Janneke skrifaði:
Ik heb een vraag bij de instructie ‘Als de mouwmeerderingen klaar zijn’, dus 1 alinea onder start van het Patroon. Er staat voor maat L dat je 25 meerderingen op de mouwen krijgt en 11 op het lijf, moet dat niet zijn 22 op de mouwen en 22 op het lijf, want dan kom je uit op 79 st per mouw en 117 per lijf (alles voor maat L)
07.12.2025 - 14:31DROPS Design svaraði:
Dag Janneke,
Je had 95 steken op elk pand en je meerdert in totaal 22 steken, dan kom je op 117 steken voor elk pand. Voor de mouwen had je 29 steken en je meerdert 50 steken, dus kom je op 79 steken voor de mouwen. 09.12.2025 - 21:32
Twilight Ridge Sweater#twilightridgesweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 260-38 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþræði þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1 BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2 FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmál við miðju að framan = framstykkin eru sett saman í eitt stykki. Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3 BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram annarri hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hinni hliðinni á framstykki = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur. Þegar prjónaðir hafa verið nokkrir cm á berustykki er mynstrið prjónað eins og útskýrt er í mynstri. 4 ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5 FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 35-35-37-37-39-39 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Lima. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 2 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 13-14-15-16-17-18 sinnum (= 26-28-30-32-34-36 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 87-91-97-101-107-111 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 26-28-30-32-34-36 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-7-8-8-8-8 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-6-6-6-7-7 sinnum (= 12-12-12-12-14-14 umferðir prjónaðar) = 32-34-36-38-41-43 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 10-11-12-12-13-13 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 8-9-10-10-11-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 1-2-2-2-2-2 cm. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri öxl prjónuð meðfram hægri bakstykkis skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 26-28-30-32-34-36 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-7-8-8-8-8 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-6-6-6-7-7 sinnum (= 12-12-12-12-14-14 umferðir prjónaðar) = 32-34-36-38-41-43 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist 10-11-12-12-13-13 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 8-9-10-10-11-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 1-2-2-2-2-2 cm. FRAMSTYKKI: Í næstu umferð (= rétta) eru axlirnar settar saman fyrir framstykki þannig: Prjónið slétt yfir 32-34-36-38-41-43 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 23-23-25-25-25-25 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið slétt yfir 32-34-36-38-41-43 lykkjur frá vinstri öxl = 87-91-97-101-107-111 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir framstykki þar til stykkið mælist 11-13-14-14-15-16 cm frá merki – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 2 lykkjur frá framstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 23-27-29-29-31-33 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 23-27-29-29-31-33 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki = 216-232-248-256-272-284 lykkjur. BERUSTYKKI: Síðan er stykkið prjónað í hring. UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 – aukið út 1 lykkju til vinstri í byrjun á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri í lok á ermi, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður óbreyttur. Prjónið þessa umferð 3 sinnum = 29-33-35-35-37-39 lykkjur á hvorri ermi og 85-89-95-99-105-109 lykkjur á framstykki/bakstykki = 228-244-260-268-284-296 lykkjur. Nú á að auka út fyrir ermar, jafnframt því sem mynstrið er prjónað, lestu því báða næstu kafla áður en prjónað er áfram. ÚTAUKNING ERMAR: UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi eins og áður – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður óbreyttur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 9-9-11-9-8-4 sinnum (= 18-18-22-18-16-8 umferðir prjónaðar. Aukið hefur verið út alls 12-12-14-12-11-7 sinnum á ermum = 47-51-57-53-53-47 lykkjur á hvorri ermi og 85-89-95-99-105-109 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 264-280-304-304-316-312 lykkjur. MYNSTUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5-5-5½-5½-6-6 cm frá þar sem fitjaðar voru upp 23-23-25-25-25-25 lykkjur í miðju að framan fyrir hálsmáli, prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið mynstur þannig: Prjónið A.1 hringinn yfir allar lykkjur jafnframt sem útaukningin heldur áfram eins og útskýrt er að ofan – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inni í mynstur. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar öll útaukning fyrir ermar hefur verið gerð til loka á á auka út bæði á ermum og á fram- og bakstykki (A.1 heldur áfram eins og áður), aukið er út bæði á fram- og bakstykki um 1 lykkju innan við merki þannig að það er 1 lykkja á milli útaukningar fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermar (þessi lykkja er prjónuð í sléttprjóni) – næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 eins og áður þar til 1 lykkja er eftir á framstykki á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt, færið merki yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 eins og áður fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 eins og áður þar til 1 lykkja er eftir á bakstykki á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 eins og áður fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. aukið hefur verið út um 1 lykkju hvoru megin við 1 lykkju í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2: Prjónið A.1 eins og áður án þess að auka út (lykkjan í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermar er prjónuð slétt). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 9-11-11-15-16-21 sinnum (= 18-22-22-30-32-42 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 21-23-25-27-27-28 sinnum á ermum og 9-11-11-15-16-21 sinnum á fram- og bakstykki = 65-73-79-83-85-89 lykkjur á hvorri ermi og 103-111-117-129-137-151 lykkjur á framstykki/bakstykki = 336-368-392-424-444-480 lykkjur. Ermin mælist ca 14-15-17-18-18-19 cm – þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 20-22-24-25-26-27 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-22-24-25-26-27 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 103-111-117-129-137-151 lykkjur í A.1 eins og áður (= framstykki), setjið næstu 65-73-79-83-85-89 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 103-111-117-129-137-151 lykkjur í A.1 eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 65-73-79-83-85-89 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 216-232-248-272-292-320 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn eins og áður þar til stykkið mælist ca 31-32-31-31-32-32 cm, mælt frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp undir ermi – stillið af að prjónaðir séu minnst 5 cm sléttprjón á eftir síðustu röð með mynstri. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 42-46-50-56-62-64 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 258-278-298-328-354-384 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm. ERMAR: Setjið 65-73-79-83-85-89 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 5-5-7-7-9-9 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 70-78-86-90-94-98 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 5-5-7-7-9-9 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið A.1 hringinn – gangið úr skugga um að mynstrið haldi rétt áfram eftir berustykkið. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur 5-8-11-11-12-13 sinnum í hverjum 8-5-3½-3-2½-2½ cm = 56-58-60-62-64-66 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-38-36-35-34 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 11-11-11-11-13-13 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 68-70-72-74-78-80 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 60-60-60-60-59-59 cm frá öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 98-100-108-108-114-114 lykkjur í kringum hálsmáli innan við 1 lykkju – lykkjurfjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) í 4-4-4-5-5-5 cm – passið uppá að 1 lykkja slétt í stroffi passi yfir 1 lykkju slétt frá skásettu axlalínunni. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #twilightridgesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 37 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 260-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.