Quiet Storm Hood#quietstormhood |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð balaklava / lambhúshetta / hálsskjól með hettu úr 2 þráðum DROPS Melody. Stykkið er prjónað með evrópskri öxl, sléttprjóni og i-cord.
DROPS 261-8 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. 3 KANTLYKKJUR I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur þannig (= 3 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur þannig (= 3 lykkjur): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður á við að loka máli. Nú er framstykkið prjónað, framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmál hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað til loka niður á við. Þegar framstykkið hefur verið prjónað til loka er hettan prjónuð, fyrst er prjónaður kantur í stroffprjóni prjónað í hring í hálsmáli, síðan er hettan prjónuð fram og til baka að loka máli. Í lokin er hettan saumuð saman í toppinn. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 14-16-18 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum DROPS Melody. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 7-7-7 sinnum (= 14-14-14 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 42-44-46 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan í sléttprjóni og KANTLYKKJUR Í I-CORD í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til stykkið mælist 28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti. Skiptið yfir á hringprjón 6, prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 6-4-6 lykkjur jafnt yfir næstu 36-38-40 lykkjur, prjónið 3 kantlykkjur eins og áður = 48-48-52 lykkjur. Nú er prjónað stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 3 kantlykkjur eins og áður. Haldið áfram með stroff fram og til baka svona í 4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 32-34-36 frá uppfitjunarkanti. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út við handveg þannig: Notið hringprjón 7 og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 14-14-14 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjur i-cord yst við öxl (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-4-5 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið -kantlykkjur eru prjónaðar eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-5-5 sinnum (= 8-10-10 umferðir prjónaðar) = 18-19-19 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Notið hringprjón 7 og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 14-14-14 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjur i-cord yst við öxl (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-4-5 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið – kantlykkjur eru prjónaðar eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-5-5 sinnum (= 8-10-10 umferðir prjónaðar) = 18-19-19 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Nú eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægri og vinstri öxl sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 18-19-19 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 6-6-8 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan 18-19-19 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 42-44-46 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjur með i-cord í hvorri hlið þar til stykkið mælist 28-30-32 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, endið með umferð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 6, prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 6-4-6 lykkjur jafnt yfir næstu 36-38-40 lykkjur, prjónið 3 kantlykkjur eins og áður = 48-48-52 lykkjur. Nú er prjónað stroff (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 3 kantlykkjur eins og áður. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist 32-34-36 cm mælt frá innst við hálsmál og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 6 og 2 þræði DROPS Melody. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 56-60-64 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) – stillið stroffið af þannig að það séu 2 lykkjur brugðið við miðju að framan í hálsmáli og setjið eitt merki fyrir miðju í þessar 2 lykkjur. Prjónið stroff hringinn í 7-8-9 cm, ekki klippa þráðinn, hettan er nú prjónuð héðan. HETTA: Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið sléttprjón jafnframt sem í hverri brugðinni einingu er aukið út um 1 lykkju á milli brugðinna lykkja (aukið út með því að lyfta þræðinum upp á milli lykkja og prjónið nýju lykkjuna snúna slétt), prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir að merki fyrir miðju að framan, fellið af 6 lykkjur (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt) – fellið af með sléttum lykkjum (= miðja að framan), prjónið síðan í sléttprjóni og aukið út í brugðnu einingunum eins og áður fram þar sem umferðin byrjaði = 63-68-73 lykkjur. Klippið þráðinn. Héðan er nú stykkið mælt og prjónað er fram og til baka frá þar sem lykkjur voru felldar af við miðju að framan. Setjið eitt merki fyrir miðju í stykki (í stærð S/M og L/XL er merkið sett í miðjulykkju í umferð og í stærð M/L er merkið sett á milli 2 miðjulykkja (= miðja aftan á hettu), látið merkið fylgja áfram með í stykkinu – það er notað þegar auka á út / fækka lykkjum fyrir miðju aftan á hettunni. Nú er lykkjum fækkað í hvorri hlið (op fyrir andlit) og aukið er út fyrir miðju aftan á hettu. Prjónið frá miðju að framan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.1, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir að merki, aukið út 1 lykkju til vinstri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 í útskýringu að ofan, prjónið slétt að 3 lykkjum eftir merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið slétt þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið A.2. Fækkað er um 2 lykkjur og aukið er út um 2 lykkjur, lykkjufjöldinn verðu sá sami. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3 sinnum (= 6 umferðir prjónaðar). Nú hefur úrtakan verið gerð til loka, útaukning fyrir miðju að aftan heldur áfram. Prjónið þannig: UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið A.1, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru að merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt að 3 lykkjum eftir merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið A.2. Aukið út 2 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 2 sinnum (= 4 umferðir prjónaðar) = 67-72-77 lykkjur. Nú er útaukningu fyrir miðju að aftan lokið, prjónið sléttprjón fram og til baka með A.1 og A.2 í hvorri hlið eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 21-22-23 cm frá skiptingunni við miðju að framan (það eru eftir 8 cm að loka máli). Nú á að fækka lykkjum fyrir miðju aftan á hettu. Prjónið þannig: UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið A.1, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir að merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið slétt að 2 lykkjum fram hjá merki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt og steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir og prjónið A.2. Fækkað hefur verið um 2 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 5 og 6 alls 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 55-60-65 lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð frá réttu. Hettan mælist 29-30-31 cm frá skiptingunni við miðju að framan og 36-38-40 cm með meðtöldum kanti í hálsmáli. FRÁGANGUR: Nú á að sauma hettuna saman fyrir miðju að ofan. Brjótið hettuna saman við miðju við merkið fyrir miðju að aftan þannig að stykkið liggi með röngu á móti röngu. Notið lykkjuspor og saumið innan við affellingarkantinn. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #quietstormhood eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 261-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.