Terri McKinnon skrifaði:
I've done one of your sweaters before and the neck was done in a round. Why do the instructions require one to knit the collar back and forth at the beginning of the pattern and then knit the yoke in a round? thanks!
18.04.2026 - 15:31DROPS Design svaraði:
Dear Terri, it's a different type of round neck. Most round necks that are worked in the round will have the same height on the back piece and front piece. Here, we first work the neck in the back piece and then cast on towards the front piece, so that it's slightly deeper in the front piece. Since we need to cast on stitches at the end of each row, we need to work back and forth. After working the neck, you will continue the rest of the piece in the round. Happy knitting!
18.04.2026 - 18:10
Louise skrifaði:
Hi! Im a bit confuse about the start of the pattern. I the picture above, there is a rib edge but it is not described in the written pattern. Is it forgotten or is the picture inaccurate? (or am i missing something) If missing, is it just to add 4 cm of ribbing before the back and forth shortrows?
08.04.2026 - 13:43DROPS Design svaraði:
Hi Louise, It looks like the ribbing for the neck has been left out of the pattern. So, yes you need to work 4 cm ribbing (knit 2, purl 2) before starting the short rows. Regards, Drops Team.
09.04.2026 - 07:49
Linda Bellon skrifaði:
Hab den Fehlergefunden
31.03.2026 - 12:20
Linda Bellon skrifaði:
Hallo, ich komme bei Größe m, nach den 9 x raglan zunahmen 1bis 4 (=9×12= auf 108 M +120 M + 12 Zunahmen) insgesamt 240 Maschen, nicht auf 296, wo ist mein Fehler?
31.03.2026 - 12:02DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Belion, nach dem Halsausschnitt sind es 140 M, dann wird man 6 Mal 8 Maschen zunehmen = 140+48=188 M. Dann wird man 18 Mal 4 Maschen (Vorder- + Rückenteil) + 9 Mal 4 Maschen (Ärmel) zunehmen = 188+(18x4)+(9x4) = 296 Maschen. Kann das Ihnen helfen? Viel Spaß beim Stricken!
07.04.2026 - 15:07
Linda Bellon skrifaði:
Hallo, ich komme bei Größe m, nach den 9 x raglan zunahmen 1bis 4 (=9×12= auf 108 M +120 M + 12 Zunahmen) insgesamt 240 Maschen, nicht auf 296, wo ist mein Fehler?
31.03.2026 - 12:01
Linda skrifaði:
Hallo, ab wann wird der Hals verbunden? Und ab wann wird in Runden gearbeitet und wenn der Hals anfangs in Reihen gearbeitet wird, wird er dann zusammengenäht? Danke für die Antwort.
29.03.2026 - 18:49DROPS Design svaraði:
Liebe Linda, man wird den Halsausschnitt in Hin- und Rückreihen stricken, bis die mittleren 8 bis 20 M (siehe Größe) angeschlagen sind, dann strickt man die Passe in der Runde. Viel Spaß beim Stricken!
07.04.2026 - 13:37
Kinga skrifaði:
Hi, Do you first work it flat and then you join in the round or is the whole thing worked in the round I'm slightly confused as I'm a beginner :)
13.03.2026 - 10:17DROPS Design svaraði:
Dear King, you first work the neckline back and forth casting on new stitches on each side, increasing for raglan at the same time; then when you have cast on the middle stitches on front piece, you continue in the round (increasing for raglan as before). Happy knitting!
13.03.2026 - 15:28
Gudrun skrifaði:
Danke für die schnelle Antwort. Jetzt habe ich es verstanden.
05.03.2026 - 11:25
Gudrun skrifaði:
Hallo, ich stricke den Pullover in Xl und habe ein Verständnisproblem bei den Ärmeln. In der Anleitung heißt es, alle 10 cm 4x abnehmen (das sind bei mir 40 cm) und dann weitersstricken bis zu einer Länge von 39 cm. Bitte klären Sie mich auf. Gruß Gudrun
04.03.2026 - 14:48DROPS Design svaraði:
Liebe Gudrun, zuerst stricken Sie 1 cm + 4 Runden (mit 2 Abnahmen) = ca 3 cm ab Aufteilung; die 1. Abnahme stricken Sie nach 3 cm, die 2. nach 13 cm, die 3. nach 23 cm und die 4. nach 33 cm, dann stricken Sie noch 5 cmù bis die 39 cm. Viel Spaß beim Stricken!
05.03.2026 - 10:17
Caroline skrifaði:
Merci pour votre réponse rapide 👍
13.02.2026 - 18:53
Midnight Tide Sweater#midnighttidesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð XS - XXXL.
DROPS 260-18 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA – þegar prjónað er fram og til baka: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LASKALÍNA – þegar prjónað er í hring: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Fyrst er hálsmálið prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður og fitjaðar eru upp nýjar lykkjur í hvorri hlið til að forma hálsmáli. Þegar hálsmálið hefur verið prjónað til loka, heldur berustykkið áfram hringinn með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÁLSMÁL: Fitjið upp 66-68-70-72-74-76-78 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú eru sett 4 merki í stykkið jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. UMFERÐ 1 (frá réttu): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 20-22-24-26-28-30-32 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt og setjið 1 merki á milli þessa 2 lykkja (= laskalykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 75-77-79-81-83-85-87 lykkjur. UMFERÐ 2 (frá röngu): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA), fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 76-78-80-82-84-86-88 lykkjur. UMFERÐ 3 (frá réttu): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 85-87-89-91-93-95-97 lykkjur. UMFERÐ 4 (frá röngu): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 86-88-90-92-94-96-98 lykkjur. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 3 sinnum til viðbótar. Það hefur verið aukið út 5 sinnum fyrir laskalínu og fitjaðar hafa verið upp 5 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í hvorri hlið = 116-118-120-122-124-126-128 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (frá réttu): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í lok umferðar = 132-136-140-144-148-152-156 lykkjur. Prjónið síðan berustykki í hring yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan. Það eru nú 32-34-36-38-40-42-44 lykkjur á bakstykki og á framstykki, 30 lykkjur á hvorri ermi og 2 lykkjur í hverri laskalínu. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón hringinn. Munið að fylgja prjónfestunni. Útaukning fyrir laskalínu heldur áfram þannig – ATH! Í stærð XS er hoppað yfir þennan kafla, haldið áfram frá ALLAR STÆRÐIR. UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 0-4-6-9-6-7-7 sinnum (= 0-8-12-18-12-14-14 umferðir prjónaðar) = 132-168-188-216-196-208-212 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 1. og 3. merki – lykkjum er ekki aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 10-9-9-8-11-12-14 sinnum (= 40-36-36-32-44-48-56 umferðir prjónaðar = 10-9-9-8-11-12-14 sinnum útaukning á ermum 20-18-18-16-22-24-28 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 252-276-296-312-328-352-380 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 26-28-30-31-34-37-41 sinnum á framstykki/bakstykki og 16-19-21-23-23-25-27 sinnum á ermum. Prjónið sléttprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist 24-26-28-29-31-34-38 cm, frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fram til og með fyrstu 2 laskalykkjurnar, setjið næstu 50-56-60-64-64-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 76-82-88-92-100-108-118 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 50-56-60-64-64-68-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu lykkjur frá framstykki = 76-82-88-92-100-108-118 lykkjur á framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-200-220-240-260 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 53-55-57-59-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 16-20-20-28-28-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 180-196-212-228-248-268-288 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust. Peysan mælist 57-59-61-63-65-67-69 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan og ca 62-64-66-68-70-72-74 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-56-60-64-64-68-72 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 56-62-68-72-74-80-84 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 0-10-10-10-10-5-3½cm alls 0-2-3-4-4-6-7 sinnum = 52-54-58-60-62-64-66 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-44-44-41-39-35-33 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-6-6-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 60-60-64-68-68-72-72 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 49-48-48-45-42-40-38 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp frá réttu innan við 1 lykkju ca 92 til 112 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 4, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) – stillið af að 2 lykkjur slétt í stroffi passi yfir 2 lykkjur slétt frá hverri laskalínu. Fellið af þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #midnighttidesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 260-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.