Quiet Hours Cardigan#quiethourscardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Polaris eða 2 þráðum DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Á UNDAN MERKI: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir að merki. Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni (= 1 lykkja fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð. Á EFTIR MERKI: Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni (= 1 lykkja fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð og gerið hnappagat þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið uppsláttinn brugðið saman með næstu lykkju, uppslátturinn verður hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca ca 8½-9-7½-8-8-7-7 cm á milli hverra hnappagata. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjurnar eru prjónaðar upp í miðjunni undir erminni getur myndast lítið gat í opinu milli lykkjunnar frá fram- og bakstykki og erminni. Þú getur lokað þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli lykkjanna tveggja - þráðurinn er snúinn saman við fyrstu lykkjuna á milli fram- og bakstykkis og ermarinnar, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). Þegar fækkað er um 1 lykkju er lykkjum fækkað til skiptis á undan og á eftir merkiþræði. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 45-45-49-49-55-55-59 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Polaris eða 2 þráðum DROPS Snow – fitjið e.t.v. upp með ítalskri uppfitjun. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og kantlykkjur að framan með i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið eins og umferð 1 og 2 þar til kantur í hálsmáli mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm – stillið af að næsta umferð sé frá réttu. Setjið eitt merki innan við kant að framan í aðra hliðina, stykkið er nú mælt héðan. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að lykkjurnar séu prjónaðar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur er nú kallaðar fyrir laskalykkjur. Teljið 9-9-9-9-11-11-11 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 5-5-7-7-7-7-9 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 13-13-13-13-15-15-15 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 5-5-7-7-7-7-9 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru nú 9-9-9-9-11-11-11 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 0-1-1-1-1-2-2 lykkjur jafnt yfir hvort framstykki og 0-2-2-2-2-4-4 lykkjur jafnt yfir bakstykki, endið með 3 kantlykkjur að framan eins og áður = 45-49-53-53-59-63-67 lykkjur. – Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður. Skiptið yfir á sokkaprjón 12, prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu í leiðbeiningum að ofan hvernig auka á út, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið LASKALÍNA (= 8 lykkjur fleiri UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður – uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið til að koma í veg fyrir göt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 8-8-8-10-10-10-8 sinnum (= 16-16-16-20-20-20-16 umferðir prjónaðar) = 109-113-117-133-139-143-131 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður – uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið til að koma í veg fyrir göt. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri) UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður – uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið til að koma í veg fyrir göt. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 2-2-2-2-2-2-4 sinnum (= 8-8-8-8-8-8-16 umferðir prjónaðar = 2-2-2-2-2-2-4 sinnum útaukning á ermum og 4-4-4-4-4-4-8 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki) = 133-137-141-157-163-167-179 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 12-12-12-14-14-14-16 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 10-10-10-12-12-12-12 sinnum á ermum. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður án þess að auka út, þar til stykkið mælist 22-23-23-25-26-27-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að verða staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 22-23-23-25-27-28-30 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 25-25-27-31-31-31-33 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 2-2-6-6-8-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 39-41-41-45-47-49-53 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 25-25-27-31-31-31-33 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 2-2-6-6-8-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 22-23-23-25-27-28-30 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 87-91-99-107-117-125-133 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 44-47-47-48-50-52-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 20-22-24-26-28-30-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 107-113-123-133-145-155-165 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 7, prjónið 3 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 3 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5-6 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 48-51-52-54-56-58-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 51-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 25-25-27-31-31-31-33 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á sokkaprjóna / hringprjón 12 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 2-2-6-6-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 27-27-33-37-39-41-43 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 2-2-6-6-8-10-10 lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 0-0-1-2-2-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 1 lykkju til skiptis á undan og á eftir merkiþræði í hverjum 14-15-7-4-3½-4½-3 cm alls 3-3-5-7-8-6-8 sinnum = 24-24-26-26-27-29-29 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-39-40-38-37-37-35 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-5-6-6-7-7-7 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 30-30-32-32-34-36-36 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5-6 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-43-44-43-42-42-41 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #quiethourscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.