Shams skrifaði:
" Work without increasing until piece measures 25-26-28-29-30-34-36 cm from shoulder when garment is folded on shoulder" I dont understand where I'm supposed to measure 28 cm from ? Please clarify
10.02.2026 - 13:56DROPS Design svaraði:
Hi Shams, You measure from the shoulder and down the armhole. Regards, Drops Team.
11.02.2026 - 07:02
Christine skrifaði:
Ça m'a beaucoup aidé ! J'ai trouvé mon erreur :) Merci
28.01.2026 - 23:09
Christine skrifaði:
Bonjour, Je tricote une taille S pourtant. Au stade que je vous ai énoncé dans ma première question j'ai déjà 239 mailles. Alors qu'avant de commencer l'empiècement j'avais le bon nombre de mailles... Je crois que je vais recommencer. J'ai très rarement des problèmes avec vos explications voir pas du tout. Merci
27.01.2026 - 13:50DROPS Design svaraði:
Bonjour Christine, pensez à bien vérifier votre nombre d'augmentation pr manche/dos/devant, et le nombre de mailles que vous avez pour chaque partie: 39 m pour les devants, 79 m pour le dos et 49 m pour les manches, cela vous aidera peut-être. Bon tricot!
28.01.2026 - 08:36
Christine skrifaði:
Bonsoir, Je ne comprends pas bien. 13 fois au total sur le rang 1 , on augmente de 8 mailles à chaque marqueur (maille raglan). ce qui fait sur 26 rang. D'après mon calcul 13x8 =104 mailles. C'est quoi ces 55 mailles ? Les 183 mailles correspondent au nombre de mailles d'un rang entier? Oh la la je ne comprends pas bien :( Merci pour votre réponse
26.01.2026 - 21:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Christine, les 183 mailles - en taille S - correspondent au nombre total de mailles que vous avez lorsque toutes les augmentations du raglan sont faites 13 fois: celles de l'encolure (12 m de chaque côté au total) et les 13 x du raglan (on augmente 1 m de chaque côté de chaque marqueur = 8 m par rang d'augmentations du raglan). Vous devez encore augmenter 6 x pour les manches et 12 x pour le dos /les devants: 183+(6x4)+(12x4)=255 m. Ou bien vous tricotez une autre taille? Bon tricot!
27.01.2026 - 09:05
Christine skrifaði:
Pourquoi quand je suis arrivée à la fin des augmentations pour l'empiècement j'ai 239 mailles et non 183 comme indiqué. Pourtant j'ai respecté les 4 cm depuis l'encolure + les 5 cm pour le point fantaisie. Merci pour votre réponse Bonne journée Christine JACQUEMIN
26.01.2026 - 08:56DROPS Design svaraði:
Bonjour Christine, avez-vous bien augmenté le bon nombre de mailles?Vous devez augmenter 13 fois au total pour le raglan (y compris les augmentations de l'encolure), soit 55 mailles + (12 m x 2 pour l'encolure) + (13 x 8 m pour le raglan) = 183 mailles. Bon tricot!
26.01.2026 - 09:29
Emese Angyal skrifaði:
Most válasszuk szét a testrészek és az ujjak szemeit.Az M -es méretnél lekötünk 44 szemet ,felveszünk a tűre 13 szemet,majd kötünk 85 szemet(háta)megint leemelünk a tűről 49 szemet,de itt a magyar fordításban már nem 13 szemet veszünk fel újra ,(hanem 49,bizonyára tévesen van írva)Elnézést a zavarásért,további szép estét!Köszönöm,hogy vagytok!
14.01.2026 - 18:14
Anna skrifaði:
Hi, absolutely loving the pattern so far but I'm not really sure about how to begin A.2. After finishing the rest of the body I am left with 199 stitches on my needles (for size medium) however I'm apparently supposed to increase 65 times during the first row of the rib (I'm assuming A.2). But should I be increasing only 29 times as that's how often I should work A.2? Or is that a separate row?
08.01.2026 - 23:40DROPS Design svaraði:
Hi Anna, You increase 65 stitches evenly on the first row of the rib (and we recommend that you increase in purled sections of the rib for the neatest finish). Then you begin A.2, which does have a yarn over but these are cancelled out when you slip 1 stitch and pass it over 2 knitted stitches in row 3. So there are no increases in A.2. Hope this helps. Regards, Drops Team.
09.01.2026 - 06:36
Ana skrifaði:
Question on the cuff and the bottom of the sleeve. are those kitted separately and then attached to the body and sleeve? My apologies, i am a new garment knitter is this Winter Bliss is so pretty. thank you.
08.01.2026 - 15:11DROPS Design svaraði:
Hi Ana, No, the rib at the bottom of the body and on the cuffs is continued in the round (with increases to give the effect shown in the photo). Regards, Drops Team.
09.01.2026 - 06:57
Jill Grande skrifaði:
Not sure how to read chart? Do you have written instructions?
16.12.2025 - 22:19DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Grande, we only have diagrams but you wll find how to read diagrams here. Happy knitting!
17.12.2025 - 17:41
Karen skrifaði:
Dat heb ik niet gedaan. Wat is de reden hiervoor? Groetjes
10.11.2025 - 21:15DROPS Design svaraði:
Dag Karen,
Je hoeft het telpatroon ook niet uit te knippen, maar ik heb het op die manier uitgelegd om aan te geven hoe je met het zwarte vakje om moet gaan.
12.11.2025 - 10:44
Winter Bliss Cardigan#winterblisscardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, áferðamynstri og háum kraga. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-17 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. Lykkjufjöldinn í mynsturteikningu A.2 er breytilegur á milli 9 og 10 lykkja vegna útaukninga og úrtöku í mynstri – allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp í mynstri gerir ráð fyrir að í A.2 séu 9 lykkjur. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð þannig að lykkjum fækkar í sléttri umferð. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkið situr í miðjulykkjunni), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu – fellið af fyrir 1 hnappagati þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið stroff eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Efsta hnappagatið er staðsett ca 3-3-2-3-4-3-2 cm frá kanti í hálsmáli, neðsta hnappagatið er staðsett ca 8-8-8-9-9-10-10 cm frá neðri kanti. Þau 4-4-5-5-5-5-5 næstu hnappagöt eru staðsett með jöfnu millibili með ca 9-9½-8½-8½-9-9-9½ cm á milli hnappagata. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli og prjónað er fram og til baka á hringprjóna – jafnframt því sem lykkjur eru fitjaðar upp í hvorri hlið í umferð að tilgreindum lykkjufjölda og hálsmálið hefur verið formað til loka. Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er hár kragi fram og til baka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÁLSMÁL: Fitjið 53-55-59-65-69-71-73 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 1-1-1-1-1-1-1 lykkju (= vinstra framstykki, setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 11-11-13-15-17-17-17 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 25-27-27-29-29-31-33 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 11-11-13-15-17-17-17 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það er 1-1-1-1-1-1-1 lykkja eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Prjónið fram og til baka – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli og aukið er út fyrir LASKALÍNA, jafnframt því sem prjónað er MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan með upplýsingum um hvernig auka á út og prjóna mynstur, þ.e.a.s. fyrst er prjónað sléttprjón þar til prjónaðir hafa verið nokkrir cm eftir að hálsmálið hefur verið formað til loka, síðan er prjónað mynstur. Munið að fylgja prjónfestunni. PRJÓNIÐ OG AUKIÐ ÚT ÞANNIG: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 9 lykkjur fleiri) = 62-64-68-74-78-80-82 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina eins og útskýrt er í LASKALÍNA), fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 1 lykkja fleiri) = 63-65-69-75-79-81-83 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 9 lykkjur fleiri) = 72-74-78-84-88-90-92 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 1 lykkja fleiri) = 73-75-79-85-89-91-93 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 10 lykkjur fleiri) = 83-85-89-95-99-101-103 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 2 lykkjur fleiri) = 85-87-91-97-101-103-105 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 10 lykkjur fleiri) = 95-97-101-107-111-113-115 lykkjur. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 2 lykkjur fleiri) = 97-99-103-109-113-115-117 lykkjur. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 6-6-8-8-8-9-9 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 14-14-16-16-16-17-17 lykkjur fleiri) = 111-113-119-125-129-132-134 lykkjur. UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið brugðið út umferðina (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 6-6-8-8-8-9-9 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 6-6-8-8-8-9-9 lykkjur fleiri) = 117-119-127-133-137-141-143 lykkjur. Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 5 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur, það eru 19-19-21-21-21-22-22 lykkjur á framstykki (ásamt laskalykkju), 37-39-39-41-41-43-45 lykkjur á bakstykki (ásamt laskalykkjum) og 21-21-23-25-27-27-27 lykkjur á ermum (innan við laskalykkjur). Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 3-4-4-5-3-4-2 cm frá þar sem hálsmálið var formað til loka. Nú á að prjóna mynstur jafnframt því sem útaukning heldur áfram eins og áður, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 fram að fyrsta merki, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju (laskalykkjur eru alltaf prjónaðar í sléttprjóni), prjónið A.1 fram að næsta merki (byrjið A.1 með sömu lykkju (annað hvort slétt lykkja eða brugðin lykkja) eins og A.1 endaði með á undan laskalykkju – þetta á við í hvert skipti sem prjónað er perluprjón á eftir laskalykkju), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1 fram að næsta merki, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1 fram að næsta merki, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga) : Prjónið A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður (munið eftir að laskalykkjur eru prjónaðar brugðið frá röngu og að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 10-13-14-16-20-14-18 sinnum, ásamt útaukningu í hálsmáli (= 20-26-28-32-40-28-36 umferðir prjónaðar). Nú eru 24-27-30-32-36-31-35 lykkjur á framstykkjum, 47-55-57-63-71-61-71 lykkjur á bakstykki og 31-37-41-47-57-45-53 lykkjur á ermum = 157-183-199-221-257-213-247 lykkjur. Prjónið síðan og aukið út þannig (mynstrið heldur áfram eins og áður): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður (munið eftir að laskalykkjur eru prjónaðar brugðið frá röngu og að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á UNDAN 1. og 3. merki í umferð og á EFTIR 2. og 4. merki í umferð (einungis er aukið út á framstykkjum/bakstykki – ekki á ermum = 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni eins og áður (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). Á EFTIR UMFERÐ 4: Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 7-6-6-6-4-9-8 sinnum (= 28-24-24-24-16-36-32 umferðir prjónaðar), aukið hefur verið út 7-6-6-6-4-9-8 sinnum á ermum og 14-12-12-12-8-18-16 sinnum á framstykkjum/bakstykki = 241-255-271-293-305-321-343 lykkjur. Öll útaukning hefur verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 24-25-26-28-28-32-34 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 17-19-20-22-24-23-26 sinnum á ermum = 38-39-42-44-44-49-51 lykkjur á framstykkjum (meðtalin laskalykkja), 75-79-81-87-87-97-103 lykkjur á bakstykki (meðtaldar laskalykkjur) og 45-49-53-59-65-63-69 lykkjur á ermum (innan við laskalykkjurnar). Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 25-26-28-29-30-34-36 cm frá öxl þegar stykkið er brotið saman á öxl (mynstrið heldur áfram eins og áður). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkinu er skipt upp fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að verða staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð þá skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 38-40-44-46-48-52-56 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 45-47-49-55-57-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-11-13-15-17-21-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 75-81-85-91-95-103-113 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 45-47-49-55-57-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-11-13-15-17-21-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 38-40-44-46-48-52-56 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 169-183-199-213-225-249-271 lykkjur Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 38-40-42-42-43-44-46 cm mælt frá hálsmáli við miðju að framan – stillið mælist ca 46-48-50-51-53-54-56 cm frá öxl – stillið af að prjónaðir séu minnst 5 cm sléttprjón á eftir síðustu rönd í áferðamynstri. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 59-63-65-78-84-87-92 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 228-246-264-291-309-336-363 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið A.2 alls 25-27-29-32-34-37-40 sinnum – munið eftir útaukningunni, prjónið 1 lykkju sléttprjón og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stroffið mælist ca 8-8-8-9-9-10-10 cm – endið eftir 3. eða 4. umferð í mynsturteikningu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 46-48-50-51-52-54-56 cm frá hálsmáli fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 45-47-49-55-57-57-59 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 9-11-13-15-17-21-23 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 54-58-62-70-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju af 9-11-13-15-17-21-23 nýjum lykkjum undir ermi – umferðin byrjar við merki. Prjónið A.1 hringinn – haldið áfram með mynstur frá berustykki. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-2-2-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-2-2-2-2 cm alls 0-0-2-4-4-4-4 sinnum = 50-54-54-58-62-64-68 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 34-33-33-32-33-28-26 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 22-18-27-23-28-26-31 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-72-81-81-90-90-99 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið A.2 alls 8-8-9-9-10-10-11 sinnum í hring á ermi – munið eftir útaukningunni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stroffið mælist 12-12-12-13-13-14-14 cm – endið eftir 3. eða 4. umferð í mynsturteikningu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 46-45-45-45-46-42-40 cm frá skiptingunni. HÁR KRAGI: Notið hringprjón 3,5, byrjið frá réttu við miðju að framan og prjónið upp ca 77-79-87-89-97-101-103 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið JAFNRAMT sem aukið er út jafnt yfir til 99-101-113-115-125-131-133 lykkjur – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1. Næsta umferð er prjónuð þannig frá réttu: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 9-10-11-12-12-13-13 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp lykkjur frá réttu meðfram vinstra framstykki og hálsmáli á hringprjón 3,5, prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið upp ca 113-117-123-127-129-135-139 lykkjur (þetta jafngildir ca 20 lykkjum á hverjum 10 cm meðfram kanti – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið áfram þar til kanturinn mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp lykkjur á sama hátt meðfram hægra framstykki og prjónið eins og vinstri kantur að framan, en þegar kanturinn að framan mælist ca 1 til 1½ cm, fellið af fyrir 6-6-7-7-7-7-7 HNAPPAGÖTUM jafnt yfir – lesið HNAPPAGAT í útskýringu að ofan. Eftir hnappagötin heldur kantur að framan áfram á sama hátt og vinstri kantur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterblisscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.