Polar Playtime Sweater#polarplaytimesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa og húfa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Peysan er prjónuð ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki. Húfan er prjónuð í hring með röndum. Stærð 2 - 14 ára.
DROPS Children 50-17 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). RENDUR (á við um húfu): * Prjónið 2 umferðir með litnum Blá Þoka, prjónið 2 umferðir með litnum Storm Blár *, prjónið frá *-* að loka máli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Framstykkið er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram annarri hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hinni hliðinni á framstykki og lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmáli fyrir miðju að framan = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst er aukið út fyrir ermar og síðan er aukið út bæði fyrir fram- og bakstykki og ermar. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 28-32-32-34-34-38-38 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Merino Extra Fine. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 5-5-6-7-8-8-9 sinnum (= 10-10-12-14-16-16-18 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 48-52-56-62-66-70-74 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRI ÖXL: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inna að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horninu á öxlinni (= kantlykkja), prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 10-10-12-14-16-16-18 lykkjur) = 11-11-13-15-17-17-19 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-4-5-6-6-6-7 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-4-4-4-4-5-5 sinnum (= 6-8-8-8-8-10-10 umferðir prjónaðar) = 14-15-17-19-21-22-24 lykkjur. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykki prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 10-10-12-14-16-16-18 lykkjur), endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í hornið á öxlinni (= kantlykkja) = 11-11-13-15-17-17-19 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-4-5-6-6-6-7 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-4-4-4-4-5-5 sinnum (= 6-8-8-8-8-10-10 umferðir prjónaðar) = 14-15-17-19-21-22-24 lykkjur. Nú eru framstykki og bakstykkið sett saman og lykkjur prjónaðar upp fyrir ermar jafnframt því sem fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 kantlykkja færri), setjið 1 merki hér, prjónið upp 16-16-18-20-20-20-22 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá bakstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar slétt saman (= 1 kantlykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 kantlykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 16-16-18-20-20-20-22 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar slétt saman (= 1 kantlykkja færri), prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið síðustu 3 lykkjurnar slétt, endið með að fitja upp 18-20-20-22-22-24-24 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli = 124-132-144-160-168-176-188 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 7-7-8-9-9-9-10 cm frá merki. 2 cm af dýpt fyrir hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Prjónið síðan stykkið í hring. Prjónið hringinn þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 aukið út 1 lykkju til vinstri í byrjun á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri í lok á ermi, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður óbreyttur (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 5-6-6-7-8-9-10 sinnum (= 10-12-12-14-16-18-20 umferðir prjónaðar, það eru alls 26-28-30-34-36-38-42 lykkjur á hvorri ermi og 46-50-54-60-64-68-72 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 144-156-168-188-200-212-228 lykkjur. Prjónið síðan og aukið út bæði á ermum og á fram- og bakstykki – það er aukið út fyrir fram- og bakstykki innan við 2 lykkjur í hvorri hlið á framstykki/bakstykki – prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2: Prjónið slétt án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 10-10-11-10-10-10-10 sinnum (= 20-20-22-20-20-20-20 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 15-16-17-17-18-19-20 sinnum á ermum og 10-10-11-10-10-10-10 sinnum á fram- og bakstykki = 46-48-52-54-56-58-62 lykkjur á hvorri ermi og 66-70-76-80-84-88-92 lykkjur á framstykki/bakstykki = 224-236-256-268-280-292-308 lykkjur. Ermin mælist ca 10-11-11-11-12-13-13 cm – þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 14-14-15-16-17-17-18 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram að réttu máli án þess að auka út lykkjur. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fram að fyrsta merki, setjið næstu 46-48-52-54-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4 lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 66-70-76-80-84-88-92 slétt (= bakstykki), setjið næstu 46-48-52-54-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 66-70-76-80-84-88-92 lykkjur slétt (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-148-160-168-176-184-192 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 28-31-35-39-42-44-46 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 28-32-32-32-36-36-40 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 168-180-192-200-212-220-232 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 31-34-38-42-46-48-50 cm frá miðju að aftan og ca 33-36-40-44-48-50-52 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 46-48-52-54-56-58-62 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 50-52-56-58-60-62-66 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm mælt frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 4-4½-4½-5-5½-6-6 cm alls 5-5-6-6-6-6-7 sinnum = 40-42-44-46-48-50-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 19-22-26-30-32-35-39 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-6-8-10-8-10-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 48-48-52-56-56-60-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 22-25-29-33-36-39-43 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 2,5. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 76-84-88-96-96-100-104 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju, prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er e.t.v. jafnaður út – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Húfan er prjónuð í hring neðan frá og upp, byrjið með hringprjón og skipti yfir á sokkaprjóna eftir því sem lykkjum fækkar í toppi á húfunni. HÚFA: Fitjið upp 104-108-112-112-116-116-120 lykkjur á hringprjón 3 með litnum Blá Þoka DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 12-12-12-12-13-13-13 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8-12-10-10-8-8-6 lykkjur jafnt yfir = 96-96-102-102-108-108-114 lykkjur. Skiptið yfir í stuttan hringprjón 3,5 og prjónið sléttprjón hringinn með RENDUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 23-24-25-26-27-28-28 cm frá uppfitjunarkanti (það eru eftir ca 4-4-4-4-4-4-5 cm að loka máli. Munið að fylgja prjónfestunni. Í næstu umferð er fækkað um 6-6-2-2-8-8-4 lykkjur jafnt yfir = 90-90-100-100-100-100-110 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 10 merki í stykkið, merkin eru sett í umferð á milli 2 lykkja þannig að það eru 9-9-10-10-10-10-11 lykkjur á milli merkja. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju merki, prjónið þannig: Fækkið um 1 lykkju á eftir hverju merki með því að lyfta fyrstu lykkju yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 10 lykkjur færri í umferð). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 5 sinnum og síðan í hverri umferð alls 2-2-3-3-3-3-4 sinnum = 20 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem allar lykkjur eru prjónaðar saman 2 og 2 = 10 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eru eftir, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 27-28-29-30-31-32-33 cm frá toppi og niður. Brjótið upp neðstu 8-8-8-9-9-9-10 cm að réttu, saumið nokkur spor til að halda uppábrotinu á sínum stað. Húfan mælist ca 19-20-21-21-22-23-23 cm þegar brotið er uppá kantinn. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #polarplaytimesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 44 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 50-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.