Hanne Bjørnestad skrifaði:
Hvis man ikke strikker til knapper i skulderen er den så for lille til at få over hovedet?
27.04.2025 - 18:06DROPS Design svaraði:
Hei Hanne. Det kan det være lite, litt avhengig av hvilken str. du strikker. Garnet, DROPS Cotton Merino er tøyelig og vrangborden strekker seg, men se på målskissen og mål barnets hode og se om det går. mvh DROPS Design
05.05.2025 - 10:43
Nathalie skrifaði:
Hallo, wenn man für die Armausschnitte abkettet steht da in jeder Reihe 4 mal eine Masche auf jeder Seite abnehmen. Heißt das in Hin und Rückreihen? Oder nur die hinreihen?
21.04.2025 - 20:57DROPS Design svaraði:
Liebe Nathalie, diese Maschen ketten Sie am Anfang jeder Reihe beidseitig ab, dh am Anfang jeder Hin- und Rückreihe: 4 Mal beidseitig = 8 Maschen werden insgesamt abgekettet, 4 Maschen auf beiden Seiten. Viel Spaß beim Stricken!
23.04.2025 - 08:23
Sunshine Sprout#sunshinesprouttop |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með stuttum ermum og tölum yfir öxl. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 49-3 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum á vinstri öxl á framstykki (séð þegar flíkin er mátuð), það er gert þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 hnappagat). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Axlasaumar saumaðir. Lykkjur prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hálsmáli og prjónaður er kantur í hálsmáli fram og til baka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 138-148-158-166-174-186 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Cotton Merino. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 1-1-1-2-2-2 cm. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón jafnframt því sem fækkað er um 12-14-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 126-134-142-150-158-170 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 16-18-20-22-24-25 cm frá uppfitjunarkanti. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING FYRIR HANDVEG: Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og umferðin er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 4-4-4-4-4-6 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 59-63-67-71-75-79 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 4-4-4-4-4-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 59-63-67-71-75-79 lykkjur (= bakstykki). Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka. BAKSTYKKI: = 59-63-67-71-75-79 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka eins og áður JAFNFRAMT sem felld er af 1 lykkja í byrjun hverrar umferðar alls 4 sinnum í hvorri hlið = 51-55-59-63-67-71 lykkjur eftir. Þegar stykkið mælist 26-29-32-35-38-40 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 23-25-27-29-29-31 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Nú er felld af 1 lykkja fyrir hálsmáli í næstu umferð = 13-14-15-16-18-19 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 28-31-34-37-40-42 cm – á hægri öxl er fellt af með sléttum lykkjum, á vinstri öxl er fellt af með aðra hverja lykkju slétt og brugðið. FRAMSTYKKI: = 59-63-67-71-75-79 lykkjur. Prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 24-26-29-31-34-35 cm = 51-55-59-63-67-71 lykkjur í umferð. Nú eru miðju 15-15-17-19-19-19 lykkjur settar á þráð og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL: Nú eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, síðan er felld af 1 lykkja 3-4-4-4-4-5 sinnum = 13-14-15-16-18-19 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 28-31-34-37-40-42 cm. VINSTRI ÖXL: Prjónið á sama hátt og hægri öxl þar til stykkið mælist 28-31-34-37-40-42 cm, en í stað þess að fella af í lokin er prjónaður kantur að framan með hnappagötum, prjónað er með byrjun frá réttu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið stroff eins og áður JAFNFRAMT eru gerð alls 2 hnappagöt – lesið HNAPPAGAT í útskýringu að ofan, fyrsta hnappagatið er gert eftir 3 lykkjur, síðan er næsta hnappagat gert þegar eftir eru 6-6-7-7-8-9 lykkjur í umferð. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið stroff eins og áður. Haldið áfram með stroff þar til stroffið mælist 2-2-2-3-3-3 cm, stykkið mælist 30-33-36-40-43-45 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR-1: Saumið axlasauma á hægri öxl. Vinstri öxl á framstykki er lögð yfir vinstri öxl á bakstykki þannig að framstykkið nær yfir 2-2-2-3-3-3 cm yfir öxl – síðar á að vera hægt að hneppa stroffinu yfir öxl á bakstykki. Saumið saman einungis í ystu lykkju meðfram handveg þannig að hægt sé að taka upp lykkjur fyrir ermi í gegnum bæði framstykkið og bakstykkið efst á ermi. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = miðja ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á vinstri öxl er í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 3 og byrjið fyrir miðju í lykkjur sem felldar voru af undir ermi – prjónið upp 46-50-54-58-62-66 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin passi betur og fái betra form, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 4 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2-2-2-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2-2-2-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 16 sinnum (= 8 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin sé frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð endar umferðin með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota merkiþráðinn þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt fyrir miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 1-2-2-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 2-2-1-1-1-1 cm alls 1-1-2-2-3-4 sinnum = 42-44-46-48-50-52 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 11-12-13-13-14-15 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 1-1-1-2-2-2 cm fellið af. Ermin mælist ca 12-13-14-15-16-17 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3 og prjónið upp lykkjur meðfram hálsmáli frá réttu þanngi: Byrjið yst við hálsmál í kanti fyrir tölur í vinstra framstykki, prjónið upp ca 75-83-89-99-99-107 lykkjur – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1. Prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) fram og til baka í 1 cm, í næstu umferð frá réttu er gert 1 hnappagat þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina eins og áður. Haldið áfram með stroff eins og áður þar til það mælist 2-2-2-3-3-3 cm. Fellið af. FRÁGANGUR-2: Saumið 3 tölur, 2 tölur í vinstri öxl ca 1 cm niður á bakstykki þannig að hægt sé að hneppa vinstri öxl frá framstykki yfir öxl, ásamt 1 tölu í kanti í hálsmáli. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunshinesprouttop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 49-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.