Emanuela skrifaði:
Buongiorno, non tenete conto della domanda fatta poco fa, ho capito! Scusate grazie
11.01.2026 - 20:02
Emanuela skrifaði:
Buongiorno, avrei bisogno di capire per lo sprone cosa significa al giro 3 “aumentare per il raglan sul davanti e dietro - non sulle maniche”. Significa che devo aumentare sul davanti (2 aumenti) e sul dietro (2 aumenti) posizionati a caso e basta? Non devo aumentare ai lati delle maglie raglan? O devo aumentare solo ai lati di due maglie raglan? Se è così, quali sono le maglie raglan di fianco alle quali fare gli aumenti? Grazie!
11.01.2026 - 18:40DROPS Design svaraði:
Buongiorno Emanuela, le maglie del raglan sono quelle in cui vengono inseriti i segnapunti, come indicato nelle spiegazioni. Gli aumenti per il raglan si lavorano in momenti diversi sulle maniche e sul corpo. Buon lavoro!
17.01.2026 - 12:08
Carola skrifaði:
Nu har jag lyckats att ta mig fram till ärmarna. Jag förstår inte när det står SAMTIDIGT när armen mäter 1 cm från delningen minskas det mitt under armen. Vad är delningen? Vänligen Carola
07.01.2026 - 08:35DROPS Design svaraði:
Hej Carola. Delningen är när du delade arbetet till fram- och bakstycke och ärmar, dvs du minskar när arbetet mäter 1 cm från där du la upp nya maskor under ärmen. Mvh DROPS Design
07.01.2026 - 13:22
Jo Smith skrifaði:
Are you sure the stitch numbers are correct for dividing the yolk for size XL? They don't seem to add up. 12 +17+23+17+11 = 80 sts but we cast on 84sts 16sts decreased + 68 left = 84sts... I will add another stitch to each quarter which should correct it, but i do think maybe the pattern needs to be edited. Or am i losing the plot? Jo
03.01.2026 - 18:57DROPS Design svaraði:
Dear Jo, remember that you insert the markers in a stitch, not in between stitches. So you have: 12 stitches where you decrease 2, 1 stitch with 1st marker (raglan-stitch 1), 17 stitches where you decrease 4, 1 stitch with 2nd marker (raglan-stitch 2), 23 sts where you decrease 4, 1 stitch with 3rd marker (raglan-stitch 3), 17 sts where you decrease 4, 1 stitch with 4th marker (raglan-stitch 4), 11 sts where you decrease 2. 12+1+17+1+23+1+17+1+11 = 84 sts and 2+4+4+4+2 = 16 decreases = 68 sts. Happy knitting!
05.01.2026 - 00:10
Carola skrifaði:
Det som gör mig konfunderad är att det står så här: Varvets början är vid höger axel bak. Sätt 1 markör efter de första 30-30-32-32-34-34-34 maskorna på varvet (= ca mitt fram), arbetet ska mätas från denna markör. Det står att varvets början är vid höger axel bak och sedan står det att arbetet ska mätas vid markören mitt fram? Varifrån ska jag räkna/mäta?
11.12.2025 - 09:34DROPS Design svaraði:
Hej Carola, mærket er kun til at måle fra, så du kan sætte det foran eller bagpå som du vil :)
12.12.2025 - 08:25
Carola skrifaði:
Hej! Håller på att sticka oket och har kommit hit, storlek XL och jag har 108 maskor på rundstickan: VARV 3: Sticka slätstickning och öka till raglan på framstycket och på bakstycket - det ökas inte maskor på ärmarna (= 4 maskor ökade). Hur vet jag vilka raglanmaskor som tillhör ärmarna? Första gången jag stickar med raglan OCH rundsticka. Tacksam för svar snarast! Vänligen Carola
05.12.2025 - 14:39DROPS Design svaraði:
Hei Carola. Jo, det står under OK. Det settes 4 merker (=4 raglanlinjer som deler arbeidet i bakstykket, 1. erme, forstykke og 2. erme). Strikk og fell over 12 masker = ca halve bakstykket. Sett 1 merke i neste maske (1. raglanlinje). Strikk og fell over de neste 17 maskene (= 1. erme). Sett 1 merke i neste maske (2.raglanlinje). Strikk og fell over 23 maskene (= forstykke). Sett 1 merke i neste maske (3.raglanlinje). Strikk og fell over de neste 17 maskene (= 2. erme). Sett 1 merke i neste maske (4. raglanlinje). Strikk og fell over de resterende 11 maskene (= ca halve bakstykket). Se gjerne hjelpevideoene til oppskriften. mvh DROPS Design
08.12.2025 - 13:26
Nenne skrifaði:
När oket skall stickas ska det minskas maskor från 80 till 64. Men direktivet är att minska 12 maskor vilket blir 68 maskor samtidigt står det att det skall vara 21,17,21,17 maskor mellan raglanmarkörerna vilket blir 76 maskor totalt. Jag förstår verkligen inte och hoppas någon kan hjälpa mig.
21.10.2025 - 06:50DROPS Design svaraði:
Hej Nenne. Du har 80 maskor (storlek M) och minskar 2+4+4+4+2= 16 maskor. 80-16=64 maskor. Mellan markörerna har du då 8+13+17+13+9 maskor = 60 maskor. Räknar man med de maskor du satt markör i så blir det alltså 64 maskor. Mvh DROPS Design
21.10.2025 - 08:25
Winter Sprinkles Sweater#wintersprinklessweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, klauf í hliðum og háum kraga. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-8 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Fram- og bakstykkið skiptist síðan fyrir klauf í hvorri hlið og síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað hvort fyrir sig að loka máli fram og til baka. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-76-80-80-84-84-84 lykkjur á hringprjón 9 með DROPS Snow. Skiptið yfir á hringprjón 7 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegri). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið áfram þar til stykkið mælist 12-12-12-12-13-13-13 cm. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan, þetta er gert samtímis sem lykkjum er fækkað jafnt yfir í umferð. Merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Skiptið yfir á hringprjón 9, prjónið slétt yfir næstu 10-10-10-10-12-12-12 lykkjur og fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir (= ca hálft bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju (= laskalykkja), prjónið slétt yfir næstu 17 lykkjur og fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju (= laskalykkja), prjónið slétt yfir næstu 19-19-21-21-23-23-23 lykkjur og fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir (= framstykk), setjið 1 merki í næstu lykkju (= laskalykkja), prjónið slétt yfir næstu 17 lykkjur og fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju (= laskalykkja), prjónið slétt þær 9-9-11-11-11-11-11 lykkjur sem eftir eru og fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir (= ca hálft bakstykki) = 60-60-64-64-68-68-68 lykkjur í umferð. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 30-30-32-32-34-34-34 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út. UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur auknar út). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 5-5-5-6-5-3-5 sinnum (= 10-10-10-12-10-6-10 umferðir prjónaðar) = 100-100-104-112-108-92-108 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur auknar út). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki – ekki er aukið út yfir ermar (= 4 lykkjur auknar út). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 5-6-6-7-8-11-11 sinnum (= 20-24-24-28-32-44-44 umferðir prjónaðar = 5-6-6-7-8-11-11 sinnum útaukning á ermum og 10-12-12-14-16-22-22 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 160-172-176-196-204-224-240 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 15-17-17-20-21-25-27 sinnum á framstykki/bakstykki og 10-11-11-13-13-14-16 sinnum á ermum. Stykkið mælist nú ca 23-26-26-31-32-38-42 cm frá miðju að framan, mælt eftir kanti í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 24-26-26-29-32-36-38 lykkjur eins og áður (= ca hálft bakstykki, setjið næstu 33-35-35-39-39-41-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 47-51-53-59-63-71-75 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 33-35-35-39-39-41-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 23-25-27-30-31-35-37 lykkjur eins og áður (= ca hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 110-118-126-138-150-166-174 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið, fyrir miðju í nýjar lykkjur, merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf. Umferðin byrjar við annan merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 39-41-43-45-46-48-50 cm frá merki fyrir miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan öðrum merkiþræðinum, setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni, endurtakið við hinn merkiþráðinn. Síðan skiptist stykkið fyrir miðju í hvorum kaðli þannig: Setjið síðustu 55-59-63-69-75-83-87 lykkjur á þráð, prjónið síðan yfir fyrstu 55-59-63-69-75-83-87 lykkjur og aukið út 27-27-31-33-35-35-39 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 82-86-94-102-110-118-126 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff þannig (fyrsta umferð er frá röngu): * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroff svona fram og til baka í 12-12-12-12-13-13-13 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 51-53-55-57-59-61-63 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 58-60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. Prjónið á sama hátt yfir lykkjurnar frá bakstykki. ERMAR: Setjið 33-35-35-39-39-41-45 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 9 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 41-43-45-49-51-53-57 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í nýju lykkjurnar undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í ca hverjum 7-5½-4-3-3-2½-2 cm alls 3-4-4-6-6-6-7 sinnum = 31-31-33-33-35-37-39 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 37-35-35-31-29-24-21 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-13-11-11-13-11-13 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44-44-48-48-52 lykkjur, skiptið yfir á sokkaprjóna 7. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 10-10-10-10-11-11-11 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 47-45-45-41-40-35-32 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintersprinklessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.