Azure Drift#azuredriftsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 251-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr í miðju á þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfalt að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-116-120-124-128-132-140 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Soft Tweed. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) í 9-9-9-10-10-11-11 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn inn að röngu og við frágang verður kantur i hálsmáli ca 4-4-4-4½-4½-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 38-41-43-44-45-47-50 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í brugðna lykkju þannig: Setjið 1. merki í fyrstu lykkju (= brugðin lykkja), teljið 21-23-25-25-25-27-29 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju (= brugðin lykkja), teljið 31-33-33-35-37-37-39 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju (= brugðin lykkja), teljið 21-23-25-25-25-27-29 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju (= brugðin lykkja), það eru 31-33-33-35-37-37-39 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 1 lykkju í hverja af 4 lykkjum með merki í (aukið út 1 lykkju með því að prjóna 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju = 4 lykkjur fleiri) = 112-120-124-128-132-136-144 lykkjur. Merkin eiga að sitja á milli þessa 2 lykkja, lykkjurnar eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Umferðin byrjar á milli laskalykkja við 1. merki. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur og aukið út fyrir LASKALÍNU hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu á útaukningu og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir laskalykkjum við 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan laskalykkjum við 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 13-10-11-16-12-14-18 sinnum (= 26-20-22-32-24-28-36 umferðir prjónaðar) = 216-200-212-256-228-248-288 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Síðan er prjónað og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – ekki er aukið út yfir ermar (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 7-9-10-8-12-12-11 sinnum (= 28-36-40-32-48-48-44 umferðir prjónaðar = 7-9-10-8-12-12-11 sinnum fleiri á ermum og 14-18-20-16-24-24-22 sinnum fleiri á framstykki/bakstykki) = 300-308-332-352-372-392-420 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 20-19-21-24-24-26-29 sinnum á ermum, 27-28-31-32-36-38-40 sinnum á framstykki / bakstykki og stykkið mælist ca 19-20-22-23-26-27-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Stykkið skiptis þannig að laskalínurnar verða staðsettar inn á framstykki/bakstykki. Þ.e.a.s. samtímis sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1-1-1-1-1-3-6 lykkjur sléttprjón (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 61-61-67-73-73-75-77 lykkjur á þráð fyrir ermar, fitjið upp 8-12-14-18-20-22-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 89-93-99-103-113-121-133 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 61-61-67-73-73-75-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-12-14-18-20-22-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 88-92-98-102-112-118-127 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 194-210-226-242-266-286-314 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 8-12-14-18-20-22-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 30-30-30-31-29-30-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-20-22-24-24-26-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 212-230-248-266-290-312-346 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-7-7-7 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 55-56-58-60-62-64-65 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 60-62-64-66-68-70-72 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 61-61-67-73-73-75-77 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-12-14-18-20-22-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 69-73-81-91-93-97-101 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í miðju af 8-12-14-18-20-22-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 4-4-4-4-4-4-4 sinnum, prjónið 2-2-2-2-1½-1½-1½ cm á eftir síðustu úrtöku, fækkið síðan um 2 lykkjur í hverjum 11-7-4½-3-3-2½-2 cm alls 4-6-9-13-13-15-16 sinnum = 53-53-55-57-59-59-61 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 48-48-46-46-43-42-41 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 60-60-62-64-68-68-70 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-7-7-7 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 54-54-52-52-50-49-48 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #azuredriftsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 251-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.