Icy Pearls Sweater#icypearlssweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Flora eða DROPS Nord. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki, gatamynstri á framstykkjum, sléttprjóni á bakstykki og á ermum og i-cord kanti að framan. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-5 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). A.x og A.y sýnir 1 mynstureiningu í hverjum mynsturbekk. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist 6-6-7-8-8-7-9 cm frá þar sem hálsmálið var prjónað til loka. Fellið síðan af fyrir næstu 5 hnappagötum með ca 7-7½-7½-7½-7½-8-8 cm á milli hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli mynsturs og stroffs neðst á fram- og bakstykki. ATH: Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1 BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2 FRAMSTYKKI: Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni 3 BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónið annað framstykkið, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á öðru framstykkinu og prjónið lykkjur frá seinna framstykki = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur fram og til baka frá miðju að framan. 4 ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5 FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 44-44-44-44-44-44-44 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Flora eða DROPS Nord. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 13-13-15-15-15-17-17 sinnum (= 26-26-30-30-30-34-34 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 96-96-104-104-104-112-112 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRA FRAMSTYKKI: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 26-26-30-30-30-34-34 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn að hálsmáli. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 5-5-6-6-6-7-7 lykkjur jafnt yfir = 31-31-36-36-36-41-41 lykkjur. Prjónið síðan MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, A.1, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, A.1, 3 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 3-4-5-6-7-8-8 cm – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina, aukið út lykkjur fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, haldið áfram með A.1, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið, haldið áfram með A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í A.3 (aðeins ystu 18 lykkjurnar við hálsmál eru teiknaðar inn í A.3 frá byrjun, til að sýna útaukninguna í hálsmáli, mynsturteikning sýnir hvernig mynstrið heldur áfram innan við 3 lykkjur í sléttprjóni að hálsmáli). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, haldið áfram með A.1/A.3 þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, haldið áfram með A.3/A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 4: Prjónið UMFERÐ 3 og 4 8 sinnum til viðbótar (= 16 umferðir prjónaðar) = 41-41-46-46-46-51-51 lykkjur. Í lok næstu umferðar frá réttu eru fitjaðar upp 21 nýjar lykkjur = 62-62-67-67-67-72-72 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu, fyrstu 7 lykkjurnar eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN með I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í mynstri og brugðið eins og áður. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 9-10-11-12-13-14-14 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 8-8-9-10-10-11-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 1-2-2-2-3-3-3 cm. Prjónið mynstur eins og áður með 3 lykkjur sléttprjón að handvegi og 7 kantlykkjur að framan eins og útskýrt er að ofan, þar til hægra framstykkið mælist 10-11-12-13-14-15-15 cm frá merki (= ca 1 cm frá þar sem útaukning fyrir hálsmáli lauk). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstri öxl prjónuð meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 26-26-30-30-30-34-34 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 5-5-6-6-6-7-7 lykkjur jafnt yfir = 31-31-36-36-36-41-41 lykkjur. Prjónið síðan mynstur þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, A.2, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, A.2, 3 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 3-4-5-6-7-8-8 cm – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina, aukið út lykkjur fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, haldið áfram með A.2, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, haldið áfram með A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í A.3 (aðeins ystu 18 lykkjurnar við hálsmál eru teiknaðar inn í A.4 frá byrjun, til að sýna útaukninguna í hálsmáli, mynsturteikning sýnir hvernig mynstrið heldur áfram innan við 3 lykkjur í sléttprjóni að hálsmáli). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, haldið áfram með A.4/A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, haldið áfram með A.2/A.4 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 4: Prjónið UMFERÐ 3 og 4 8 sinnum til viðbótar (= 16 umferðir prjónaðar) = 41-41-46-46-46-51-51 lykkjur. Í lok næstu umferðar frá röngu eru fitjaðar upp 21 nýjar lykkjur = 62-62-67-67-67-72-72 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 9-10-11-12-13-14-14 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 8-8-9-10-10-11-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 1-2-2-2-3-3-3 cm. Prjónið mynstur eins og áður með 7 kantlykkjum að framan með i-cord við miðju að framan og 3 lykkjur sléttprjón að handvegi þar til vinstra framstykkið mælist 10-11-12-13-14-15-15 cm frá merki, endið með umferð frá röngu. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið mynstur þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 26-28-30-34-36-38-38 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 26-28-30-34-36-38-38 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur á hægra framstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið eins og áður þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður = 268-272-294-302-306-328-328 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan og mynstur eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið mynstur eins og áður þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður = 272-276-298-306-310-332-332 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið mynstur eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið mynstur eins og áður þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður (= 4 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. aukið hefur verið út um 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi) = 276-280-302-310-314-336-336 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið kant að framan, mynstur og brugðið eins og áður, án þess að auka út. Á EFTIR UMFERÐ 4: Prjónið umferð 3 og 4 9-6-6-4-2-0-0 sinnum til viðbótar (= 18-12-12-8-4-0-0 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 11-8-8-6-4-2-2 sinnum fyrir ermar = 48-44-46-46-44-42-42 lykkjur á hvorri ermi, 61-61-66-66-66-71-71 lykkjur á hvoru framstykki og 94-94-102-102-102-110-110 lykkjur á bakstykki = 312-304-326-326-322-336-336 lykkjur. Nú á að auka út bæði á ermum og á framstykkjum, aukið er út á framstykkjum 2 lykkjur á undan merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukning á framstykki og útaukning fyrir ermi – í næstu umferð er prjónað þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan og mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan fyrstu lykkju, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki (lykkjur eru ekki auknar út á bakstykki), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður (= 6 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. aukið hefur út um 1 lykkju hvoru megin á hvorri ermi og 1 lykkju á hvoru framstykki). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan, mynstur og brugðið eins og áður, án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-2-2-3-4-4 sinnum (= 4-4-4-4-6-8-8 umferðir prjónaðar) – ATH: Útauknar lykkjur á framstykki eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur á sama hátt og þegar aukið var út fyrir hálsmáli – passið uppá að það séu alltaf 2 lykkjur sléttprjón á milli mynstur og erma. Nú hefur verið aukið út alls 13-10-10-9-7-6-6 sinnum á ermum og 2-2-2-2-3-4-4 sinnum á fram- og bakstykki = 52-48-50-50-50-50-50 lykkjur á hvorri ermi, 63-63-68-68-69-75-75 lykkjur á hvoru framstykki og 94-94-102-102-102-110-110 lykkjur á bakstykki = 324-316-338-338-340-360-360 lykkjur. Síðan á að auka út bæði á ermum, framstykkjum og bakstykki, aukið er út á framstykkjum og bakstykki 2 lykkjur á undan merki þannig að það eru 2 lykkjur sléttprjón á milli útaukninga á framstykkjum / bakstykki og útaukningu fyrir ermi – næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan og mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. aukið hefur verið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan, mynstur og brugðið eins og áður án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-14-15-18-24-26-29 sinnum (= 20-28-30-36-48-52-58 umferðir prjónaðar). ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og áður þar til 62-62-72-72-79-89-89 lykkjur eru eftir í mynstri innan við kant að framan (mynstrið endar mismunandi í hlið eftir mismunandi stærðum, þ.e.a.s. mynstrið endar annað hvort með A.x + 2 lykkjur brugðið (séð frá réttu) eða A.y að hlið – þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni). Nú hefur verið aukið út 23-24-25-26-31-32-35 sinnum á ermum, 12-16-17-20-27-30-33 sinnum á framstykkjum og 10-14-15-18-24-26-29 sinnum á bakstykki = 72-76-80-86-98-102-108 lykkjur á hvorri ermi, 73-77-83-86-93-101-104 lykkjur á hvoru framstykki og 114-122-132-138-150-162-168 lykkjur á bakstykki = 404-428-458-482-532-568-592 lykkjur. Ermin mælist ca 13-14-14-15-18-19-20 cm – þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 18-19-20-22-25-26-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-20-21-22-25-26-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 73-77-83-86-93-101-104 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 72-76-80-86-98-102-108 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-12-14-18-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 114-122-132-138-150-162-168 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 72-76-80-86-98-102-108 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-12-14-18-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 73-77-83-86-93-101-104 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 272-292-314-334-364-400-420 lykkjur. Prjónið kant að framan, mynstur og sléttprjón eins og áður þar til stykkið mælist 26-27-28-29-27-28-28 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem lykkjur eru auknar út jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan), prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 1 lykkja slétt) yfir næstu 62-62-72-72-79-89-89 lykkjur og aukið jafnframt út 12-12-14-14-16-18-18 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur með því að auka út 2 lykkjur yfir hverja gataröð eins og útskýrt er í A.5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 134-154-156-176-192-208-228 lykkjur og aukið samtímis út 11-12-13-14-16-18-19 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (endið með 1 lykkju slétt), prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 1 lykkja slétt) yfir næstu 62-62-72-72-79-89-89 lykkjur og aukið samtímis út 12-12-14-14-16-18-18 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur með því að auka út 2 lykkjur yfir hverja gataröð eins og útskýrt er í A.5 (endið með 2 lykkjur brugðið á undan kanti að framan) og prjónið kant að framan eins og áður = 307-328-355-376-412-454-475 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2½-2½-2½-2½-3½-3½-3½ cm, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir eins og áður), síðan er fellt af með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 72-76-80-86-98-102-108 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-12-14-18-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 78-84-88-98-112-120-130 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-8-12-14-18-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT því sem ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 1-1-1-1-2-3-5 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur í hverjum 5-4-3½-3-2-1½-1½ cm alls 5-7-8-12-16-18-20 sinnum = 66-68-70-72-76-78-80 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-40-39-37-35-35 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 12-13-14-18-17-18-19 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 78-81-84-90-93-96-99 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2½-2½-2½-2½-3½-3½-3½ cm, prjónið 1 umferð slétt, fellið síðan af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 43-43-43-42-41-39-39 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 2,5, byrjið frá réttu fyrir miðju að framan, prjónið upp ca 129 til 141 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 3 + 1). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 3-3-3-3-4-4-4 cm – munið eftir að fella af fyrir síðasta hnappagatinu yfir hin í kanti að framan þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1 cm. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu yfir allar lykkjur, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #icypearlssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 38 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.