Louise skrifaði:
Hej. Jeg er gået i stå efter jeg har delt til ryg og forstykke. Jeg er i tvivl om, når jeg skal fortsætte med mønster, hvilken af de tre rækker jeg skal benytte mig af, eftersom jeg ikke tager ud mere. Tak for svar
20.05.2025 - 08:34DROPS Design svaraði:
Hej Louise, ja da fortsætter du med A.2, så mønsteret stemmer over det mønster du allerede er godt igang med :)
22.05.2025 - 11:54
Marité Atlani skrifaði:
Bonjour. Lorsque l\'on commande des laines sur votre site avons-nous la possibilité d\'être livré à domicile lorsque l\'on a pas de boutique prés de chez soi et quels sont les frais de livraison pour la France ? Merci pour votre réponse. Cordialement Marité.
14.05.2025 - 18:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Marité, vous pouvez effectivement tout à fait passer commande auprès d'une des boutiques en ligne dont vous trouverez la liste ici et leurs frais et conditions d'expéditions. Bon tricot!
15.05.2025 - 09:26
Louise Bryde Holmquist skrifaði:
Hej, Jeg har delt ryg og forstykke, og sat masker på pause til ærmer. Jeg kan se at den næste pind jeg skal strikke er pind nr 9 i mønstret. Jeg kan dog ikke gennemskue hvilken af de 3 rækker jeg skal starte med, for at det passer? Og skal jeg tælle de 19 nye masker jeg slår op under ærmerne, når jeg starter efter dem? Tak for svar!
12.05.2025 - 10:35DROPS Design svaraði:
Hej Louise, gå ud fra det mønster du allerede strikker på forstykket, på pind 9 ska du have 1 retmaske imellem hver 3. vrangmaske. Sørg for at den midterste af de 3 vrangmasker kommer over retmasken fra pind 5,6og7 :)
20.05.2025 - 14:14
Arctic Horizon#arctichorizonsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli og áferðamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 251-22 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni á ermum og A.1 til A.3 á framstykki / bakstykki. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr í miðju á þessum 3 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfalt að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-112-112-120-120-128-128 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Soft Tweed. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. Prjónið stroff svona hringinn með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til kantur í hálsmáli mælist 13-13-13-13-15-15-15 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 6-6-6-6-7-7-7 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 38-40-40-42-42-44-44 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki á undan fyrstu lykkju í umferð, teljið 24-24-24-24-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 28-32-32-36-36-40-40 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 24-24-24-24-24-24-24 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, það eru 28-32-32-36-36-40-40 lykkjur eftir á prjóni fyrir bakstykki. Prjónið fyrstu umferð þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið yfir næstu 22-22-22-22-22-22-22 lykkjur og aukið jafnframt út 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), 2 lykkjur slétt, prjónið slétt yfir næstu 26-30-30-34-34-38-38 lykkjur og aukið jafnframt út 3-3-3-3-3-7-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= framstykki), 2 lykkjur slétt, prjónið slétt yfir næstu 22-22-22-22-22-22-22 lykkjur og aukið jafnframt út 0-0-0-0-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), 2 lykkjur slétt, prjónið slétt yfir næstu 26-30-30-34-34-38-38 lykkjur og aukið jafnframt út 3-3-3-3-3-7-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= bakstykki), endið með 1 lykkju slétt = 110-118-118-126-130-146-146 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón og ermar, MYNSTUR á framstykki og bakstykki og aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjur – lesið leiðbeiningar að ofan fyrir mynstur og hvernig auka á út. UMFERÐ 1: Prjónið 1 lykkju slétt, aukið út fyrir laskalínu, prjónið 22-22-22-22-24-24-24 lykkjur sléttprjón (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, prjónið A.1, prjónið A.2 alls 6-7-7-8-8-10-10 sinnum, prjónið A.3 (= framstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, prjónið 22-22-22-22-24-24-24 lykkjur sléttprjón (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur, prjónið A.1, prjónið A.2 alls 6-7-7-8-8-10-10 sinnum, prjónið A.3 (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu, endið með 1 lykkju slétt. Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir laskalínu. UMFERÐ 2: Haldið áfram að prjóna sléttprjón og mynstur – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í sléttprjón á ermum og í mynstri á framstykki / bakstykki. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 2-2-2-6-2-2-2 sinnum (= 4-4-4-12-4-4-4 umferðir prjónaðar) = 126-134-134-174-146-162-162 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Haldið áfram að prjóna sléttprjón og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Haldið áfram að prjóna sléttprjón og mynstur eins og áður, munið eftir hvernig útauknu lykkjurnar eru prjónaðar. UMFERÐ 3: Haldið áfram að prjóna sléttprjón og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjum er ekki aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Haldið áfram að prjóna sléttprjón og mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 16-16-18-17-22-22-22 sinnum (= 64-64-72-68-88-88-88 umferðir prjónaðar = 16-16-18-17-22-22-22 sinnum útaukning á ermum og 32-32-36-34-44-44-44 sinnum útaukning á framstykki / bakstykki) = 318-326-350-378-410-426-426 lykkjur í umferð. Útaukning er nú lokið á ermum í öllum stærðum. Að auki er útaukningu lokið á framstykki / bakstykki í stærð M, L, XL og XXL – farðu síðan í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XS, S og XXXL. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Haldið áfram að prjóna sléttprjón og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjum er ekki aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Haldið áfram að prjóna sléttprjón og mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 2-2-8 sinnum (= 4-4-16 umferðir prjónaðar). Farðu síðan í ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Öll útaukning er nú lokið, stykkið mælist ca 23-23-24-25-29-29-34 cm frá merki, nú hefur verið aukið út alls 18-18-20-23-24-24-24 sinnum á ermum og 36-36-38-40-46-46-54 sinnum á framstykki / bakstykki = 326-334-350-378-410-426-458 lykkjur á prjóni. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju slétt (þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 58-58-62-68-72-72-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-11-15-19-19-23-27 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 105-109-113-121-133-141-157 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 58-58-62-68-72-72-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-11-15-19-19-23-27 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 104-108-112-120-132-140-156 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 224-240-256-280-304-328-368 lykkjur. Haldið áfram með mynstur hringinn yfir allar lykkjur (einnig yfir nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi). Prjónið þar til stykkið mælist ca 50-52-53-55-57-59-60 cm frá merki fyrir miðju að framan – endið eftir umferð slétt yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-7-7-8 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 56-58-60-62-64-66-68 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 62-64-66-68-70-72-74 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 58-58-62-68-72-72-72 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 7-11-15-19-19-23-27 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 65-69-77-87-91-95-99 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í miðju af 7-11-15-19-19-23-27 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 3 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 10-8-5-3½-3-2½-2 cm alls 3-4-7-11-12-14-15 sinnum = 53-55-57-59-61-61-63 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 45-45-44-43-40-41-36 cm frá skiptingunni – ATH. Ef óskað er eftir að brjóta uppá ermarnar eins og á myndinni, er prjónað sléttprjón þar til ermin mælist 51-51-51-50-47-48-44 cm frá skiptingunni. Nú er prjónað stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7-5-7-9-7-11-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 60-60-64-68-68-72-72 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-7-7-7-7-8 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 51-51-51-50-47-48-44 cm frá skiptingunni ef ekki er prjónað með uppábroti og 57-57-58-57-54-55-52 cm frá skiptingunni ef prjónað er með uppábroti. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Brjótið uppá stroff neðst á ermum ef ermin er prjónuð með uppábroti. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #arctichorizonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 251-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.