Elise skrifaði:
Jeg syns den er veldig fin! kan dere lage en ny en, mer simpel, med bare noen få store blomster rundt kragen?
11.10.2025 - 12:53
Anja skrifaði:
Ich bin am Anfang des rumpfteiles. Wenn ich (Größe L) 2x 78 Maschen für die Ärmel stilllege, jeweils 10 Maschen anschlage nehme ich dann für das Vorder und das Rückenteil doch sicherlich auch Maschen auf, damit ich dann auf 248 Maschen (ohne Ärmel) komme, oder? (Mache das zum ersten Mal)
08.10.2025 - 21:00
MYRIAM DEVAUCHELLE skrifaði:
Bonjour, je me permets de renouveler ma question, concernant les augmentations, j'ai fait des jetés classiques et au retour des mailles endroits torses, mais j'ai des trous. Faut il faires des jetés torses et au retour des mailles normales? Merci de vos réponses car les trous dans le jacquard, cela ne va pas être très joli. à bientôt M. DEVAUCHELLE
08.09.2025 - 15:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Devauchelle, lorsque l'on augmente avec des jetés sans motif ajouré, on tricote les jetés torse - cf AUGMENTATIONS - cf aussi réponse ci-dessous. Bon tricot!
11.09.2025 - 11:24
Myriam DEVAUCHELLE skrifaði:
Je me remets au tricot après quelques mois d'absence. ici, mon premier problème dès le départ est celui des augmentations, j'ai fait des jetés classiques et sur le rang suivant, j'ai fait une maille torse à l'endroit, mais j'ai quand même un trou, est ce qu'il faut faire l'augmentation par un jeté torse et au rang suivant une maille normale à l'endroit? merci de votre aide
07.09.2025 - 18:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Devauchelle, lorsque vous augmentez en faisant 1 jeté, veillez à ce qu'il ne soit pas trop lâche sur l'aiguille droite, bien souvent au premier lavage ou au blocage, ce petit trou disparaît, mais vous pouvez également utiliser une autre technique pour augmenter si vous préférez - retrouvez différentes techniques d'augmentations ici. Bon tricot!
11.09.2025 - 11:07
Rae skrifaði:
Do you know the actual colors used in this sweater? Drops Lima in the shade chestnut seems too dark?
05.09.2025 - 17:35
Ariane skrifaði:
Bjr à toute l'équipe. Déjà un grand merci pour ce que vous faites. Le soucis pour moi, est que je suis de la vieille école et je tricote encore avec des aiguilles droites. J'essaye de me mettre aux aiguilles circulaires mais j'ai beaucoup beaucoup de mal. Il est donc dommage que tous vos modèles soient conçus pour ces dernières :(
29.08.2025 - 18:03
Maple Whisper Sweater#maplewhispersweater |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og tvöföldu hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-5 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 9. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-108-112-116-120-124-128 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Lima í litnum Kastanía eða DROPS Karisma í litnum Kakóbaun. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 8-8-8-8-10-10-10 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kanturinn í hálsmáli ca 4-4-4-4-5-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 36-36-37-39-40-41-43 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt og aukið út 12-14-16-16-18-18-20 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 120-122-128-132-138-142-148 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 4-4-4-4-4-4-4 cm frá merki, aukið út um 28-30-36-36-44-42-46 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 148-152-164-168-182-184-194 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 8-8-8-8-9-9-9 cm frá merki. Í næstu umferð er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan. Prjónið A.1 yfir allar lykkjur jafnframt sem aukið er út berustykkið hringinn jafnframt því sem aukið er út um 38-46-52-54-58-62-64 lykkjur jafnt yfir = 186-198-216-222-240-246-258 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út lykkjur jafnt yfir í hverri umferð með ör eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Ör-1: Aukið út 38-54-50-58-54-62-64 lykkjur jafnt yfir = 224-252-266-280-294-308-322 lykkjur. Haldið áfram með A.1. Ör-2: Aukið út 44-48-58-58-62-66-70 lykkjur jafnt yfir = 268-300-324-338-356-374-392 lykkjur. Haldið áfram með A.1. Ör-3: Aukið út 44-48-48-46-52-58-64 lykkjur jafnt yfir = 312-348-372-384-408-432-456 lykkjur. Haldið áfram með A.1. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 22-22-23-24-25-27-29 cm frá merki fyrir miðju að framan, á að skipta stykkinu í fram- og bakstykki og ermar. Ef A.1 hefur ekki verið prjónað til loka á hæðina áður en stykkið mælist 22-22-23-24-25-27-29 cm, skiptist stykkið fyrir miðju í mynstri – þá heldur mynstrið áfram eftir skiptinguna, passið uppá að skipta stykkinu fyrir miðju í mynsturbekk (en ekki í umferð einungis með litnum Kastanía/Kakóbaun). ATH! Öll útaukning fyrir A.1 verður að vera lokið áður en stykkið skiptist upp. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 62-70-76-78-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 94-104-110-114-124-134-144 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 62-70-76-78-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 94-104-110-114-124-134-144 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-220-236-248-272-296-320 lykkjur. Ef A.1 hefur ekki verið prjónað til loka fyrir skiptinguna, heldur mynstrið áfram á fram- og bakstykki þar til það hefur verið prjónað til loka. Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hlið undir ermum, en prjónið mynstrið þannig að það haldi áfram frá berustykki eins langt og hægt er að hlið fyrir miðju undir ermum. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón með litnum Kastanía/Kakóbaun þar til stykkið mælist 45-47-49-51-52-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-24-24-28-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 220-240-260-272-300-324-348 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 49-51-53-55-57-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 62-70-76-78-80-82-84 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 68-76-84-88-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Ef A.1 hefur ekki verið prjónað til loka fyrir skiptinguna, heldur mynstrið áfram þar til það hefur verið prjónað til loka. Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hlið undir ermi, en prjónið mynstrið þannig að það haldi áfram frá berustykki eins langt og hægt er fyrir miðju undir ermi. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn með litnum Kastanía/Kakóbaun. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 8-8-5-5-5-5-5 cm alls 2-4-6-6-6-6-6 sinnum = 64-68-72-76-80-84-88 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-41-41-40-40-38-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-8-8-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-76-80-84-88-92-96 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Ermin mælist ca 44-45-45-44-45-43-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið kant í hálsmáli þannig að það verði tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #maplewhispersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.