Lisbeth skrifaði:
Hej. Garnet säger stickor 3 men mönstret säger stickor 3,5 för 24x32 för stf 10x10. Vilka stickor ska jag välja? Tack för hjälpen
12.10.2026 - 09:55DROPS Design svaraði:
Hei Lisbeth. Pinne størrelse er kun veiledende. Du må bruke den pinne str. for å oppnå den strikkefastheten som er oppgitt i oppskriften. Og da strikkefasthet i glattstrikk. mvh DROPS Design
12.10.2026 - 12:02
MARLENE skrifaði:
Bonjour, Pour la taille 2 ans on monte 176 m Au premier tour endroit on diminue de 22 m reste 154 m. Donc,Dos et devant font donc chacun 154:2=77m Or vous dires que le devant et le dos font 71m soit 142m. Que sont donc ces 12m?(154-142)Pas facile de lire vos explications Merci de votre réponse éclairante
24.05.2026 - 12:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Marlène, notez que vous devez tricoter le diagramme A.1 au milieu du devant, vous aurez donc ainsi: 28 m jersey, 21 m du diagramme A.1, 28 m jersey (= 77 m pour le devant) et les 77 m restantes pour le dos = 77x2=154. Le devant et le dos auront 71 m après la division = après que l'on aura rabattu 6 m de chaque côté (3 m de chaque côté de chaque marqueur) pour les emmanchures. Bon tricot!
26.05.2026 - 11:12
Gith skrifaði:
Det står att jag ska sticka slätstickning och A1 fram och tillbaka. Hur stickar jag på baksidan av mönster stickningen som är på framsidan?
08.11.2025 - 08:47DROPS Design svaraði:
Hei Gith. På bakstykket strikkes det slätstickning fram och tillbaka, altså ingen mønster. mvh DROPS Design
10.11.2025 - 15:10
Danies-Sauvestre Corinne skrifaði:
Vous regarderez bien car pour le devant emmanchures vous avez écrit 2fois 1 maille et non 3 fois1 maille merci
27.05.2025 - 09:08DROPS Design svaraði:
Bonjour, il doit juste s'agir d'une faute de frappe, je transmets de suite à nos stylites pour correction. Merci pour l'info. Bon tricot!
27.05.2025 - 09:28
Danies-Sauvestre skrifaði:
Bonjour je tricote ce pull sans manches pour le devant il y a une erreur au diminution de chaque côté je penses si on lit vous dîtes il reste 55 mailles mais en vérifiant c'est 57 mailles car il y a un tour en moins de diminution de chaques côtés que le dos merci de votre réponse
26.05.2025 - 19:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Danies-Sauvestre, vous parlez bien des emmanchures dos/devant après la séparation? Vous avez 75 mailles après la séparation (2ème taille)ç, vous rabattez de chaque côté: 1 x 3 m puis 2x2 m et 3 x 1 m, vous allez donc rabattre au total (3+4+3)mailles de chaque côté soit 10x2=20 mailles; vous aviez 75 m - 20 m = il reste bien 55 mailles. Bon tricot!
27.05.2025 - 08:57
Nina Nielsen skrifaði:
Hvor i opskriften skal man bruge strømpepinde?
24.04.2025 - 19:35DROPS Design svaraði:
Hej Nina. Når det strikkes rundt halskant og ermekanter, er noen av hullene mindre enn 40 cm i de minste størrelsene og da må man bruke settpinner. Mvh DROPS Design
25.04.2025 - 13:12
Blush Trails#blushtrailsvest |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónað vesti fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með kaðlamynstri og kanti í stroffprjóni. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 49-4 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan er bakstykkið og framstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loka máli. Í lokin er prjónaður kantur í stroffprjóni í kringum hálsmál og í kringum báða handvegina. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 176-188-200-216-224-232 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Baby Merino. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 22-26-26-30-30-30 lykkjur jafnt yfir = 154-162-174-186-194-202 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar og 1 merkiþráð eftir 77-81-87-93-97-101 lykkjur (= í hliðar á fram- og bakstykki). Prjónið 28-30-33-36-38-40 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 21 lykkja við miðju að framan) og prjónið sléttprjón út umferðina. Haldið svona áfram með mynstur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar stykkið mælist 19-21-24-27-30-31 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af fyrir handveg þannig: Byrjið 3-3-4-4-4-4 lykkjur á undan merkiþræði í byrjun umferðar, fellið af 6-6-8-8-8-8 lykkjur, prjónið eins og áður þar til 3-3-4-4-4-4 lykkjur eru eftir á undan næsta merkiþræði, fellið af 6-6-8-8-8-8 lykkjur, prjónið eins og áður út umferðina. Bakstykkið og framstykkið er síðan prjónað hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 71-75-79-85-89-93 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af fyrir handvegi í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 51-55-59-65-69-73 lykkjur eftir. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 31-34-38-42-46-48 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 27-29-31-33-35-37 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan sléttprjón og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 11-12-13-15-16-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-50 cm. Fellið af aðeins laust. Prjónið síðan hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: = 71-75-79-85-89-93 lykkjur. Prjónið sléttprjón og A.1 fram og til baka og fellið af fyrir handvegi í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 51-55-59-65-69-73 lykkjur eftir. Jafnframt þegar stykkið mælist 27-30-34-37-41-43 cm, setjið miðju 11-13-15-17-19-21 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið sléttprjón og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 11-12-13-15-16-17 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 33-36-40-44-48-50 cm. Fellið af aðeins laust. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma saman innan við affellingarkantinn. KANTUR HANDVEGUR: Byrjið frá réttu neðst í handvegi og prjónið upp ca 78 til 108 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum handveg, á stuttan hringprjón 2,5 (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið kant í handvegi á sama hátt í kringum hinn handveginn. KANTUR HÁLSMÁL: Byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp ca 84 til 108 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 2,5 (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4). Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #blushtrailsvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 49-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.