie alla fine di ogni ferro a rovescio del lavoro . Ma in questo modo gli aumenti non saranno verso il collo, quindi le nuove maglie si avviano alla fine dei ferri a diritto o all'inizio dei ferri a rovescio? Grazie
13.02.2026 - 17:35DROPS Design svaraði:
Buonasera Debora, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto il modello. Buon lavoro!
26.02.2026 - 23:13
Debora skrifaði:
Buongiorno, ho rilevato alcune inesattezze nella traduzione italiana, nel suggerimento per gli aumenti -2 è ripetuto aumento verso destra 2 volte anziché anche a sinistra; nel ferro 2 del dietro , dopo le 3 maglie a diritto manca l'istruzione ad effettuare l'aumento verso sinistra e successivamente 1 maglia a diritto. Potete verificare per favore? Grazie mille 🙏🏼
12.02.2026 - 10:36DROPS Design svaraði:
Buonasera Debora, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto il modello. Buon lavoro!
26.02.2026 - 23:09
Debora skrifaði:
Buongiorno vorrei segnalare un errore nel 2 ferro del dietro. Dopo le 3 maglie a diritto manca l'aumento verso sinistra. Grazie!
10.02.2026 - 12:49DROPS Design svaraði:
Buonasera Debora, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
26.02.2026 - 23:04
Rose Pearl Sweater#rosepearlsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki og gatamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-10 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar lykkjur eru auknar út á bakstykki eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur (þ.e.a.s. 5-5-6-6-5-5-5 lykkjur sléttprjón á milli hverra mynstureininga af A.1) – ekki prjóna gatamynstrið í A.1 áður en það myndast pláss fyrir heila mynstureiningu af A.1. Eftir að vinstri og hægri öxl hafa verið settar saman og fitjaðar hafa verið upp lykkjur fyrir hálsmáli við miðju að framan, prjónið nýjar lykkjur á framstykki inn í mynstur – en ekki prjóna gatamynstur A.1 áður en prjónaðar hafa verið minnst 2 umferðir þannig að kanturinn í hálsmáli verði fallegur þegar lykkjur eru prjónaðar upp. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU (= ný lykkja snýr til vinstri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU (= ný lykkja snýr til hægri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við mynsturteikningu A.1 neðan á erminni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan A.1, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, prjóni A.1, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kaðlar eru prjónaðar á framstykki og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli við miðju að framan = framstykkin eru sett saman í eina heild. Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu og framstykkið prjónað = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Samtímis sem berustykkið er prjónað, eru lykkjur auknar út fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar, síðan er aukið út bæði fyrir fram- og bakstykki og ermar. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. ------------------------------------------------------- BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 28-28-32-32-36-36-36 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. Prjónið 3 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 0-0-1-1-4-4-4 lykkjur sléttprjón, * A.1 (= 4 lykkjur), 5-5-6-6-5-5-5 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, A.1, 0-0-1-1-4-4-4 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju til hægri og prjónið 3 lykkjur sléttprjón. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju til hægri, 1-1-2-2-5-5-5 lykkjur sléttprjón, * A.1, 5-5-6-6-6-5-5-5 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, A.1, 1-1-2-2-5-5-5 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju til vinstri og prjónið 3 lykkjur sléttprjón. Lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN í útskýringu að ofan. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið eins og UMFERÐ 2 og 3 8-8-9-9-10-10-10 sinnum til viðbótar ( UMFERÐ 2 og 3 er prjónað alls 9-9-10-10-11-11-11 sinnum = 18-18-20-20-22-22-22 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 64-64-72-72-80-80-80 lykkjur í umferð. Prjónið 2 umferðir af mynstri án útaukningar. Munið að fylgja prjónfestunni. Stykkið mælist ca 8-8-8-8-9-9-9 cm frá uppfitjunarkantinum. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón. VINSTRI ÖXL: Notið hringprjóna 5 og DROPS Air. Finnið vinstri öxlina á bakstykkinu þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar frá þræði/hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið stykkisins = vinstri öxl. Prjónið nú sléttar lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handveg þannig: Prjónið upp 1 lykkju slétt í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna og fitjið að auki upp 1 lykkju í lok umferðar út að handvegi = 21-21-23-23-25-25-25 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið að hálmáli. Öll lengdarmæling á framstykkinu er gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5-5-5-5-1-1-1 lykkjur slétt, * A.1, 5-5-6-6-5-5-5 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-1-2-2-2 sinnum, A.1 og prjónið 3-3-4-4-2-2-2 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3-3-4-4-2-2-2 lykkjur brugðið, * A.1, 5-5-6-6-5-5-5 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-1-2-2-2 sinnum, A.1 og prjónið 5-5-5-5-1-1-1 lykkjur brugðið. Prjónið eins og UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 7-7-9-9-10-11-12 cm. Fitjið nú upp lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu – munið eftir LEIÐBEININGAR PRJÓN. Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 3 lykkjur 1 sinni – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu = 28-28-30-30-32-32-32 lykkjur. Stykkið mælist ca 11-11-13-13-14-15-16 cm frá merki. 1-1-2-2-2-2-2-3 cm af dýpt frá hálsmáli mun teygjast yfir á bakstykkið. Klippið þráðinn frá og leggið stykkið til hliðar, prjónið nú hægri öxl meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl eins og útskýrt er hér að neðan. HÆGRI ÖXL: Notið hringprjóna 5 og DROPS Air. Prjónið upp lykkjur meðfram hægri bakstykkis skáhallandi öxl - byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur að hálsmáli þannig: Fítjið upp 1 lykkju í byrjun umferðar út að handvegi og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkjuna = 21-21-23-23-25-25-25 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið að hálsmáli. Öll lengdarmæling á framstykki er gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3-3-4-4-2-2-2 lykkjur slétt, * A.1, 5-5-6-6-5-5-5 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-1-2-2-2 sinnum, A.1 og prjónið 5-5-5-5-1-1-1 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 5-5-5-5-1-1-1 lykkjur brugðnar, * A.1, 5-5-6-6-5-5-5 lykkjur brugðnar *, prjónið frá *-* alls 1-1-1-1-2-2-2 sinnum, A.1 og prjónið 3-3-4-4-2-2-2 lykkjur brugðið. Prjónið eins og UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist ca 7-7-9-9-10-11-12 cm. Fitjið nú upp lykkjur fyrir hálsmál í lok hverrar umferðar frá réttu – munið eftir LEIÐBEININGAR PRJÓN Fitjið upp 1 lykkju 2 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 3 lykkjur 1 sinni = 28-28-30-30-32-32-32 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu. Stykkið mælist ca 11-11-13-13-14-15-16 cm frá merki. Prjónið nú berustykkið héðan. Setjið síðan framstykkin saman og fitjið upp lykkjur fyrir hálsmáli við miðju að framan, prjónið eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið frá réttu með lykkjunum frá hægri öxl: Prjónið yfir hægri öxl, fitjið upp 8-8-12-12-16-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið vinstri öxl = 64-64-72-72-80-80-80 lykkjur. Munið eftir LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið mynstur 1 sinni á hæðina og endið með 1 umferð frá röngu - stillið af að mynstrið endi á sömu umferð og á bakstykki. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett saman og lykkjur fyrir ermar eru prjónaðar upp, prjónið eins og útskýrt er hér að neðan. BERUSTYKKI: Byrjið frá réttu með lykkjum frá hægri öxl. UMFERÐ 1 (= rétta): Í þessari umferð er fækkað um 4 lykkjur: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri), setjið merki hér, prjónið upp 18-18-22-22-24-26-26 lykkjur meðfram hlið vinstra framstykkisins (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið merki hér, setjið lykkjurnar af bakstykkinu aftur á prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið mynstur sem þegar er byrjað yfir bakstykkið þar til 2 lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 1 lykkja færri), setjið merki hér, prjónið upp 18-18-22-22-24-26-26 lykkjur meðfram hlið hægra framstykkisins (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkjuna), setjið merki hér = 160-160-184-184-204-208-208 lykkjur. Prjónið síðan stykkið í hring. Nú er aukið út fyrir ermar þannig: UMFERÐ 2: Prjónið eins og áður að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið 7-7-9-9-10-11-11 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1, prjónið 7-7-9-9-10-11-11 lykkjur sléttprjón (= ermi), aukið út um 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið mynstur eins og áður yfir bakstykki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið 7-7-9-9-10-11-11 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1, prjónið 7-7-9-9-10-11-11 lykkjur sléttprjón (= ermi), aukið út um 1 lykkju til hægri (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón. 4 lykkjur hafa verið auknar út = 164-164-188-188-208-212-212 lykkjur. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið eins og UMFERÐ 2 0-0-0-0-1-1-1 sinnum til viðbótar, jafnframt því að prjóna mynstur A.1 mitt á hvorri ermi, hinar lykkjurnar á erminni eru prjónaðar í sléttprjóni = 164-164-188-188-212-216-216 lykkjur. Prjónið síðan í hring þannig: UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður fram að fyrsta merki er (= framstykki), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður á erminni og prjónið fram að næsta merki (= ermi), aukið út um 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið mynstur eins og áður fram að næsta merki (= bakstykki), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið sléttprjón og A.1 eins og áður á erminni og prjónið fram að næsta merki, aukið út um 1 lykkju til hægri (= ermi), færið merkið yfir á hægri prjón. 4 lykkjur hafa verið auknar út (= 2 lykkjur á hvorri ermi) = 168-168-192-192-216-220-220 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið mynstur og sléttprjón, lykkjur eru ekki auknar út = 168-168-192-192-216-220-220 lykkjur. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið eins og UMFERÐ 1 og 2 6-5-6-6-6-1-0 sinnum til viðbótar (UMFERÐ 2 og 3 er prjónað alls 7-6-7-7-7-2-1 sinnum) = 192-188-216-216-240-224-220 lykkjur. Nú á að auka út fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir fyrir fyrsta merki, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður fram að næsta merki (= ermi), aukið út um 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður fram að næsta merki (= ermi), aukið út um 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= 8 lykkjur fleiri, þ.e. 1 lykkja hefur verið aukin út hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermi). Nýju lykkjurnar eru síðan prjónaðar í sléttprjóni. UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður, lykkjur eru ekki auknar út. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið eins og UMFERÐ 1 og 2 4-7-6-9-9-14-17 sinnum til viðbótar (= 10-16-14-20-20-30-36 umferðir prjónaðar), alls hefur verið aukið út 5-8-7-10-10-15-18 sinnum bæði á fram- og bakstykki og ermum = 44-48-52-58-62-64-68 lykkjur á hvorri ermi og 72-78-84-90-98-108-114 lykkjur á framstykki/bakstykki = 232-252-272-296-320-344-364 lykkjur alls. Ermin mælist ca 11-13-13-16-16-16-18 cm – þegar peysan er brotin tvöföld upp við öxlina á stykkið að mælast ca 16-18-19-22-23-24-26 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Prjónið síðan mynstur eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 18-19-20-22-24-25-26 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Nú skiptist berstykkið í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið yfir 72-78-84-90-98-108-114 lykkjur frá framstykki eins og áður, setjið næstu 44-48-52-58-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 72-78-84-90-98-108-114 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 44-48-52-58-62-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-168-184-196-216-236-252 lykkjur. Prjónið í hring í sléttprjóni og mynstri (nýjar lykkjur í hliðum eru prjónaðar í sléttprjóni), prjónið þar til stykkið mælist 45-48-48-50-51-53-54 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-20-24-24-28-28-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 176-188-208-220-244-264-284 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6-6 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 50-53-54-56-58-60-61 cm frá miðju að aftan og ca 51-54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 44-48-52-58-62-64-68 lykkjur af erminni frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 50-54-60-66-72-74-80 lykkjur. Setjið 1 merki hvoru megin við 4 miðjulykkjurnar undir erminni – A.1 er prjónað yfir þessar lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón og A.1 ofan á erminni eins og áður, að auki er prjónað A.1 yfir 4 miðjulykkjurnar undir erminni (stillið mynstrið af undir erminni þannig að mynstrið sé prjónað í sömu umferð ofan á og undir erminni). JAFNFRAMT þegar 1 umferð hefur verið prjónuð er lykkjum fækkað undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og lykkjum fækkað þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 4-4-4-4-4-3-4-3 cm millibili alls 3-3-5-6-7-6-7 sinnum = 44-48-50-54-58-62-66 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-38-37-35-31-32-31 cm frá skiptingunni. Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). JAFNFRAMT er aukið út um 6-6-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 50-54-56-60-64-70-74 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6-6 cm er fellt laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-43-42-40-37-38-38 cm frá skiptingunni undir ermi og 54-56-55-56-54-55-56 cm frá öxl og niður. HÁLSMÁL: Notið hringprjóna 4 og DROPS Air. Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp ca 76 til 104 lykkjur í kringum hálsmál – prjónið upp innan við 1 lykkju (fjöldi lykkja verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rosepearlsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 47 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.