Barbara skrifaði:
Buongiorno vorrei realizzare questo maglione colore blu scuro, non brillante ma non capisco la differenza tra ombra di mezzanotte 55 e blu navy scuro 56- -quale è la differenza ? grazie
04.03.2026 - 10:57DROPS Design svaraði:
Buonasera Barbara, per un'assistenza così personalizzata può scrivere al suo rivenditore DROPS di fiducia che le mostrerà le foto dei due colori. Buon lavoro!
04.03.2026 - 22:44
Muriel skrifaði:
Bonjour, je ne vois pas la différence entre les 2 idéogrammes de A1. La question est peut-être déjà posée mais je ne trouve pas en français. Merci de votre aide
14.02.2026 - 10:38DROPS Design svaraði:
Bonjour Muriel, effectivement, pour le 3ème symbole, on doit mettre les mailles devant et non derrière, correction faite, merci pour votre retour. Bon tricot!
16.02.2026 - 16:24
Aila Viola skrifaði:
Voiko ko.puseron tehdä puuvillalangasta?
12.02.2026 - 13:07DROPS Design svaraði:
Kyllä, valitse haluamasi lanka lankaryhmästä B.
12.02.2026 - 14:21
Maria skrifaði:
Ik heb nog nooit raglan gebreid normaal large, nu twijfel ik. toch maar gebruiken
04.02.2026 - 13:53
Freya skrifaði:
Hey, wo ist der Unterschied in der Zunahmen zwischen 1. und 3. bei A2/A3? Müsste ich nicht in der 3. Runde A1 stricken, um auf einen Zunahme von 8 Maschen in dieser Runde zu kommen? Mit A2/A3 komme ich irgendwie nur auf 4 Zunahmen in der 3. Runde. Danke vorab :)
03.02.2026 - 21:22DROPS Design svaraði:
Liebe Freya, in der 3. Runde, in der insgesamt 8 Maschen zugenommen werden, stricken Sie ja auch die 3. Runde von A.2 und A.3 und darin nehmen Sie je 2 Maschen zu, nicht nur eine. Die Symbole aus den schräg laufenden schwarzen Dreiecken besagen ja, dass Sie jeweils 1 Masche pro Symbol zunehmen. Somit kommen Sie dann auf 8 zugenommene Maschen insgesamt. Viel Spaß beim Weiterstricken!
04.02.2026 - 00:17
Vanessa skrifaði:
Hallo, ich habe eine Frage zu Muster A1 . In Runde 1 wird der Zopf gestrickt aber in Runde 2-4 nicht? Danke für Ihre Hilfe.
01.02.2026 - 22:21DROPS Design svaraði:
Liebe Vanessa, ja, das ist korrekt. In der 2. bis 4. Runde stricken Sie nur glatt rechts bzw. nehmen in der 3. Runde mit den Umschlägen zu. Viel Spaß beim Weiterstricken!
02.02.2026 - 11:34
Marie-Chantal skrifaði:
Bonjour que veut continuer en jersey A1 au tour 2 Merci
24.01.2026 - 19:02DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie-Chantal, vous tricotez les mailles du tour 2 comme vous les avez tricotées au tour 1, autrement dit, les mailles jersey en jersey et les mailles de A.1 en suivant le diagramme. Bon tricot!
26.01.2026 - 08:27
Svenja skrifaði:
Hallo , wie nehme ich 12 Maychen auf (an der Seite unter dem Arm), wenn ich nach der Passe die Maschen aufteilen oder stillege. Ich hoffe Sie können mir weiterhelfen. Viele Grüße.
24.01.2026 - 17:11DROPS Design svaraði:
Liebe Svenja, Sie schlagen Maschen wie beim normalen Maschenanschlag an, Sie stricken also so viele Maschen wie genannt und schlingen dann neue Maschen wie beim Beginn der Arbeit auf. Sie können sich dazu auch ein Video anschauen, das finden Sie im Kopf der Anleitung unter "Videos" ("Seitlich neue Maschen anschlagen" - ggf. müssen Sie noch mal einen Button anklicken, damit alle Videos angezeigt werden). Viel Spaß beim Weiterstricken!
26.01.2026 - 12:05
Mona skrifaði:
På mönstret ses inte att man stickar en fläta med raglan ökningen
21.01.2026 - 20:11
Mona skrifaði:
Jag undrar om man gör raglanökningen vartannat varv?
21.01.2026 - 20:09DROPS Design svaraði:
Hi Mona, firstly you increase sts for raglan every second round (8 increased sts per round). In the next stage, you increase every second round but you increase alternately 4 and 8 sts per round. Happy knitting!
30.01.2026 - 09:40
Frost Petal Sweater#frostpetalsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Puna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og sléttprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-15 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LASKALÍNA: Útaukning fyrir laskalínu er teiknuð inn í mynsturteikningu. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón ca frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-108-112-116-124-128-132 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Puna. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til stroffið mælist 2-2-2-3-3-3-4 cm. Setjið 1 merki í byrjun umferðar, stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 16-18-18-18-20-20-22 lykkjur (= ca hálft bakstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 17-17-17-17-19-19-19 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 33-35-37-39-41-43-45 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 17-17-17-17-19-19-19 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 17-17-19-21-21-23-23 lykkjur á eftir síðasta merki (= ca hálft bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út er út hvoru megin við laskalykkjurnar fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 1. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 2. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 3. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 4. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón að byrjun umferðar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og A.1 – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón fram að 3 lykkjum á undan 1. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón fram að 3 lykkjum á undan 2. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón fram að 3 lykkjum á undan 3. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón fram að 3 lykkjum á undan 4. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón að byrjun umferðar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og A.1 – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 6-8-10-10-9-10-9 sinnum, A.1 hefur verið prjónað 6-8-10-10-9-10-9 sinnum á hæðina (= 24-32-40-40-36-40-36 umferðir prjónaðar) = 200-236-272-276-268-288-276 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Síðan er prjónað og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 1. merki, prjónið A.2, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 2. merki, prjónið A.3, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 3. merki, prjónið A.2, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 4. merki, prjónið A.3, prjónið sléttprjón að byrjun umferðar (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og A.2/A.3 – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA: UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón fram að 3 lykkjum á undan 1. merki, prjónið A.2, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 2. merki, prjónið A.3, prjónið sléttprjón fram að 3 lykkjum á undan 3. merki, prjónið A.2, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 4. merki, prjónið A.3, prjónið sléttprjón að byrjun umferðar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og A.2/A.3 – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 7-6-5-6-8-8-11 sinnum, A.2/A.3 hefur verið prjónað 7-6-5-6-8-8-11 sinnum á hæðina (= 28-24-20-24-32-32-44 umferðir prjónaðar = 7-6-5-6-8-8-11 sinnum útaukning á ermum og 14-12-10-12-16-16-22 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 284-308-332-348-364-384-408 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 26-28-30-32-34-36-40 sinnum á framstykki/bakstykki og 19-22-25-26-26-28-29 sinnum á ermum. Prjónið síðan í sléttprjóni án þess að auka út, þar til stykkið mælist 21-22-24-25-25-27-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 43-47-49-51-56-59-65 slétt (ca= hálft bakstykki), setjið næstu 55-61-67-69-69-71-73 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-18-22-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 87-93-99-105-113-121-131 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 55-61-67-69-69-71-73 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-18-22-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 44-46-50-54-57-62-66 lykkjur slétt (= ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 190-206-222-238-262-286-310 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 8-10-12-14-18-22-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 41-44-46-47-48-50-51 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 40-44-52-54-56-56-64 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 230-250-274-292-318-342-374 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 43-46-48-50-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 47-50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 55-61-67-69-69-71-73 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-18-22-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 63-71-79-83-87-93-97 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-18-22-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 0-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 0-2-3-3-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkju í hverjum 11-8-5-4-3½-2½-2 cm alls 4-5-7-8-9-11-12 sinnum = 55-57-59-61-63-65-67 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-39-38-36-37-35-33 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 11-11-11-13-13-13-13 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 66-68-70-74-76-78-80 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 41-41-40-39-40-38-37 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostpetalsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.