DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af mjúku merino garni!
Product image DROPS Melody yarn
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5896.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2526

Misty Stone Cardigan

Prjónuð peysa með stuttum ermum úr 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki. Stærð XS - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 264-31

#mistystonecardigan

DROPS Design: Mynstur ml-131
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
200-250-250-250-300-350-350 gr litur 04, Grár

Eða notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-250-300-350-350 gr litur 03, Grár

TÖLUR:
DROPS TALA NR 710: 6 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk með prjóna nr 5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5896.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU (= ný lykkja snýr til vinstri):
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU (= ný lykkja snýr til hægri):
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU (= ný lykkja snýr til vinstri):
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU (= ný lykkja snýr til hægri):
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR ERMI:
Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu – 1 hnappagat er gert þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið stroffprjón eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat.
Fellið af fyrir 5-5-5-5-5-5-5 hnappagötum jafnt yfir þegar kantur að framan mælist 1½ cm.
Efsta hnappagatið er staðsett ca 7-7-8-8-8-9-9 cm frá kanti í hálsmáli, neðsta hnappagatið er staðsett ca 5-5-5-6-6-7-7 cm frá neðri kanti. Þau 4-4-4-4-4-4-4 hnappagöt sem eru eftir eru staðsett jafnt yfir með ca 8-8½-8½-8½-9-9-9½ cm á milli hnappagata.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5.
1
BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl.
2
FRAMSTYKKI: Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni
3
BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig:
Prjónið annað framstykkið, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á öðru framstykkinu og prjónið lykkjur frá seinna framstykki = síðan er berustykkið prjónað yfir allar lykkjur fram og til baka frá miðju að framan.
4
ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum.
5
FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður fram og til baka.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 26-28-30-32-32-34-36 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 8-8-8-8-9-9-9 sinnum (= 16-16-16-16-18-18-18 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 58-60-62-64-68-70-72 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í hornið á öxlinni (= kantlykkja), síðan er prjónuð upp 1 lykkja í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 16-16-16-16-18-18-18 lykkjur) = 17-17-17-17-19-19-19 lykkjur fyrir öxl.
Setjið 1 merki í stykkið inn að hálmáli. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu.
Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-6-7-8 cm, aukið út lykkjur inn við hálsmál þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-5-5-5-6-6-6 sinnum (= 8-10-10-10-12-12-12 umferðir prjónaðar) = 21-22-22-22-25-25-25 lykkjur. Í lok næstu umferðar frá réttu eru fitjaðar upp 8-8-9-10-9-10-11 nýjar lykkjur = 29-30-31-32-34-35-36 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu – ysta lykkja inn við hálsmál er prjónuð í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. Stykkið mælist ca 10-11-12-12-13-14-15 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 8-8-9-9-10-10-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-3-3-3-3-4-4 cm.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni við hálsmál, þar til hægra framstykki mælist 11-13-13-14-15-16-16 cm frá merki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er prjónuð vinstri öxl meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 16-16-16-16-18-18-18 lykkjur), endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í hornið á öxlinni (= kantlykkja) = 17-17-17-17-19-19-19 lykkjur fyrir öxl.
Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu.
Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-6-7-8 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-5-5-5-6-6-6 sinnum (= 8-10-10-10-12-12-12 umferðir prjónaðar) = 21-22-22-22-25-25-25 lykkjur. Í lok næstu umferðar frá röngu eru fitjaðar upp 8-8-9-10-9-10-11 nýjar lykkjur = 29-30-31-32-34-35-36 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 10-11-12-12-13-14-15 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 8-8-9-9-10-10-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 2-3-3-3-3-4-4 cm.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni við hálsmál, þar til vinstra framstykki mælist 11-13-13-14-15-16-16 cm frá merki (endið eftir umferð frá röngu).
Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan.

UMFERÐ 1 (= rétta): Byrjið frá réttu með lykkjur frá vinstra framstykki: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 18-20-20-22-24-26-26 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjur eru prjónaðar upp á undan ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 18-20-20-22-24-26-26 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp á undan ystu lykkju), setjið 1 merki, setjið til baka lykkjur frá hægra framstykki á prjóninn, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 148-156-160-168-180-188-192 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 152-160-164-172-184-192-196 lykkjur.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður = 156-164-168-176-188-196-200 lykkjur.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið brugðið fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið brugðið fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður = 160-168-172-180-192-200-204 lykkjur.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið slétt fram að fyrsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merki yfir á hægri prjón, prjónið út umferðina eins og áður = 164-172-176-184-196-204-208 lykkjur.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður, án þess að auka út.
Á EFTIR UMFERÐ 6:
Prjónið umferð 5 og 6 alls 4-4-4-4-4-0-0 sinnum til viðbótar (= 8-8-8-8-8-0-0 umferðir prjónaðar).
Það hefur verið aukið út alls 8-8-8-8-8-4-4 sinnum fyrir ermar = 34-36-36-38-40-34-34 lykkjur á hvorri ermi, 28-29-30-31-33-34-35 lykkjur á hvoru framstykki og 56-58-60-62-66-68-70 lykkjur á bakstykki = 180-188-192-200-212-204-208 lykkjur.

Síðan er aukið út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, það er aukið út á fram- og bakstykki 2 lykkjur á undan merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukningu fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermi – næsta umferð er prjónuð þannig:

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið síðan slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan fyrsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. það hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-7-8-9-10-13-14 sinnum (= 12-14-16-18-20-26-28 umferðir prjónaðar). Það hefur verið aukið út alls 14-15-16-17-18-17-18 sinnum á ermum og 6-7-8-9-10-13-14 sinnum á fram- og bakstykki = 46-50-52-56-60-60-62 lykkjur á hvorri ermi, 34-36-38-40-43-47-49 lykkjur á hvoru framstykki og 68-72-76-80-86-94-98 lykkjur á bakstykki = 228-244-256-272-292-308-320 lykkjur.

Ermin mælist ca 13-14-15-16-17-16-17 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir ermi – ATH: Þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 18-20-21-23-24-24-25 cm frá toppi á öxl og niður meðfram handvegi. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-20-21-23-24-24-25 cm frá toppi á öxl og niður meðfram handvegi.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 34-36-38-40-43-47-49 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 46-50-52-56-60-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 68-72-76-80-86-94-98 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 46-50-52-56-60-60-62 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 34-36-38-40-43-47-49 lykkjur eins og áður (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 148-160-172-184-200-220-232 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og kantlykkjur í garðaprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 24-25-26-25-26-27-28 cm frá skiptingunni.
Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 17-19-21-23-25-27-29 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kantlykkjur), prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) – munið eftir útaukningunni – þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 165-179-193-207-225-247-261 lykkjur.
Prjónið stroff með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 5-5-5-6-6-7-7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl.

ERMAR:
Setjið 46-50-52-56-60-60-62 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 52-58-62-68-74-76-80 lykkjur.
Setjið 1 merki fyrir miðju í 6-8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkið.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 9-10-9-7-6-6-6 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið).
Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 12-13-12-11-10-11-11 cm frá skiptingunni.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Notið hringprjón 3,5, byrjið frá réttu efst á vinstra framstykki og prjónið upp lykkjur meðfram vinstra framstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig:
Prjónið upp ca 83-87-89-93-95-99-101 lykkjur (þetta jafngildir ca 19 lykkjur á hverja 10 cm meðfram kanti – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1).
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni.

Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff fram og til baka þar til kantur að framan mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkju og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp lykkjur á sama hátt meðfram hægra framstykki og prjónið hægri kant að framan á sama hátt og vinstri kant að framan, en þegar kantur að framan mælist ca 1 til 1½ cm, er fellt af fyrir 5 hnappagötum jafnt yfir – lesið útskýringu HNAPPAGAT að ofan. Eftir hnappagötin heldur kanturinn að framan áfram á sama hátt og vinstri kantur að framan. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 3,5, byrjið frá réttu fyrir miðju að framan og prjónið upp ca 87-93-103-107-109-115-121 lykkjur í kringum hálsmál (passið uppá að prjónuð sé upp 1 lykkja í hverja umferð frá kanti að framan – fjöldi lykkja á að vera deilanlegur með 2 + 1).
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1kantlykkju í garðaprjóni.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka, en eftir ca 1-1½ cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin hnappagötin í hægri kanti að framan. Prjónið síðan þar til kantur í hálsmáli mælist ca 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 264-31

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistystonecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.