Afternoon Coffee#afternooncoffeesweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð stór / oversize peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri og háu hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 262-9 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar hringlaga berustykki er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Setjið 1 merki í byrjun umferðar = miðja að aftan. Byrjið við merki frá réttu, prjónið 10-10-10-11-11-12-12 lykkjur slétt, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið 20-20-20-22-22-24-24 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu og prjónið 30-30-30-33-33-36-36 lykkjur slétt, snúið stykkinu og prjónið 40-40-40-44-44-48-48 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu og prjónið 50-50-50-55-55-60-60 lykkjur slétt, snúið stykkinu og prjónið 60-60-60-66-66-72-72 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu og prjónið slétt að merki fyrir miðju að aftan. Prjónið berustykkið hringinn eins og útskýrt er í mynstri. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 94 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 7,8. Í þessu dæmi er aukið út í ca 8. hverja lykkju – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 fyrir útskýringu hvernig auka eigi út. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Þessi samhverfa útaukning gefur 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1-4 að neðan: 1.Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið fyrstu lykkju á vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi lykkjuna brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni aftan við lyftu lykkjuna og inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Sláið 1 sinni uppá prjóninn með þráðinn um hægri prjón og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndist 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppi fremri lykkjuboganum á lykkjunni af vinstri prjóni og prjónið síðan 1 lykkju slétt í fremri hlutann á hinum lykkjuboganum. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að forma hálsmálið. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-116-124-128-132-140 lykkjur á hringprjón 4,5 með litinn Brúnn í DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 13-13-14-14-15-15-16 cm – jafnframt í síðustu umferð er fækkað um 18-18-18-24-22-22-24 lykkjur jafnt yfir = 90-94-98-100-106-110-116 lykkjur (fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman í einingu með 2 lykkjur brugðið). Setjið 1 merki fyrir miðju í umferð (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 10-12-12-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir= 100-106-110-114-120-126-132 lykkjur í umferð. Nú er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið leiðbeiningar að ofan. Þegar upphækkun hefur verið prjónuð til loka, prjónið þá berustykki eins og útskýrt er að neðan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, prjónið þá áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 3-3-3-3-3-3-3 cm frá merki, aukið út 32-35-37-40-42-46-48 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og -2 = 132-141-147-154-162-172-180 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 6-6-6-6-6-6-6 cm frá merki, aukið út 32-35-37-40-42-46-48 lykkjur jafnt yfir = 164-176-184-194-204-218-228 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 9-9-9-9-9-10-10 cm frá merki, aukið út 28-34-38-40-42-46-48 lykkjur jafnt yfir = 192-210-222-234-246-264-276 lykkjur. Þegar stykkið mælist 10-10-10-10-10-11-11 cm prjónið MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið A.1 alls 32-35-37-39-41-44-46 sinnum berustykkið hringinn. Haldið síðan áfram og prjónið mynstur í hring - JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 eru lykkjur auknar út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og -2: Ör-1: Aukið út 30-36-36-36-42-42-42 lykkjur jafnt yfir = 222-246-258-270-288-306-318 lykkjur. Ör-2: Aukið út 18-18-24-24-30-30-36 lykkjur jafnt yfir = 240-264-282-294-318-336-354 lykkjur. Ör-3 (veljið ör fyrir rétta stærð): Aukið út 14-16-14-20-22-22-20 lykkjur jafnt yfir = 254-280-296-314-340-358-374 lykkjur. Prjónið síðan þar til berustykkið mælist ca 22-22-23-23-24-26-28 cm frá merki – öll útaukning á nú að vera lokið. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar (mynstrið heldur áfram á fram- og bakstykki og ermum). SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 39-43-45-48-53-56-60 lykkjur eins og áður (= ca hálf bakstykki), setjið næstu 49-55-59-61-65-67-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-14-16-18-18-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 78-85-89-96-105-112-120 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 49-55-59-61-65-67-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-14-16-18-18-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 39-43-45-48-53-56-60 lykkjur eins og áður (= ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Klippið þráðinn. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-198-210-228-246-264-288 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= mitt í 12-14-16-18-18-20-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Byrjið umferð við merki og haldið áfram með A.1 hringinn yfir lykkjur frá berustykki – ATH: Ef stykkið skiptist upp mitt í mynsturbekk þá kemur mynstrið ekki til með að ganga jafnt upp undir hvorri ermi, prjónið því eins langt og hægt er inn að hvorri hlið undir ermi. Næsti mynsturbekkur kemur til með að ganga jafnt upp hringinn yfir allar lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 alls 30-33-35-38-41-44-48 sinnum hringinn á fram- og bakstykki – A.2 er prjónað alls 1-1-2-2-2-2-3 sinnum á hæðina. Prjónið síðan A.3 alls 45-50-53-57-62-66-72 sinnum hringinn á fram- og bakstykki – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 0-2-2-0-2-0-0 lykkjur jafnt yfir = 180-200-212-228-248-264-288 lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið þá sléttprjón með litnum Brúnn. Prjónið þar til stykkið mælist ca 49-51-53-53-55-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið ) JAFNFRAMT sem aukið er út um 72-80-80-88-96-104-116 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 252-280-292-316-344-368-404 lykkjur. Þegar stroffið mælist 10-10-10-11-11-12-12 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 59-61-63-64-66-68-70 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 64-66-68-70-72-74-76 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 49-55-59-61-65-67-67 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 12-14-16-18-18-20-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 61-69-75-79-83-87-91 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 12-14-16-18-18-20-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Að auki er sett 1 merki í miðjulykkju í umferð – merkið er notað þegar reikna á út hvar A.2 og A.3 á að byrja fyrir miðju undir ermi. Prjónið síðan mynstur jafnframt því sem lykkjum er fækkað, lesið allan textann á ermi áður en prjónað er áfram. Haldið áfram með A.1 frá berustykki yfir lykkjur á ermi – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp fyrir miðju undir ermi, en passið uppá að mynstrið haldi áfram að vera rétt yfir lykkjur á berustykki. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1-1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 2-2-3-3-3-3-3 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm alls 0-2-2-2-2-3-3 sinnum = 57-61-65-69-73-75-79 lykkjur. JAFNFRAMT þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 hringinn á ermi – teljið út frá lykkju með merki hvar A.2 á að byrja fyrir miðju undir ermi – lykkja með merki á að passa við merkingu fyrir miðjulykkju í A.2. Prjónið A.2 alls 1-1-2-2-2-2-3 sinnum á hæðina. Prjónið síðan A.3 á sama hátt. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið þá sléttprjón með litnum Brúnn. Prjónið þar til ermin mælist 35-36-35-36-35-32-31 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 23-23-27-27-27-29-33 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 80-84-92-96-100-104-112 lykkjur. Þegar stroffið mælist 10-10-10-11-11-12-12 cm fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 45-46-45-47-46-44-43 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #afternooncoffeesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 262-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.