Marit skrifaði:
Jeg strikker størrelse L og er ferdig med de 12 første omgangene. Jeg forstår ikke hvordan jeg skal fortsette. Skal jeg begynne på omgang 1 i mønsteret eller fortsette på omgang 13?
21.12.2025 - 17:11
Aurelia skrifaði:
Pour le rang 1 : c’est marquer À.1; a.2;a3; 2 m endroits cela signifie que lon doit tricoter tous les diagrammes en même temps ? Sur le 1er rang ?
12.12.2025 - 17:35DROPS Design svaraði:
Bonjour Aurélia, tout à fait, on tricote d'abord le 1er rang de chaque diagramme dans l'ordre indiqué, puis le 2ème rang, puis le 3ème rang et ainsi de suite. Retrouvez ici plus d'infos sur les diagrammes. Bon tricot!
15.12.2025 - 10:00
Aurelia skrifaði:
Bonjour, je voulais savoir comment on tricotait les diagramme j’ai du mal à comprendre tous les à.1 etc…
12.12.2025 - 13:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Aurélia, les différents points fantaisie sont décomposés en différents diagrammes que l'on va tricoter dans l'ordre indiqué dans les explications, et, si besoin, on les répète en hauteur; on lit les diagrammes de bas en haut; tous les rangs figurent dans les diagrammes, sur l'endroit, on les lit de droite à gauche et sur l'envers de gauche à droite. Retrouvez ici plus d'infos sur les diagrammes. Bon tricot!
12.12.2025 - 16:41
Elsie skrifaði:
Tack för svar! Jag stickar storlek M. Jag har stickat halskant resår (ribbe), 127 maskor. Därefter mönster: A1, A2, A3, A4 osv tills 12 varv stickade. Därefter: A1, A2, A1, A10 osv. Det skall stickas totalt 32 varv. Jag började på varv 1 igen. Var det rätt? Men A1, A2,A9, A8 har bara 20 varv enl mönstret. Vad gör jag när jag har stickat 20 varv? Jag skall ju sticka 32 varv enl mönsterbeskrivningen.
02.12.2025 - 10:31DROPS Design svaraði:
Hej Elsie, du fortsætter fra der hvor der står VARV 1: Sticka 7 framkantsm. A.1, A.2, A.1, A.10, 2 maskor räta osv. Så ja du starter om med A.1 osv igen :)
03.12.2025 - 07:43
Ineke skrifaði:
Na de eerste 12 naalden van het patroon staat er "Meerder nu voor de gerstekorrel tot de gewenste afmetingen. Maar hoeveel is dat voor L? Of moet ik gewoon de beschrijving volgen en komt het dan goed?
28.11.2025 - 09:53DROPS Design svaraði:
Dag Ineke,
Je volgt inderdaad gewoon de beschrijving. De paragraaf die begint met 'Meerder nu voor de gerstekorrel...' is eigenlijk een samenvattende paragraaf voor wat er volgt. In de beschrijving daarna staat hoe je daadwerkelijk verder moet breien.
30.11.2025 - 17:16
Elsie skrifaði:
Jag har stickat 12 varv och skall fortsätta med nästa mönsterinstruktion. Osäker hur jag skall göra. Skall jag fortsätta på varv 13 och vad gör jag när alla 20 varven är stickade?
21.11.2025 - 12:31DROPS Design svaraði:
Hei Elsie. Fint om du kan opplyse hvilken str. du strikker og hvilket diagram du mener. Vanligvis når man strikker etter diagram og det gjentar seg i høyden, så begynner du på 1. pinne i diagrammet når man har strikket et diagram i høyden. mvh DROPS Design
01.12.2025 - 09:44
CATHERINE VANHOOF skrifaði:
Merci beaucoup pour vos explications très claires! Tricotement vôtre
11.11.2025 - 16:44
Vanhoof Catherine skrifaði:
Je ne comprends pas pourquoi vous ne parlez que de rang 1 et rang 2. Il y a 20 rangs dans les diagrammes. Quand tricotons-nous les 18 rangs restants? Merci beaucoup de m'expliquer
10.11.2025 - 20:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vanhoof, lorsque l'on indique RANG 1 / RANG 2 pour les augmentations du raglan, ces rangs indiquent juste les rangs sur l'endroit = on va augmenter (et tricoter le point fantaisie comme indiqué) et les rangs sur l'envers (on n'augmente pas, on tricote juste les mailles sur l'envers), ces 2 rangs seront répétés un nombre de fois différent selon la taille (en fonction des augmentations nécessaires), mais en même temps, vous tricotez les diagrammes comme ils sont représentés, cette numérotation ne concerne que les augmentations, pas les rangs des diagrammes. Bon tricot!
11.11.2025 - 16:22
Marion skrifaði:
Kan ik dit patroon gebruiken om een trui in plaats van een vest te breien?
04.11.2025 - 21:41DROPS Design svaraði:
Dag Marion,
Helaas is er alleen een vest van dit patroon en geen versie voor een trui. Je bent natuurlijk vrij om het patroon zelf aan te passen.
05.11.2025 - 19:04
Tammy D skrifaði:
Where is the pattern/chart A.6? For double moss stitch I guess?
03.11.2025 - 18:53DROPS Design svaraði:
Hi Tammy, A.6 is the small diagram between 2 other diagrams in the 4th row of diagrams. And yes, it is for the double moss stitch. Regards, Drops team.
04.11.2025 - 06:50
Snowbound Romance Cardigan#snowboundromancecardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, i-cord, köðlum og tvöföldu perluprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-14 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2, A.8, A.10 og A.11). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8½-9-9-9½-9½ cm á milli hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkjuna með merki með því að prjóna 3 lykkjur saman þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkjunni með merki, prjónið 3 lykkjur brugðið saman (= 2 lykkjur færri). Þessi lykkja er nú lykkjan með merki og er síðan prjónuð brugðið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breytt er ef þörf krefur. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Það eru prjónaðir kaðlar á framstykki og á ermum, á bakstykki er einungis prjónað tvöfalt perluprjón. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 121-123-127-129-135-137-139 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Karisma eða DROPS Lima. Prjónið fyrstu umferð frá réttu jafnframt sem merki eru sett í umferðina á milli 2 lykkja þannig: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 19-19-21-21-21-21-21 lykkjur, setjið 1 merki í umferð á undan næstu lykkju (= framstykki), prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 19-19-19-19-21-21-21 lykkjur, setjið 1 merki í umferð á undan næstu lykkju (= ermi), prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 31-33-33-35-37-39-41 lykkjur, setjið 1 merki í umferð á undan næstu lykkju (= bakstykki), prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 19-19-19-19-21-21-21 lykkjur, setjið 1 merki í umferð á undan næstu lykkju (= ermi), prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 19-19-21-21-21-21-21 lykkjur og endið með 7 kantlykkjur að framan með i-cord (= framstykki). Öll merki sitja á milli 2 lykkja slétt, þessar 2 lykkjur eru núna kallaðar laskalykkjur og síðar á að auka út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru alltaf prjónaðar í sléttprjóni og sitja í skiptingunni á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Haldið áfram með stroff með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur í 4-4-4-4½-4½-5-5 cm. Setjið eitt merki að innanverðu í kant að framan í aðra hliðina á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. Síðasta umferð er prjónuð frá réttu. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4,5. Nú er prjónuð 1 umferð frá röngu JAFNFRAMT sem aukið er út á milli 4 merkja eins og útskýrt er (ATH – lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan eða laskalykkjurnar). Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið fram að fyrsta merki jafnframt sem aukið er út um 3-3-1-1-3-3-3 lykkjur jafnt yfir (= 29-29-29-29-31-31-31 lykkjur fyrir framstykki). Prjónið brugðið fram að næsta merki jafnframt sem fækkað er um 1 lykkju jafnt yfir þessar lykkjur (= 18-18-18-18-20-20-20 lykkjur fyrir ermi), prjónið brugðið fram að næsta merki jafnframt sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 33-35-35-37-39-41-43 lykkjur fyrir bakstykki), prjónið brugðið fram að næsta merki jafnframt sem fækkað er um 1 lykkju jafnt yfir þessar lykkjur (= 18-18-18-18-20-20-20 lykkjur fyrir ermi), prjónið brugðið yfir næstu 19-19-21-21-21-21-21 lykkjur jafnframt sem aukið er út um 3-3-1-1-3-3-3 lykkjur jafnt yfir, endið með 7 kantlykkjur að framan eins og áður (= 29-29-29-29-31-31-31 lykkjur fyrir framstykki) = 127-129-129-131-141-143-145 lykkjur í umferð. Nú á að prjóna MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, JAFNFRAMT er aukið hvoru megin við 2 laskalykkjurnar í hverri umferð frá réttu – útaukningar eru sýndar í mynsturteikningu og eru prjónaðar eins og útskýrt er í LASKALÍNA – í útskýringu að ofan. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.1, A.2, A.3, 2 lykkjur slétt, A.4, A.2, A.3, 2 lykkjur slétt, A.5, A.6 yfir næstu 29-31-31-33-35-37-39 lykkjur, A.7, 2 lykkjur slétt, A.4, A.8, A.3, 2 lykkjur slétt, A.4, A.8, A.9, 7 kantlykkjur að framan. UMFERÐ 2 (= ranga): Frá röngu eru mynstrið prjónað í gagnstæðri röð, það eru allaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 7 kantlykkjur að framan eins og áður í hvorri hlið – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar). Munið að fylgja prjónfestunni. Nú hefur A.3 og A.4 verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina og aukið hefur verið út alls 6 sinnum fyrir laskalínu. Það eru 30-30-30-30-32-32-32 lykkjur fyrir hvora ermi, 35-35-35-35-37-37-37 lykkjur fyrir hvort framstykki og 45-47-47-49-51-53-55 lykkjur fyrir bakstykki = 175-177-177-179-189-191-193 lykkjur. Síðan á að auka út í tvöföldu perluprjóni bæði á ermum og á bakstykki að loka máli, á framstykki er aukið út í köðlum – athugið að A.10 er aukið út í A.1 og A.2, á meðan A.11 er aukið út í A.8 og A.9. Þegar A.5 og A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina, er haldið áfram í tvöföldu perluprjóni (= A.6) eins og áður yfir þessar lykkjur og aukið er síðan út með A.5 og A.7 í tvöföldu perluprjóni. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.1, A.2, A.1, A.10, 2 lykkjur slétt, A.5, A.9, A.2, A.1, A.7, 2 lykkjur slétt, A.5, A.6 yfir næstu 41-43-43-45-47-49-51 lykkjur, A.7, 2 lykkjur slétt, A.5, A.9 A.8, A.1, A.7, 2 lykkjur slétt, A.11, A.9 A.8, A.9, 7 kantlykkjur að framan. UMFERÐ 2 (= ranga): Frá röngu eru mynstrið prjónað í gagnstæðri röð, það eru alltaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 7 kantlykkjur að framan eins og áður í hvorri hlið – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 16-16-16-16-18-18-18 sinnum (= 32-32-32-32-36-36-36 umferðir prjónaðar). Þegar A.10 og A.11 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina hefur verið aukið út alls 22-22-22-22-24-24-24 sinnum fyrir laskalínu. Það eru 62-62-62-62-68-68-68 lykkjur fyrir hvora ermi, 55-55-55-55-59-59-59 lykkjur fyrir hvort framstykki og 77-79-79-81-87-89-91 lykkjur fyrir bakstykki = 311-313-313-315-341-343-345 lykkjur. Nú er aukið út í tvöföldu perluprjóni við allar laskalínur. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, A.1, A.2, A.1, A.2, A.1, A.7, 2 lykkjur slétt, A.5, A.6 eins og áður yfir næstu 16-16-16-16-18-18-18 lykkjur, A.9, A.2, A.1, A.6 eins og áður yfir næstu 16-16-16-18-18-18 lykkjur, A.7, 2 lykkjur slétt, A.5, A.6 yfir næstu 73-75-75-77-83-85-87 lykkjur, A.7, 2 lykkjur slétt, A.5, A.6 eins og áður yfir næstu 16-16-16-16-18-18-18 lykkjur, A.9 A.8, A.1, A.6 eins og áður yfir næstu 16-16-16-16-18-18-18 lykkjur, A.7, 2 lykkjur slétt, A.5, A.9, A.8, A.9 A.8, A.9, 7 kantlykkjur að framan. UMFERÐ 2 (= ranga): Frá röngu eru mynstrið prjónað í gagnstæðri röð, það eru alltaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 7 kantlykkjur að framan eins og áður í hvorri hlið – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-7-8-6-6-7 sinnum (= 10-10-14-16-12-12-14 umferðir prjónaðar). Það eru 72-72-76-78-80-80-82 lykkjur fyrir hvora ermi, 60-60-62-63-65-65-66 lykkjur fyrir hvort framstykki og 87-89-93-97-99-101-105 lykkjur fyrir bakstykki = 351-353-369-379-389-391-401 lykkjur. Það hefur verið aukið út alls 27-27-29-30-30-30-31 sinnum fyrir laskalínu. Nú er ekki lengur aukið út á ermum, haldið áfram að prjóna mynstur eins og áður jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu einungis á framstykkjum/bakstykki. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið mynstur eins og áður jafnframt því sem aukið er út í tvöföldu perluprjóni á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki (= 4 lykkjur fleiri), endið með 7 kantlykkjur að framan. UMFERÐ 2 (= ranga): Frá röngu eru mynstrið prjónað í gagnstæðri röð, það eru alltaf prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og 7 kantlykkjur að framan eins og áður í hvorri hlið – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-2-2-3-5-8-9 sinnum (= 2-4-4-6-10-16-18 umferðir prjónaðar). Það eru 72-72-76-78-80-80-82 lykkjur fyrir hvora ermi, 61-62-64-66-70-73-75 lykkjur fyrir hvort framstykki og 89-93-97-103-109-117-123 lykkjur fyrir bakstykki = 355-361-377-391-409-423-437 lykkjur. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út 28-29-31-33-35-38-40 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 27-27-29-30-30-31-31 sinnum fyrir ermar. Prjónið e.t.v. mynstur og kanta að framan eins og áður án þess að auka út, þar til stykkið mælist 22-22-24-25-27-29-31 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 61-62-64-66-70-73-75 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 72-72-76-78-80-82-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-9-13-15-17-19-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 89-93-97-103-109-117-123 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 72-72-76-78-80-82-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-9-13-15-17-19-23 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 61-62-64-66-70-73-75 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 221-235-251-265-283-305-319 lykkjur. Prjónið mynstur og kanta að framan eins og áður – nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi eru prjónaðar inn í tvöfalt perluprjón (= A.6), stillið mynstrið af þannig að það haldi áfram frá berustykki yfir á fram- og bakstykki. Prjónið þar til stykkið mælist 47-49-51-53-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan – síðasta umferðin er prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð sléttprjón frá röngu með kanta að framan eins og áður JAFNFRAMT sem aukið er út um 30-36-40-48-48-54-62 lykkjur jafnt yfir (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan eða yfir kaðla) = 251-271-291-313-331-359-381 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff þannig: Prjónið kanta að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kanta að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 51-53-55-57-59-61-63 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 72-72-76-78-80-82-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 5-9-13-15-17-19-23 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 77-81-89-93-97-101-105 lykkjur. Setjið 1 merki í miðjulykkju undir ermi. Merkið fyrir miðju undir ermi er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferðina í lykkju með merki fyrir miðju undir ermi og haldið áfram með mynstur frá berustykki yfir ermi – lykkja með merki fyrir miðju undir ermi er alltaf prjónuð brugðið, hvoru megin við lykkju eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í tvöfalt perluprjón (= A.6). Þegar ermin mælist 1-1-1-2-2-3-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 8-5½-3½-3-2½-2-2 cm alls 5-7-10-11-12-13-14 sinnum = 67-67-69-71-73-75-77 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 36-37-35-35-32-31-30 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT sem aukið er út um 9-9-9-9-11-11-11 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kaðla) = 76-76-78-80-84-86-88 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 40-41-39-39-37-36-35 cm frá skiptingunn. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowboundromancecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.