Miranda skrifaði:
Achterpand naald 3(=verkeerde kant) brei 4 averecht, meerder 1 steek richting rechts. Moet dat niet richting links zijn? Als ik de video bekijk van meerder steek richting rechts (verkeerde kant) is het breiwerk namelijk gespiegeld.
31.10.2025 - 12:31DROPS Design svaraði:
Dag Miranda,
Nee, dit moet rechts zijn. Er zijn overigens onlangs aanpassingen geweest in de beschrijving van de meerderingen voor de raglan bovenaan bij de instructies, misschien dat het nu iets duidelijker is
05.11.2025 - 19:37
Cloud Drift Cardigan#clouddriftcardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-32 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-8½-9-7½-8 cm milli hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja / mitt í þessum lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar fyrir lykkjufjölda og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1 BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2 FRAMSTYKKI: Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. 3 BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónið annað framstykkið, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á öðru framstykkinu og prjónið lykkjur frá seinna framstykki = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur fram og til baka frá miðju að framan. 4 ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5 FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 24-26-28-30-30-32-34 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 4 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 4 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 8-8-8-8-8-8-8 sinnum (= 16-16-16-16-16-16-16 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 56-58-60-62-62-64-66 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRA FRAMSTYKKI: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í hornið á öxlinni (= kantlykkja), síðan er prjónuð upp 1 lykkja í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 16-16-16-16-16-16-16) = 17-17-17-17-17-17-17 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn að hálsmáli. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-5-5-6-7-7-8 cm, aukið út lykkjur inn við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 4 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-5-5-5-6-6-6 sinnum (= 8-10-10-10-12-12-12 umferðir prjónaðar) = 21-22-22-22-23-23-23 lykkjur. Í lok næstu umferð frá réttu eru fitjaðar upp 12-12-13-14-13-14-15 nýjar lykkjur = 33-34-35-36-36-37-38 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu, fyrstu 6 lykkjurnar eru prjónaðar eins og KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan. Stykkið mælist ca 10-11-11-12-14-14-15 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 8-9-9-9-10-10-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-2-3-4-4-4 cm. Prjónið sléttprjón með kantlykkjum að framan eins og útskýrt er að ofan þar til hægra framstykki mælist 11-12-12-13-15-16-16 cm frá merki. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 16-16-16-16-16-16-16), endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í hornið á öxlinni (= kantlykkja) = 17-17-17-17-17-17-17 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-5-5-6-7-7-8 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-5-5-5-6-6-6 sinnum (= 8-10-10-10-12-12-12 umferðir prjónaðar) = 21-22-22-22-23-23-23 lykkjur. Í lok næstu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 12-12-13-14-13-14-15 nýjar lykkjur = 33-34-35-36-36-37-38 lykkjur. Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 10-11-11-12-14-14-15 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 8-9-9-9-10-10-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-2-3-4-4-4 cm. Prjónið sléttprjón með 6 kantlykkjur að framan með I-CORD – munið eftir útskýringu að ofan þar til vinstra framstykkið mælist 11-12-12-13-15-16-16 cm frá merki (endið eftir umferð frá röngu). Síðan eru framstykkin og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermi eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki hér, prjónið upp 16-18-18-20-22-24-24 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp á undan ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 16-18-18-20-22-24-24 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp á undan ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið kantlykkjur að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT lesið leiðbeiningar að ofan = 150-158-162-170-174-182-186 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður og brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón. Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið kantlykkjur að framan eins og áður = 154-162-166-174-178-186-190 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður út umferðina = 158-166-170-178-182-190-194 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður og brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður = 162-170-174-182-186-194-198 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður út umferðina = 166-174-178-186-190-198-202 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið með 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður án þess að auka út. Á EFTIR UMFERÐ 6: Prjónið umferð 5 og 6 3-3-2-2-0-0-0 sinnum til viðbótar (= 6-6-4-4-0-0-0 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 7-7-6-6-4-4-4 sinnum fyrir ermar = 30-32-30-32-30-32-32 lykkjur á hvorri ermi, 32-33-34-35-35-36-37 lykkjur á hvoru framstykki og 54-56-58-60-60-62-64 lykkjur á bakstykki = 178-186-186-194-190-198-202 lykkjur. Síðan á að auka út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, aukið er út á fram- og bakstykki 2 lykkjum á undan merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukninga fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermar – næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kantlykkjur að framan og sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið kantlykkjur að framan eins og áður (= 8 lykkjur fleiri og aukið hefur verið út í hvorri hlið um 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykki og erma). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 6 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 6-7-9-10-14-14-16 sinnum (= 12-14-18-20-28-28-32 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 13-14-15-16-18-18-20 sinnum á ermum og 6-7-9-10-14-14-16 sinnum á fram- og bakstykki = 42-46-48-52-58-60-64 lykkjur á hvorri ermi, 38-40-43-45-49-50-53 lykkjur á hvoru framstykki og 66-70-76-80-88-90-96 lykkjur á bakstykki = 226-242-258-274-302-310-330 lykkjur. Ermin mælist ca 12-13-14-15-17-17-19 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaður upp fyrir ermi - ATH: Þegar peysan er brotinn saman við öxlina, á stykkið að mælast ca 18-19-20-22-25-25-27 cm frá toppi á öxl og niður meðfram handvegi. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-20-21-22-25-25-28 cm frá toppi á öxl og niður meðfram handvegi. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 38-40-43-45-49-50-53 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 42-46-48-52-58-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 66-70-76-80-88-90-96 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 42-46-48-52-58-60-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 38-40-43-45-49-50-53 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 154-166-178-190-206-214-234 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 24-25-26-26-25-26-25 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroffið JAFNFRAMT sem aukið er út um 19-21-21-23-25-27-31 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan), prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) – munið eftir útaukningunni þar til 7 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og kantlykkjur að framan eins og áður = 173-187-199-213-231-241-265 lykkjur. Prjónið stroff og kant að framan í 3-3-3-4-4-5-5 cm, fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 42-46-48-52-58-60-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 48-54-56-62-68-72-80 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-8-10-10-12-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4-6 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm alls 0-1-1-2-3-3-4 sinnum = 42-46-48-52-54-58-60 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-40-39-38-36-36-34 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-6-6-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 48-52-54-58-62-66-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-43-42-42-40-41-39 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4, byrjið frá réttu við miðju að framan og prjónið upp ca 85-91-95-105-109-113-119 lykkjur í kringum hálsmál (passið uppá að prjónuð sé upp 1 lykkja í hverja kantlykkjur að framan), lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af aðeins laust. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #clouddriftcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 41 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.