Ivory Leaf Cardigan#ivoryleafcardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki, i-cord og gatamynstri á framstykkjum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-5 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.4). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 8 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 6 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 8 lykkjur): Prjónið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 6 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 6 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að lykkjur hafa verið fitjaðar upp fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir 4-4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10-10½-11-9-9-9-9 cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónið annað framstykkið, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á öðru framstykkinu og prjónið lykkjur frá seinna framstykki = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur fram og til baka frá miðju að framan – gatamynstur er prjónað á framstykkjum og sléttprjón yfir aðrar lykkjur. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar og síðan er aukið út bæði fyrir fram- og bakstykki og ermar. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 28-28-30-30-32-32-32 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Air. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 9-10-10-11-11-12-13 sinnum (= 18-20-20-22-22-24-26 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 64-68-70-74-76-80-84 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRA FRAMSTYKKI: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja), prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 18-20-20-22-22-24-26 lykkjur) = 19-21-21-23-23-25-27 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn að hálsmáli. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 14-16-16-18-18-20-22 lykkjur slétt, prjónið A.1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1, 14-16-16-18-18-20-22 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 4-5-5-7-7-7-9 cm frá merki – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina, nú er aukið út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 5 lykkjur eru eftir, setjið 1 merki hér, prjónið A.2, en þegar 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið síðustu 3 lykkjur í A.2. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt fram að merki, haldið áfram með A.2, en þegar 3 lykkjur eru eftir er aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið síðustu 3 lykkjur í A.2. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 4-4-4-4-5-5-5 sinnum til viðbótar (= 8-8-8-8-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 25-27-27-29-30-32-34 lykkjur. Aukið hefur verið út 6-6-6-6-7-7-7 sinnum fyrir hálsmáli og stykkið mælist ca 9-10-10-12-13-13-15 cm frá merki. Í næstu umferð frá réttu, fitjið upp 15-15-16-16-16-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 40-42-43-45-46-48-50 lykkjur. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 8-8-8-10-11-11-12 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 1-2-2-2-2-2-3 cm. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 8 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið brugðið út umferðina. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið slétt fram að merki, haldið áfram með A.2, endið með 8 kantlykkjur að framan með i-cord. Stykkið mælist ca 10-11-11-13-14-14-16 cm frá merki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er prjónuð vinstri öxl meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 18-20-20-22-22-24-26 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.3, prjónið 14-16-16-18-18-20-22 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 14-16-16-18-18-20-22 lykkjur brugðið, prjónið A.3. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 4-5-5-7-7-7-9 cm frá merki – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina, nú er aukið út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.4, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið þær lykkjur sem eftir eru í A.4, setjið 1 merki hér, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið fyrstu 3 lykkjur í A.4, aukið út 1 lykkju til vinstri, haldið áfram með A.4 fram að merki, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 4-4-4-4-5-5-5 sinnum til viðbótar (= 8-8-8-8-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 25-27-27-29-30-32-34 lykkjur, en í síðustu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 15-15-16-16-16-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 40-42-43-45-46-48-50 lykkjur. Aukið hefur verið út 6-6-6-6-7-7-7 sinnum fyrir hálsmáli til viðbótar við lykkjur sem fitjaðar voru upp í lok umferðar og stykkið mælist ca 9-10-10-12-13-13-15 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 8-8-8-10-11-11-12 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 1-2-2-2-2-2-3 cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 8 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, haldið áfram með A.4 fram að merki, prjónið slétt út umferðina. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið brugðið þar til 8 lykkjur eru eftir, endið með 8 kantlykkjur að framan með i-cord. Stykkið mælist ca 10-11-11-13-14-14-16 cm frá merki. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman og prjóna á upp lykkjur fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 8 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið A.4 og takið frá merki eftir A.4, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 18-20-20-24-26-26-28 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 18-20-20-24-26-26-28 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp á undan ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt fram að merki og takið frá þetta merki, prjónið A.2 og kantlykkjur að framan eins og áður = 176-188-192-208-216-224-236 lykkjur. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT í lok umferðar – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið kantlykkjur að framan eins og áður = 198-198-206-210-218-230-234 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kantlykkjur að framan, gatamynstur og sléttprjón eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið sléttprjón, gatamynstur og kantlykkjur að framan eins og áður út umferðina = 184-196-200-216-224-232-244 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið með 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Á EFTIR UMFERÐ 4: Prjónið UMFERÐ 3 og 4 8-7-5-6-5-3-1 sinnum til viðbótar (= 16-14-10-12-10-6-2 umferðir prjónaðar). Það hefur verið aukið út alls 10-9-7-8-7-5-3 sinnum fyrir ermar = 38-38-34-40-40-36-34 lykkjur á hvorri ermi, 39-41-42-44-45-47-49 lykkjur á hvoru framstykki og 62-66-68-72-74-78-82 lykkjur á bakstykki = 216-224-220-240-244-244-248 lykkjur. Síðan eru lykkjur auknar út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, aukið er út á fram- og bakstykki 2 lykkjur á undan merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukningu fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermi – næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður út umferðina (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. það hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-6-7-10-14-17-19 sinnum (= 8-12-14-20-28-34-38 umferðir prjónaðar). Nú hefur verið aukið út alls 14-15-14-18-21-22-22 sinnum á ermum og 4-6-7-10-14-17-19 sinnum á fram- og bakstykki = 46-50-48-60-68-70-72 lykkjur á hvorri ermi, 43-47-49-54-59-64-68 lykkjur á hvoru framstykki og 70-78-82-92-102-112-120 lykkjur á bakstykki = 248-272-276-320-356-380-400 lykkjur. Útaukningu er nú lokið í stærð XL, XXL og XXXL – prjónið áfram frá ALLAR STÆRÐIR. Í stærð XS, S, M og L er nú aukið út eins og útskýrt er að neðan, síðan er prjónað áfram frá ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XS, S, M og L: Prjónið nú og aukið út á sama hátt, en í 4. Hverri umferð – næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður út umferðina (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og gatamynstur eins og áður með 8 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið með 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 2-2-3-1-0-0-0 sinnum (= 8-8-12-4-0-0-0 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 16-17-17-19-21-22-22 sinnum á ermum og 6-8-10-11-14-17-19 sinnum á fram- og bakstykki = 50-54-54-62-68-70-72 lykkjur á hvorri ermi, 45-49-52-55-59-64-68 lykkjur á hvoru framstykki og 74-82-88-94-102-112-120 lykkjur á bakstykki = 264-288-300-328-356-380-400 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: Ermin mælist ca 15-15-16-16-17-18-18 cm – þegar brotið er uppá peysuna tvöfalt við öxl, á stykkið að mælast ca 20-21-22-23-24-25-26 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist styttra en þetta, prjónið áfram að tilgreindu máli án útaukningar. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 45-49-52-55-59-64-68 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-54-54-62-68-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 74-82-88-94-102-112-120 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 50-54-54-62-68-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 45-49-52-55-59-64-68 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-196-212-224-244-264-284 lykkjur. Prjónið fram og til baka í sléttprjóni, gatamynstri og kanta að framan í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 51-53-55-57-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 29-29-31-35-37-41-43 lykkjur jafnt yfir í umferð, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) - munið eftir útaukningunni þar til 9 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður = 209-225-243-259-281-305-327 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, eða fellið af með ítalskri affellingu. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-54-54-62-68-70-72 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-64-72-80-82-86 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-8-10-10-12-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-3-3-3-3-3-4 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 0-0-0-3-6-6-6 sinnum í ca 2. hverjum cm = 54-56-58-60-62-64-66 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-39-39-39-37-36-36 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-8-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 62-64-66-68-70-74-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, eða fellið af með ítalskri affellingu. Ermin mælist ca 42-42-42-42-41-40-40 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3, byrjið frá réttu við miðju að framan, prjónið upp 93-95-105-109-115-115-119 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og kant að framan eins og áður. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3-3-3-3½-3½-4-4 cm. Þegar kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, eða fellið af með ítalskri affellingu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ivoryleafcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 53 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.