Spiced Cranberry Cardigan#spicedcranberrycardigan |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki, gatamynstri á bakstykki og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-11 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.4). Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu og fellið af fyrir hnappagati í brugðinni einingu – 1 hnappagat er gert þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið stroffprjón eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir 6-6-6-6-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir þegar kantur að framan mælist 1½ cm. Efsta hnappagatið er staðsett ca 6-7-7-8-8-7-8 cm frá kanti í hálsmáli, neðsta hnappagatið er staðsett ca 3-3-3-3-4-4-4 cm frá neðri kanti. Þau 4-4-4-4-4-4-4 hnappagöt sem eru eftir eru staðsett jafnt yfir með ca 7-7-7½-7½-7½-8-8 cm á milli hnappagata. ATH: Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1 BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2 FRAMSTYKKI: Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni 3 BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónið annað framstykkið, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á öðru framstykkinu og prjónið lykkjur frá seinna framstykki = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur fram og til baka frá miðju að framan. 4 ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5 FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 43-43-49-49-55-55-55 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði DROPS Alpaca eða 1 þræði DROPS Flora. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1, prjónið A.2 alls 1-1-1-1-2-2-2 sinnum, prjónið A.3, prjónið A.4, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 4 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.4, A.3, A.2 alls 1-1-1-1-2-2-2 sinnum og A.1, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 4 umferðir brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 13-13-13-14-14-14-15 sinnum (= 26-26-26-28-28-28-30 umferðir prjónaðar) – gatamynstrið heldur áfram á sama hátt eins og útskýrt er í mynsturteikningu – passið uppá að gataumferðin haldið áfram í réttri línu alla leiðina, á eftir síðustu útaukningu eru = 95-95-101-105-111-111-115 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRA FRAMSTYKKI: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í hornið á öxlinni (= kantlykkja), síðan er prjónuð upp 1 lykkja í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 26-26-26-28-28-28-30 lykkjur) = 27-27-27-29-29-29-31 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn að hálsmáli. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-5-6-7-7-8-8 cm, aukið út lykkjur inn við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu umferð í A.5, prjónið 4 lykkjur slétt (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið umferð 3 í A.5 (útaukningin er gerð með sléttum lykkjum á undan síðustu 4 lykkjum í umferð), prjónið 4 lykkjur slétt (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 4-4-4-4-5-5-5 sinnum (= 16-16-16-16-20-20-20 umferðir prjónaðar) = 35-35-35-37-39-39-41 lykkjur. Í lok næstu umferðar frá réttu eru fitjaðar upp 12-12-15-15-16-16-16 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli = 47-47-50-52-55-55-57 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu, fyrsta lykkjan er prjónuð í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 10-10-11-12-13-14-14 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 8-8-9-9-10-11-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-2-3-3-3-3 cm. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni við miðju að framan eins og útskýrt er að ofan þar til hægra framstykkið mælist 11-11-12-13-14-15-15 cm frá merki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er prjónuð vinstri öxl meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 26-26-26-28-28-28-30 lykkjur), endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í hornið á öxlinni (= kantlykkja) = 27-27-27-29-29-29-31 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-5-6-7-7-8-8 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið fyrstu umferð í A.6, prjónið slétt út umferðina (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið umferð 3 í A.6, prjónið slétt út umferðina (= 1 lykkja fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 4-4-4-4-5-5-5 sinnum (= 16-16-16-16-20-20-20 umferðir prjónaðar) = 35-35-35-37-39-39-41 lykkjur. Í lok næstu umferðar frá röngu eru fitjaðar upp 12-12-15-15-16-16-16 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli = 47-47-50-52-55-55-57 lykkjur.. Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 10-10-11-12-13-14-14 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 8-8-9-9-10-11-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-2-2-3-3-3-3 cm. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni við miðju að framan eins og útskýrt er að ofan þar til vinstra framstykkið mælist 11-11-12-13-14-15-15 cm frá merki, endið með umferð frá röngu. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. Framstykkin og ermarnar er prjónað í sléttprjóni, bakstykkið heldur áfram í mynstri. UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 28-28-30-34-36-38-40 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp á undan ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), haldið áfram með gatamynstur á bakstykki á sama hátt og áður (passið uppá að gatamynstrið haldi áfram í réttri línu alla leiðina) þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 28-28-30-34-36-38-40 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp á undan ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 241-241-257-273-289-293-305 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið mynstur eins og áður (þ.e.a.s. brugðið) á bakstykki fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir í umferð, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 245-245-261-277-293-297-309 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið mynstur eins og áður á bakstykki fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður út umferðina = 249-249-265-281-297-301-313 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið mynstur eins og áður (þ.e.a.s. brugðið) á bakstykki fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður út umferðina = 253-253-269-285-301-305-317 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið eins og áður fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið mynstur eins og áður á bakstykki fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merki yfir á hægri prjón, prjónið eins og áður út umferðina = 257-257-273-289-305-309-321 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, án þess að auka út. Á EFTIR UMFERÐ 6: Prjónið umferð 5 og 6 10-7-5-6-5-0-2 sinnum til viðbótar (= 20-14-10-12-10-0-4 umferðir prjónaðar). Það hefur verið aukið út alls 14-11-9-10-9-4-6 sinnum fyrir ermar = 56-50-48-54-54-46-52 lykkjur á hvorri ermi, 46-46-49-51-54-54-56 lykkjur á hvoru framstykki og 93-93-99-103-109-109-113 lykkjur á bakstykki = 297-285-293-313-325-309-329 lykkjur. Síðan eru lykkjur auknar út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, aukið er út á fram- og bakstykki á sama hátt og við hálsmál, en auknar eru út 3 lykkjur á undan merki þannig að það eru 3 lykkjur á milli útaukning fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermum (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á framstykkjum og á ermum og jafnóðum inn í mynstur á bakstykki) – næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir á framstykki á undan fyrsta merki, prjónið fyrstu umferð í A.5, prjónið 3 lykkjur slétt, merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið fyrstu umferð í A.6, prjónið mynstur eins og áður yfir bakstykkið þar til 6 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið fyrstu umferð í A.5, prjónið 3 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið fyrstu umferð í A.6, prjónið eins og áður út umferðina (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. það hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 7 lykkjur eru eftir á framstykki á undan fyrsta merki, prjónið umferð 3 í A.5 (þ.e.a.s. aukið er út slétt á undan 3 lykkjunum), prjónið 3 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið umferð 3 í A.6, prjónið mynstur eins og áður yfir bakstykkið þar til 7 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið umferð 3 í A.5, prjónið 3 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið umferð 3 í A.6, prjónið eins og áður út umferðina (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 4-6-8-8-10-12-14 sinnum (= 16-24-32-32-40-48-56 umferðir prjónaðar) = 361-381-421-441-485-501-553 lykkjur. A.5 og A.6 er nú lokið. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á framstykki á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður yfir bakstykkið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður út umferðina (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. það hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 3 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-0-2-1-3-1 sinnum (= 4-4-0-4-2-6-2 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 24-25-25-28-30-31-35 sinnum á ermum og 10-14-16-18-21-27-29 sinnum á fram- og bakstykki = 76-78-80-90-96-100-110 lykkjur á hvorri ermi, 56-60-65-69-75-81-85 lykkjur á hvoru framstykki og 113-121-131-139-151-163-171 lykkjur á bakstykki = 377-397-421-457-493-525-561 lykkjur. Ermin mælist ca 13-14-14-16-17-17-20 cm – ATH: Þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 19-19-20-22-24-25-27 cm frá toppi á öxl og niður meðfram handvegi. Mælist stykkið minna en þetta, prjónið þá að tilgreindu máli án útaukninga. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 56-60-65-69-75-81-85 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 76-78-80-90-96-100-110 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 113-121-131-139-151-163-171 lykkjur í mynstri eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 76-78-80-90-96-100-110 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 56-60-65-69-75-81-85 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 237-257-281-301-329-357-377 lykkjur. Setjið 1 merki í hvora hlið á fram- og bakstykki, fyrir miðju í 6-8-10-12-14-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Prjónið síðan eins og áður, þ.e.a.s. prjónið sléttprjón á framstykkjum með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og haldið áfram með mynstur á bakstykki eins og áður (prjónið mynstur eins langt og hægt er að merkjum í hvorri hlið – lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið þar til stykkið mælist ca 26-28-29-29-28-29-29 cm frá skiptingunni – stillið af að prjónaðar séu minnst 3 eða 5 umferðir sléttprjón eftir gataumferð). Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 43-51-51-55-59-67-71 lykkjur jafnt yfir í umferð, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) – munið eftir útaukningunni þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni = 280-308-332-356-388-424-448 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, prjónið 3 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur (brugðið frá röngu / slétt frá réttu = rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 3 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 76-78-80-90-96-100-110 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 82-96-90-102-110-116-128 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-3-3-4-4-5-5 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 3-3-3-4-2½-2½-1½ cm alls 4-4-4-8-11-11-16 sinnum = 70-72-76-78-80-84-86 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-40-38-36-37-35 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 10-12-12-14-16-16-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 80-84-88-92-96-100-100 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm eru prjónaðar 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 43-43-43-41-40-41-39 cm frá skiptingunni. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Notið hringprjón 3, byrjið frá réttu og prjónið upp lykkjur meðfram vinstra framstykki innan við 1 kantlykkju þannig: Prjónið upp ca 136-140-144-152-156-156-164 lykkjur (þetta jafngildir ca 31 lykkju á hverja 10 cm meðfram kanti – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp lykkjur á sama hátt meðfram hægra framstykki og prjónið hægri kant að framan á sama hátt og vinstri kant að framan, en þegar kantur að framan mælist ca 1 til 1½ cm, er fellt af fyrir 6 hnappagötum jafnt yfir – lesið útskýringu HNAPPAGAT að ofan. Eftir hnappagötin heldur kanturinn að framan áfram á sama hátt og vinstri kantur að framan. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 2,5, byrjið frá réttu fyrir miðju að framan og prjónið upp lykkjur meðfram hálsmáli innan við 1 kantlykkju þannig: Prjónið upp ca 132-136-144-148-164-168-168 lykkjur (passið uppá að prjónuð sé upp 1 lykkja í hverja umferð yfir kanta að framan – fjöldi lykkja á að vera deilanlegur með 4). Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en eftir ca 1-1½ cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin hnappagötin í hægri kanti að framan. Prjónið síðan þar til kantur í hálsmáli mælist ca 3-3-3-4-4-4-4 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið 3 umferðir sléttprjón fram og til baka yfir allar lykkjur (= rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 3 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #spicedcranberrycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 39 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.