Rocky Beach Sweater#rockybeachsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-32 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu (= ný lykkja snýr til vinstri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu (= ný lykkja snýr til hægri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu (= ný lykkja snýr til vinstri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu (= ný lykkja snýr til hægri): Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1 BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2 FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmál við miðju að framan = framstykkin eru sett saman í eitt stykki. Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3 BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram annarri hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hinni hliðinni á framstykki = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur. 4 ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5 FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 24-24-26-26-28-30-30 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Melody. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 8-8-8-8-8-8-9 sinnum (= 16-16-16-16-16-16-18 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 56-56-58-58-60-62-66 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 16-16-16-16-16-16-18 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist ca 7-7-8-8-8-9-9 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-4-4-4-4 sinnum (= 8-8-8-8-8-8-8 umferðir prjónaðar) = 20-20-20-20-20-20-22 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 11-11-12-12-12-13-13 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 9-9-9-9-9-10-10 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-3-3-3-3-3 cm. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri öxl prjónuð meðfram hægri bakstykkis skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 16-16-16-16-16-16-18 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-8-9-9 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-4-4-4-4 sinnum = (8-8-8-8-8-8-8 umferðir prjónaðar) = 20-20-20-20-20-20-22 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist 11-11-12-12-12-13-13 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 9-9-9-9-9-10-10 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-3-3-3-3-3 cm. Setjið síðan hægri og vinstri öxl saman fyrir framstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: Í næstu umferð (= rétta) eru axlirnar settar saman fyrir framstykki þannig: Prjónið slétt yfir 20-20-20-20-20-20-22 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 16-16-18-18-20-22-22 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið slétt yfir 20-20-20-20-20-20-22 lykkjur frá vinstri öxl = 56-56-58-58-60-62-66 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir framstykki þar til stykkið mælist 12-12-13-13-14-14-15 cm frá merki. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1: Prjónið fyrstu 2 lykkjur frá framstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 18-18-20-20-22-22-22 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 18-18-20-20-22-22-22 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki = 144-144-152-152-160-164-176 lykkjur. BERUSTYKKI: Síðan er stykkið prjónað í hring. UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 – aukið út 1 lykkju til vinstri í byrjun á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri í lok á ermi, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður óbreyttur. Prjónið þessa umferð 2 sinnum = 22-22-24-24-26-26-26 lykkjur á hvorri ermi og 54-54-56-56-58-60-64 lykkjur á framstykki / bakstykki = 152-152-160-160-168-172-180 lykkjur. Síðan er prjónað í hring þannig: UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi eins og áður – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður óbreyttur. UMFERÐ 2: Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-4-3-4-2-1-1 sinnum (= 12-8-6-8-4-2-2 umferðir prjónaðar. Það hefur verið aukið út alls 8-6-5-6-4-3-3 sinnum á ermum = 34-30-30-32-30-28-28 lykkjur á hvorri ermi og 54-54-56-56-58-60-64 lykkjur á framstykki / bakstykki) = 176-168-172-176-176-176-184 lykkjur. Síðan á að auka út lykkjur bæði á ermum og fram- og bakstykki, aukið er út á fram- og bakstykki 2 lykkjur á undan merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukningu fyrir fram- og bakstykki og útaukningu á ermi, næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. það hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-8-9-12-13-17-18 sinnum (= 20-32-36-48-52-68-72 umferðir prjónaðar. Það hefur verið aukið út alls 13-14-14-18-17-20-21 sinnum á ermum og 5-8-9-12-13-17-18 sinnum á fram- og bakstykki = 44-46-48-56-56-62-64 lykkjur á hvorri ermi og 64-70-74-80-84-94-100 lykkjur á framstykki / bakstykki) = 216-232-244-272-280-312-328 lykkjur. Ermin mælist ca 13-14-14-18-17-20-21 cm – ATH: Þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 19-20-21-25-24-27-29 cm frá toppi á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist minna en þetta, er hægt að prjóna áfram að réttu máli án þess að auka út. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 64-70-74-80-84-94-100 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 44-46-48-56-56-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 64-70-74-80-84-94-100 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 44-46-48-56-56-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-152-164-176-188-208-224 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 23-24-25-23-25-22-24 cm, mælt frá þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp undir ermi. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 30-32-34-36-38-40-46 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 170-184-198-212-226-248-270 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm er fellt af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60-62 cm. ERMAR: Setjið 44-46-48-56-56-62-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 50-52-56-64-66-72-76 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 10-10-8-3½-3-2-2 cm alls 4-4-5-8-9-11-12 sinnum = 42-44-46-48-48-50-52 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-38-38-35-35-33-31 frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-10-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 50-52-56-58-58-60-62 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Ermin mælist ca 55-56-56-57-57-58-57 cm frá öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 74 til 92 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rockybeachsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.