Hazelnut Harmony Sweater#hazelnutharmonysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-30 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN MERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur fyrir miðju á þessum 8 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-108-108-112-120 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegri). Prjónið 3 umferðir slétt (= rúllukantur), prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 35-36-37-39-39-41-43 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 3,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 21-21-21-23-23-25-25 lykkjur (= ermi), Setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 25-27-29-29-29-29-33 lykkjur (= framstykki), Setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 21-21-21-23-23-25-25 lykkjur (= ermi), Setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 25-27-29-29-29-29-33 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 5-8-5-15-20-18-13 sinnum (= 10-16-10-30-40-36-26 umferðir prjónaðar)= 136-164-144-228-268-256-224 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúin í sitt hvora áttina). UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 11-10-13-8-7-10-14 sinnum (= 44-40-52-32-28-40-56 umferðir prjónaðar = 11-10-13-8-7-10-14 sinnum útaukning á ermum og 22-20-26-16-14-20-28 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 268-284-300-324-352-376-392 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 16-18-18-23-27-28-27 sinnum á ermum og 27-28-31-31-34-38-41 á framstykki/bakstykki. Prjónið síðan í sléttprjóni án þess að auka út, þar til stykkið mælist 20-21-23-23-25-28-30 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki í stærð S, L, XL, XXL og XXXL (í stærð XS og M skiptist stykkið við laskalínurnar), þ.e.a.s. jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 0-1-0-3-4-5-4 fyrstu lykkjur í sléttprjóni (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 53-55-57-63-69-71-71 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 81-87-93-99-107-117-125 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 53-55-57-63-69-71-71 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 81-86-93-96-103-112-121 lykkjur í sléttprjóni (= 81-87-93-99-107-117-125 lykkjur á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 182-198-214-230-250-274-298 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 10-12-14-16-18-20-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki. Prjónið fram að fyrsta merkiþræði, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingunni, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við báða merkiþræðina – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 6. hverjum cm alls 3 sinnum = 194-210-226-242-262-286-310 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-48-50-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 22-24-24-26-28-30-34 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 216-234-250-268-290-316-344 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-5-5 cm fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-51-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 53-55-57-63-69-71-71 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-20-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 63-67-71-79-87-91-95 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 10-12-14-16-18-20-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-2-2-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-1½-1½-1-1 sinnum alls 5-6-7-10-13-14-15 sinnum = 53-55-57-59-61-63-65 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-44-43-43-42-39-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-5-5-5-5-5-5 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 58-60-62-64-66-68-70 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-47-46-47-46-44-42 cm frá skiptingunni. |
|
|
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hazelnutharmonysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.