Vanilla Dusk#vanilladusksweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópsku berustykki og tvöföldu perluprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-35 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur, en lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni þar til það myndast pláss fyrir heila rúðu (= 2 lykkjur) á breidd. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1 BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2 FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmál við miðju að framan = framstykkin eru sett saman í eitt stykki. Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3 BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram annarri hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hinni hliðinni á framstykki = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur. 4 ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5 FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna og prjónað er MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Fitjið upp 44-44-44-48-48-52-56 lykkjur á hringprjón 3 með 1 þræði DROPS Fabel. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið A.2, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, haldið áfram með mynstur (lesið í útskýringu í MYNSTUR með leiðbeiningum hvernig útauknar lykkjur eru prjónaðar) þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 13-13-14-13-14-14-15 sinnum (= 26-26-28-26-28-28-30 prjónaðar umferðir), eftir síðustu útaukningu eru = 96-96-100-100-104-108-116 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 26-26-28-26-28-28-30 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið A.2 alls 0-0-1-0-1-1-0 sinnum, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, A.1 þar til 3-3-5-3-5-5-3 lykkjur eru eftir, prjónið A.2 alls 0-0-1-0-1-1-0 sinnum, prjónið 3 lykkjur slétt. Prjónið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 4-4-6-7-9-9-10 cm, nú eru lykkjur auknar út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir (munið eftir hvernig útauknar lykkjur eru prjónaðar), prjónið 3 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 8-8-8-8-8-8-8 sinnum (= 16-16-16-16-16-16-16 umferðir prjónaðar) = 34-34-36-34-36-36-38 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmál er nú lokið. Stykkið mælist ca 9-9-11-12-14-14-15 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 8-8-9-9-10-10-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 1-1-2-3-4-4-4 cm. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri öxl prjónuð meðfram hægri bakstykkis skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja), síðan er prjónuð upp 1 lykkja í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 26-26-28-26-28-28-30 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið mynstur þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið A.1 þar til 3-3-5-3-5-5-3 lykkjur eru eftir, prjónið A.2 alls 0-0-1-0-1-1-0 sinnum, prjónið 3 lykkjur brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, A.2 alls 0-0-1-0-1-1-0 sinnum, prjónið A.1 þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt. Prjónið umferð 1 og 2 þar til stykkið mælist 4-4-6-7-9-9-10 cm, nú eru lykkjur auknar út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir (munið eftir hvernig útauknar lykkjur eru prjónaðar), prjónið 3 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 8-8-8-8-8-8-8 sinnum (= 16-16-16-16-16-16-16 umferðir prjónaðar) = 34-34-36-34-36-36-38 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmál er nú lokið. Stykkið mælist ca 9-9-11-12-14-14-15 cm frá merki. Smá hluti af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Dýpt hálsmáls að framan = 8-8-9-9-10-10-11 cm. Dýpt hálsmáls að aftan = 1-1-2-3-4-4-4 cm. FRAMSTYKKI: Í næstu umferð (= rétta) eru axlirnar settar saman fyrir framstykki þannig: Prjónið eins og áður yfir 34-34-36-34-36-36-38 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 28-28-28-32-32-36-40 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið eins og áður yfir 34-34-36-34-36-36-38 lykkjur frá vinstri öxl = 96-96-100-100-104-108-116 lykkjur. Prjónið mynstur fram og til baka með 3 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 10-10-12-13-15-15-16 cm frá merki – síðasta umferð er prjónuð frá röngu. ATH: Stillið af að endað sé í sömu umferð í mynsturteikningu eins og á bakstykki þannig að mynstrið passi þegar stykkin eru sett saman. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 2 lykkjur frá framstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á framstykki, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 26-26-30-34-38-38-42 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki, prjónið fyrstu 2 lykkjur frá bakstykki slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 1 lykkju slétt, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á framstykki, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), setjið 1 merki, prjónið upp 26-26-30-34-38-38-42 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), setjið 1 merki = 240-240-256-264-280-288-312 lykkjur. BERUSTYKKI: Síðan er stykkið prjónað í hring. UMFERÐ 1: Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrsta merki, 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið á sama hátt og á hinni erminni fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón. Prjónið þessa umferð 3 sinnum – munið eftir að útauknar lykkjur eru prjónaðar eins og útskýrt er í MYNSTUR = 32-32-36-40-44-44-48 lykkjur á hvorri ermi og 94-94-98-98-102-106-114 lykkjur á framstykki / bakstykki) = 252-252-268-276-292-300-324 lykkjur. Prjónið síðan hringinn þannig: UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður með 2 lykkjur slétt í hvorri hlið á framstykki/bakstykki og aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi eins og áður – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður óbreyttur. UMFERÐ 2: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 11-7-3-1-3-1-1 sinnum (= 22-14-6-2-6-2-2-2 umferðir prjónaðar. Það hefur verið aukið út alls 14-10-6-4-6-4-4-4 sinnum á ermum = 54-46-42-42-50-46-50 lykkjur á hvorri ermi og 94-94-98-98-102-106-114 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 296-280-280-280-304-304-328 lykkjur. Síðan á að auka út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, aukið er út á fram- og bakstykki 2 lykkjum á undan merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukninga fyrir fram- og bakstykki og útaukningu á ermi – næsta umferð er prjónuð þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. það hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykki og ermi). UMFERÐ 2: Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 12-16-20-24-24-28-28 sinnum (= 24-32-40-48-48-56-56 umferðir prjónaðar. Það hefur verið aukið út alls 26-26-26-28-30-32-32 sinnum á ermum og 12-16-20-24-24-28-28 sinnum á fram- og bakstykki = 78-78-82-90-98-102-106 lykkjur á hvorri ermi og 118-126-138-146-150-162-170 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 392-408-440-472-496-528-552 lykkjur. Ermin mælist ca 14-14-14-16-17-18-18 cm –ATH: Þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 19-19-20-22-24-25-26 cm frá toppi á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist minna en þetta, er hægt að prjóna áfram að réttu máli án þess að auka út. Klippið þráðinn. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Byrjið á að fitja upp 3-5-5-7-9-9-11 lykkjur á hægri prjón (þessar lykkjur eru helmingur af lykkjum í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir 118-126-138-146-150-162-170 lykkjur frá framstykki, setjið næstu 78-78-82-90-98-102-106 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-10-10-14-18-8-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið eins og áður yfir 118-126-138-146-150-162-170 lykkjur frá bakstykki, setjið næstu 78-78-82-90-98-102-106 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 3-5-5-7-9-9-11 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 248-272-296-320-336-360-384 lykkjur. Prjónið mynstur hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 24-26-27-27-26-27-28 cm, mælt frá skiptingunni – endið eftir 2 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 44-48-52-60-64-64-68 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 292-320-348-380-400-424-452 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 78-78-82-90-98-102-106 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-10-10-14-18-18-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 84-88-92-104-116-120-128 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-10-10-14-18-18-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn (mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp fyrir miðju undir ermi í öllum stærðum) – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-2-2-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 2-3-3-2-2-2-2 cm alls 2-2-2-2-2-1-1 sinnum = 76-80-84-96-108-112-120 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 8-10-10-9-7-6-6 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-16-16-16-20-20-20 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 88-96-100-112-128-132-140 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 11-13-13-12-11-10-10 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 2,5, byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 124-124-132-144-152-160-172 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið þar til stroffið mælist (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – stillið af byrjun á stroffi þannig að stroffið fyrir miðju að framan passi með sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur yfir lykkjur sem fitjaðar voru upp í hálsmáli). Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #vanilladusksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.