Winter Bliss Cardigan#winterblisscardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, áferðamynstri og háum kraga. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-17 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. Lykkjufjöldinn í mynsturteikningu A.2 er breytilegur á milli 8 og 9 lykkja vegna útaukninga og úrtöku í mynstri – allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp í mynstri gerir ráð fyrir að í A.2 séu 8 lykkjur. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjurnar eru prjónaðar upp í miðjunni undir erminni getur myndast lítið gat í opinu milli lykkjunnar frá fram- og bakstykki og erminni. Þú getur lokað þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli lykkjanna tveggja - þráðurinn er snúinn saman við fyrstu lykkjuna á milli fram- og bakstykkis og ermarinnar, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð þannig að lykkjum fækkar í sléttri umferð. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkið situr í miðjulykkjunni), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu – fellið af fyrir 1 hnappagati þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið stroff eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Efsta hnappagatið er staðsett ca 3-3-2-3-4-3-2 cm frá kanti í hálsmáli, neðsta hnappagatið er staðsett ca 8-8-8-9-9-10-10 cm frá neðri kanti. Þau 4-4-5-5-5-5-5 næstu hnappagöt eru staðsett með jöfnu millibili með ca 9-9½-8½-8½-9-9-9½ cm á milli hnappagata. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli og prjónað er fram og til baka á hringprjóna – jafnframt því sem lykkjur eru fitjaðar upp í hvorri hlið í umferð að tilgreindum lykkjufjölda og hálsmálið hefur verið formað til loka. Síðan er berustykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er hár kragi fram og til baka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÁLSMÁL: Fitjið 53-55-59-65-69-71-73 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 1-1-1-1-1-1-1 lykkju (= vinstra framstykki, setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 11-11-13-15-17-17-17 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 25-27-27-29-29-31-33 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 11-11-13-15-17-17-17 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það er 1-1-1-1-1-1-1 lykkja eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Prjónið fram og til baka – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli og aukið er út fyrir LASKALÍNA, jafnframt því sem prjónað er MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan með upplýsingum um hvernig auka á út og prjóna mynstur, þ.e.a.s. fyrst er prjónað sléttprjón þar til prjónaðir hafa verið nokkrir cm eftir að hálsmálið hefur verið formað til loka, síðan er prjónað mynstur. Munið að fylgja prjónfestunni. PRJÓNIÐ OG AUKIÐ ÚT ÞANNIG: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 9 lykkjur fleiri) = 62-64-68-74-78-80-82 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina eins og útskýrt er í LASKALÍNA), fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 1 lykkja fleiri) = 63-65-69-75-79-81-83 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 9 lykkjur fleiri) = 72-74-78-84-88-90-92 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 1 nýja lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 1 lykkja fleiri) = 73-75-79-85-89-91-93 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 10 lykkjur fleiri) = 83-85-89-95-99-101-103 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 2 lykkjur fleiri) = 85-87-91-97-101-103-105 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 10 lykkjur fleiri) = 95-97-101-107-111-113-115 lykkjur. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 2 lykkjur fleiri) = 97-99-103-109-113-115-117 lykkjur. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið slétt, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, fitjið síðan upp 6-6-8-8-8-9-9 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 14-14-16-16-16-17-17 lykkjur fleiri) = 111-113-119-125-129-132-134 lykkjur. UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið brugðið út umferðina (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), fitjið síðan upp 6-6-8-8-8-9-9 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar (= 6-6-8-8-8-9-9 lykkjur fleiri) = 117-119-127-133-137-141-143 lykkjur. Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 5 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 laskalykkjur, það eru 19-19-21-21-21-22-22 lykkjur á framstykki (ásamt laskalykkju), 37-39-39-41-41-43-45 lykkjur á bakstykki (ásamt laskalykkjum) og 21-21-23-25-27-27-27 lykkjur á ermum (innan við laskalykkjur). Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 3-4-4-5-3-4-2 cm frá þar sem hálsmálið var formað til loka. Nú á að prjóna mynstur jafnframt því sem útaukning heldur áfram eins og áður, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 fram að fyrsta merki, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju (laskalykkjur eru alltaf prjónaðar í sléttprjóni), prjónið A.1 fram að næsta merki (byrjið A.1 með sömu lykkju (annað hvort slétt lykkja eða brugðin lykkja) eins og A.1 endaði með á undan laskalykkju – þetta á við í hvert skipti sem prjónað er perluprjón á eftir laskalykkju), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1 fram að næsta merki, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1 fram að næsta merki, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkju, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga) : Prjónið A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður (munið eftir að laskalykkjur eru prjónaðar brugðið frá röngu og að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út fyrir laskalínu alls 10-13-14-16-20-14-18 sinnum, ásamt útaukningu í hálsmáli (= 20-26-28-32-40-28-36 umferðir prjónaðar). Nú eru 24-27-30-32-36-31-35 lykkjur á framstykkjum, 47-55-57-63-71-61-71 lykkjur á bakstykki og 31-37-41-47-57-45-53 lykkjur á ermum = 157-183-199-221-257-213-247 lykkjur. Prjónið síðan og aukið út þannig (mynstrið heldur áfram eins og áður): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður (munið eftir að laskalykkjur eru prjónaðar brugðið frá röngu og að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á UNDAN 1. og 3. merki í umferð og á EFTIR 2. og 4. merki í umferð (einungis er aukið út á framstykkjum/bakstykki – ekki á ermum = 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.1 með 1 lykkju í garðaprjóni eins og áður (uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). Á EFTIR UMFERÐ 4: Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 7-6-6-6-4-9-8 sinnum (= 28-24-24-24-16-36-32 umferðir prjónaðar), aukið hefur verið út 7-6-6-6-4-9-8 sinnum á ermum og 14-12-12-12-8-18-16 sinnum á framstykkjum/bakstykki = 241-255-271-293-305-321-343 lykkjur. Öll útaukning hefur verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 24-25-26-28-28-32-34 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 17-19-20-22-24-23-26 sinnum á ermum = 38-39-42-44-44-49-51 lykkjur á framstykkjum (meðtalin laskalykkja), 75-79-81-87-87-97-103 lykkjur á bakstykki (meðtaldar laskalykkjur) og 45-49-53-59-65-63-69 lykkjur á ermum (innan við laskalykkjurnar). Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 25-26-28-29-30-34-36 cm frá öxl þegar stykkið er brotið saman á öxl (mynstrið heldur áfram eins og áður). Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkinu er skipt upp fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að verða staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð þá skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 38-40-44-46-48-52-56 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 45-47-49-55-57-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-11-13-15-17-21-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 75-81-85-91-95-103-113 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 45-47-49-55-57-57-59 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-11-13-15-17-21-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 38-40-44-46-48-52-56 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 169-183-199-213-225-249-271 lykkjur Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 38-40-42-42-43-44-46 cm mælt frá hálsmáli við miðju að framan – stillið mælist ca 46-48-50-51-53-54-56 cm frá öxl – stillið af að prjónaðir séu minnst 5 cm sléttprjón á eftir síðustu rönd í áferðamynstri. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 58-68-68-78-82-90-92 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 227-251-267-291-307-339-363 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið A.2 alls 28-31-33-36-38-42-45 sinnum – munið eftir útaukningunni, prjónið 1 lykkju sléttprjón og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stroffið mælist ca 8-8-8-9-9-10-10 cm – endið eftir 3. eða 4. umferð í mynsturteikningu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 46-48-50-51-52-54-56 cm frá hálsmáli fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 45-47-49-55-57-57-59 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 9-11-13-15-17-21-23 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 54-58-62-70-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju af 9-11-13-15-17-21-23 nýjum lykkjum undir ermi – umferðin byrjar við merki. Prjónið A.1 hringinn – haldið áfram með mynstur frá berustykki. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-2-2-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-2-2-2-2 cm alls 0-0-2-4-4-4-4 sinnum = 50-54-54-58-62-64-68 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 34-33-33-32-33-28-26 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 22-18-26-22-26-24-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-72-80-80-88-88-96 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið A.2 alls 9-9-10-10-11-11-12 sinnum í hring á ermi – munið eftir útaukningunni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stroffið mælist 12-12-12-13-13-14-14 cm – endið eftir 3. eða 4. umferð í mynsturteikningu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 46-45-45-45-46-42-40 cm frá skiptingunni. HÁR KRAGI: Notið hringprjón 3,5, byrjið frá réttu við miðju að framan og prjónið upp ca 77-79-87-89-97-101-103 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju. Prjónið 1 umferð brugðið með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið JAFNRAMT sem aukið er út jafnt yfir til 99-101-113-115-125-131-133 lykkjur – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1. Næsta umferð er prjónuð þannig frá réttu: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 9-10-11-12-12-13-13 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp lykkjur frá réttu meðfram vinstra framstykki og hálsmáli á hringprjón 3,5, prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið upp ca 113-117-123-127-129-135-139 lykkjur (þetta jafngildir ca 20 lykkjum á hverjum 10 cm meðfram kanti – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið áfram þar til kanturinn mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp lykkjur á sama hátt meðfram hægra framstykki og prjónið eins og vinstri kantur að framan, en þegar kanturinn að framan mælist ca 1 til 1½ cm, fellið af fyrir 6-6-7-7-7-7-7 HNAPPAGÖTUM jafnt yfir – lesið HNAPPAGAT í útskýringu að ofan. Eftir hnappagötin heldur kantur að framan áfram á sama hátt og vinstri kantur. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterblisscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.