Marshmallow Muse Cardigan#marshmallowmusecardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 3 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki, hringlaga affellingu og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-9-9-8½-8½-8½-9 cm á milli hverra hnappagata. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þessi samhverfa útaukning býr til 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1 - 4 að neðan: 1. Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið yfir fyrstu lykkju á vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni aftan við lyftu lykkjuna og inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Myndið nýja lykkju með uppslætti með þræðinum sem prjónað er með utan um hægri prjón og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndast 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppið fremri lykkjuboganum á vinstri prjóni af og prjónið síðan 1 lykkju slétt í fremri hlutann á hinum lykkjuboganum. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju. HRINGLAGA AFFELLING – (lykkjurnar eru teknar upp frá röngu og affellingin gefur hringlaga kant á réttu þannig að stykkið rúllast ekki upp): Affellingsumferð: Finnið lykkjuna sem liggur 2 umferðum beint fyrir neðan næstu lykkju á prjóni. Takið þessa lykkju upp í efsta lykkjubogann frá röngu og lyftið henni upp á vinstri prjón. Prjónið lykkjubogann og fyrstu lykkju slétt saman. * Takið upp næstu lykkju í lykkjubogann á sama hátt og prjónið hana saman með næstu lykkju í umferð. Fellið af með því að lyfta 1. lykkju yfir 2. lykkju *. Endurtakið frá *-* þar til allar lykkjur hafa verið felldar af. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 89-91-95-99-103-105-109 lykkjur á hringprjón 4,5 með 3 þráðum DROPS Kid-Silk og prjónið þannig: Frá réttu: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-CORD. Frá röngu: 7 kantlykkjur að framan með I-CORD, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-CORD. Prjónið þessar 2 umferðir 1 sinni til viðbótar (= 4 umferðir prjónaðar). Prjónið síðan þannig: Frá réttu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 7 kantlykkjur að framan. Frá röngu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 7 kantlykkjur að framan. Prjónið þessar 2 umferðir 1 sinni til viðbótar (= 4 umferðir prjónaðar). Setjið 1 merki innan við kant að framan í aðra hliðina á stykkinu (= miðja að framan), stykkið er núna mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 75-77-81-85-89-91-95 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 10-17-19-24-23-27-32 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið kant að framan eins og áður og munið eftir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan = 99-108-114-123-126-132-141 lykkjur í umferð. Prjónið 2-2-2-2-2-2-2 cm í sléttprjóni. Munið að fylgja prjónfestunni. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, 4 lykkjur sléttprjón, * 2 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING *, prjónið frá *-* alls 25-28-30-33-34-36-39 sinnum, prjónið 6 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 124-136-144-156-160-168-180 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3½-4 cm í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, * 3 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 25-28-30-33-34-36-39 sinnum, prjónið 7 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 149-164-174-189-194-204-219 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3-4 cm í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, * 4 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 25-28-30-33-34-36-39 sinnum, prjónið 7 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 174-192-204-222-228-240-258 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3-4 cm í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón * 5 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 25-28-30-33-34-36-39 sinnum, 7 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 199-220-234-255-262-276-297 lykkjur. Prjónið 3-3-3-3-3-3-4 cm í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, 2 lykkjur sléttprjón, * 6 lykkjur sléttprjón, aukið út 1 lykkju í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 25-28-30-33-34-36-39 sinnum, prjónið 8 lykkjur sléttprjón, prjónið kant að framan eins og áður = 224-248-264-288-296-312-336 lykkjur. Prjónið áfram í sléttprjóni og kanta að framan eins og áður án þess að auka út þar til berustykkið mælist 19-20-23-23-23-25-26 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 38-41-43-47-50-52-56 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 42-48-52-56-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 64-70-74-82-84-92-100 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 42-48-52-56-56-58-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 38-41-43-47-50-52-56 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 152-164-176-192-204-220-236 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 46-48-50-51-53-55-57 cm frá merki fyrir miðju að framan – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Fellið af kantlykkjur að framan með sléttum lykkjum frá réttu, fellið af með HRINGLAGA AFFELLING – lesið leiðbeiningar að ofan, fram þar til 7 lykkjur eru eftir, fellið kantlykkjur að framan af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist 47-49-51-53-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 42-48-52-56-56-58-62 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 48-54-60-64-66-70-74 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-8-8-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 15-11-5-4½-4-3½-3 cm alls 3-4-7-8-9-10-11 sinnum = 42-46-46-48-48-50-52 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 47-46-44-45-45-44-43 cm frá skiptingunni. Fellið af með hringlaga affellingu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #marshmallowmusecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.