Monika Elisabeth skrifaði:
Guten Tag, Wieviel Wolle benötige ich für einen Pullover (Modell Magic Mist Sweater) für ein zweijähriges Kind? Vielen Dank im Voraus!
11.03.2026 - 16:30DROPS Design svaraði:
Liebe Monika, die Garnmenge für jede Größe finden Sie oben der Seite unter Tab "Anleitung", so in 2 Jahre brauchen Sie 150 g DROPS Air / 50 g das Knäuel = 3 Knäuel Air fûr die 1. Grösse. Viel Spaß beim Stricken!
12.03.2026 - 09:28
Sylvie skrifaði:
Bonjour. J'ai commencé ce pull mais n'y arrive pas avec les calculs et mon échantillon. Puis je le fais avec 2 aiguilles ? Avez vous des conseils ?
07.03.2026 - 13:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Sylvie, ce pull se tricote sur la base de 18 mailles x 24 rangs jersey = 10 x10cm; si vous avez une tension différente, il peut être plus simple de trouver un modèle correspondant (consultez les pulls ici et choisissez la tension que vous avez. Vous trouverez ici quelques astuces pour adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
09.03.2026 - 08:17
Hoffmann skrifaði:
Bonjour, c est un pull raglan, le shéma ne correspond pas !
28.02.2026 - 09:44DROPS Design svaraði:
Merci pour votre retour Mme Hoffmann, nous allons changer le schéma. Bon tricot!
02.03.2026 - 08:37
Julia skrifaði:
Yoke - placing markers not clear on where to place them?
04.02.2026 - 18:59DROPS Design svaraði:
Hi Julia, You insert the markers between stitches (not in a stitch). The first marker is at the beginning of the round, before the first stitch, then marker-2 is after 12 stitches (before the 13th stitch), then count the number of stitches for your size and insert marker-3 before the next stitch, etc.. Hope this helps. Regards, Drops Team.
05.02.2026 - 06:13
Vuokko Santalo skrifaði:
Hei Onko tässä puserossa etu- ja takaosa samanlaiset eli voi pitää molemmin päin? Puhutaan etu-ja takaosasta mutta en yhtäkkiä ohjeesta huomaa missä eroaa puolet🤔
29.01.2026 - 11:49DROPS Design svaraði:
Hei, etu- ja takakappale ovat samanlaiset.
29.01.2026 - 18:54
Magic Mist Sweater#magicmistsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 50-10 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALÍNU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALÍNU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 64-64-72-72-72-80-80 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan, prjónið 1 lykkju slétt þannig að umferðin byrjar á milli 2 lykkja slétt. Setjið 1 merki eftir fyrstu 22-22-24-24-24-26-26 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja slétt, þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki á undan fyrstu lykkju, teljið 12 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 20-20-24-24-24-28-28 lykkjur (= framstykki), Setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merki í/á undan næstu lykkju, það eru eftir 20-20-24-24-24-28-28 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar alls 12-13-14-15-15-16-17 sinnum = 160-168-184-192-192-208-216 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Munið að fylgja prjónfestunni. Útaukning fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 4-4-3-4-5-4-5 sinnum til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) = 176-184-196-208-212-224-236 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 16-17-17-19-20-20-22 sinnum á framstykki/bakstykki og 12-13-14-15-15-16-17 sinnum á ermum. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 13-14-14-16-17-17-18 cm frá merki við miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 36-38-40-42-42-44-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 52-54-58-62-64-68-72 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 36-38-40-42-42-44-46 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 52-54-58-62-64-68-72 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 116-120-128-136-144-152-160 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 26-29-33-37-40-42-44 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-12-16-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 128-132-144-152-160-168-176 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 30-33-37-41-45-47-49 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 33-36-40-44-48-50-52 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 36-38-40-42-42-44-46 lykkjur af þræði frá ermi í annarri hlið á stykki á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 5-6-6-6½-7½-8-9 cm alls 4-4-5-5-5-5-5 sinnum = 34-36-36-38-40-42-44 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist 18-24-27-30-33-37-41 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 2-4-4-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 36-40-40-40-44-44-48 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 22-28-31-34-38-42-46 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #magicmistsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.