Frost Petal Cardigan#frostpetalcardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Puna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og sléttprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-16 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LASKALÍNA: Útaukning fyrir laskalínu er teiknuð inn í mynsturteikningu A.1 til A.3 og er gerð frá réttu. Frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantar eru prjónaðir upp í hvorri hlið og í lokin eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hálsmáli og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BERUSTYKKI: Fitjið upp 106-110-114-118-126-130-134 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Puna. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Setjið eitt merki í byrjun umferðar (= miðja að framan), stykkið er nú mælt héðan. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og er miðjulykkja í A.1/A.2/A.3. Teljið 17-18-19-20-21-22-23 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 17-17-17-17-19-19-19 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 34-36-38-40-42-44-46 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki næstu lykkju, teljið 17-17-17-17-19-19-19 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru 17-18-19-20-21-22-23 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni og aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum um hvernig auka á út. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 1. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 2. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 3. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 4. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) og A.1 – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón fram að 3 lykkjum á undan 1. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón fram að 3 lykkjum á undan 2. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón fram að 3 lykkjum á undan 3. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón fram að 3 lykkjum á undan 4. merki, prjónið A.1, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) og A.1 – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið síðan UMFERÐ 1 og 4, þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er mynsturteikningin endurtekin á hæðina. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 6-8-10-10-9-10-9 sinnum (= 24-32-40-40-36-40-36 umferðir prjónaðar) = 202-238-274-278-270-290-278 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 1. merki, prjónið A.2, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 2. merki, prjónið A.3, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 3. merki, prjónið A.2, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 4. merki, prjónið A.3, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) og A.2/A.3. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón fram að 3 lykkjum á undan 1. merki, prjónið A.2, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 2. merki, prjónið A.3, prjónið sléttprjón fram að 3 lykkjum á undan 3. merki, prjónið A.2, prjónið sléttprjón fram að 2 lykkjum á undan 4. merki, prjónið A.3, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni) og A.2/A.3. Prjónið UMFERÐ 1 til 4, þegar A.2/A.3 hefur verið prjónað til loka er mynsturteikningin endurtekin á hæðina. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 7-6-5-6-8-8-11 sinnum (= 28-24-20-24-32-32-44 umferðir prjónaðar = 7-6-5-6-8-8-11 sinnum útaukning á ermum og 14-12-10-12-16-16-22 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 286-310-334-350-366-386-410 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 26-28-30-32-34-36-40 sinnum á framstykki/bakstykki og 19-22-25-26-26-28-29 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkjur í hvorri hlið án þess að auka út, þar til stykkið mælist 21-22-24-25-25-27-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 44-47-51-53-57-61-66 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 55-61-67-69-69-71-73 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-18-22-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 88-94-102-106-114-122-132 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 55-61-67-69-69-71-73 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-18-22-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 44-47-51-53-57-61-66 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-208-228-240-264-288-312 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 41-44-46-47-48-50-51 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 39-43-47-53-55-55-63 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 231-251-275-293-319-343-375, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 43-46-48-50-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 47-50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 55-61-67-69-69-71-73 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-18-22-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 63-71-79-83-87-93-97 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-18-22-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 0-2-3-3-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkju í hverjum 11-8-5-4-3½-2½-2 cm alls 4-5-6-8-9-11-12 sinnum = 55-57-59-61-63-65-67 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-39-38-36-37-35-33 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 11-11-11-13-13-13-13 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 66-68-70-74-76-78-80 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-3-3-3-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 41-41-40-39-40-38-37 cm frá skiptingunni. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp lykkjur meðfram vinstra framstykki á hringprjón 3, þ.e.a.s. byrjið nákvæmlega undir hálsmáli og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju þannig: Prjónið upp ca 109-117-121-127-129-135-139 lykkjur (þetta jafngildir ca 25 lykkjum á hverja 10 cm meðfram kanti – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 lykkjur + 1). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram þar til kantur að framan mælist 3-3-3-4-4-4-5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Notið hringprjón 3, byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp ca 109-117-121-127-129-135-139 lykkjur meðfram kanti á framstykki (prjónið upp jafn margar lykkjur og á vinstri kanti að framan og prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju garðaprjón) – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 lykkjur + 1). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar kantur að framan mælist ca 1½-1½-1½-2-2-2-2 cm, fellið af fyrir 6-6-6-7-7-7-7 HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Efsta hnappagatið á að vera ca 6-6½-7-5½-5½-6-5 cm frá toppi og neðsta hnappagatið á að vera ca 2-2½-1-2½-3½-2-1 cm frá neðri kanti – hin hnappagötin skiptast jafnt niður. Eftir hnappagötin heldur kanturinn að framan áfram á sama hátt og vinstri kantur að framan. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 127-131-135-143-157-161-165 lykkjur í kringum hálsmál frá réttu á hringprjón 3 (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1). Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með kant í hálsmáli, en eftir ca 1-1-1-1½-1½-1½-2 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin hnappagötin í hægri kanti að framan. Prjónið síðan þar til kantur í hálsmáli mælist ca 2-2-2-3-3-3-4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostpetalcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.