Marie skrifaði:
Je ne comprends pas ce qu'est l'icord dans le cas du rabat de mailles. Impossible de monter trois mailles, d'avoir le fil à trois mailles du bord, d'en tricoter trois autres, de repasser les premières par dessus les autres à gauche, et puis quand rabat-on ?? Tricote t-on en rond ? Combien de rangs ? La vidéo ne correspond pas à ce qu'on cherche à faire. Pouvez-vous envoyer une vidéo qui correspond exactement à notre cas.
31.03.2025 - 21:59DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie, on monte les nouvelles mailles sur l'aiguille droite et on les glisse sur l'aiguille gauche, sans les tricoter, ainsi, le fil va se trouver après la dernière des mailles montées = à 3 mailles du bord de l'aiguille; nous avons 2 vidéos montrant comment rabattre avec un I-cord: dans celle-ci, on monte 2 mailles avant de rabattre les mailles et dans celle-ci, on en monte 4 et on rabat les mailles tout autour de l'ouvrage (en bas d'un pull par ex.). L'une de ces vidéos - ou bien les 2, devraient pouvoir vous aider. Bon tricot!
01.04.2025 - 08:59
Claudette skrifaði:
Désolée, je ne peux pas voir les photos du modèle ni les diagrammes. Pourquoi?
01.03.2025 - 21:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Claudette, essayez de nettoyer le cache / supprimer les cookies ou bien tentez avec un autre navigateur ou un autre appareil. Bon tricot!
03.03.2025 - 12:08
Harbour Day#harbourdaysweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, v-hálsmáli og stuttum ermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 257-17 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (frá réttu): Aukið út 1 lykkju til vinstri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út 1 lykkju til hægri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (frá röngu): Aukið út 1 lykkju til vinstri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út 1 lykkju til hægri: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. KANTLYKKJUR HÆGRI ÖXL: RÉTTA: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið út umferðina. KANTLYKKJUR VINSTRI ÖXL: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið út umferðina. RANGA: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. I-CORD AFFELLING: Í lok umferðar og eftir að síðasta lykkjan í umferð hefur verið prjónuð: Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu. Lyftið 3 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjóna á með sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndist lítill hólkur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. UMFERÐ 3 (rétta): Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið UMFERÐ 3 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið lítið spor sem bindur saman byrjun og lok á I-cord. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við, jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að að handvegi. Bakstykkið er látið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er prjónað fyrst í 2 hlutum. Byrjað er að prjóna upp lykkjur meðfram hægri öxl, prjónið samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á vinstri öxl. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett inn á sama prjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveginn. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 21-23-23-27-29-29 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið stroff eins og áður yfir allar lykkjur, prjónið upp 3 lykkjur í lok umferðar, lykkjurnar eru prjónaðar upp meðfram hlið á stykki, í ysta lykkjuboga í umferð sem er prjónuð = 24-26-26-30-32-32 lykkjur. UMFERÐ 5: Nýjar lykkjur eru prjónaðar brugðið, prjónið stroff eins og áður, prjónið upp 3 lykkjur í lok umferðar, lykkjur eru prjónaðar upp meðfram hlið á stykki, í ysta lykkjuboga í umferð sem er prjónuð = 27-29-29-33-35-35 lykkjur. Síðan er prjónað og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 12-13-14-15-16-18 sinnum (= 24-26-28-30-32-36 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 75-81-85-93-99-107 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu – þar til stykkið mælist 12-13-13-14-13-14 cm mælt yst meðfram handvegi. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-3-3-4-4 sinnum = 79-85-91-99-107-115 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 14-15-16-17-17-18 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með eina umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykki prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Finnið hægri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði / hjálparprjóni snúi að þér, hægri hlið á stykki = hægri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 24-26-28-30-32-36 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 3 KANTLYKKJUR við miðju að framan – lesið leiðbeiningar að ofan (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm , aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 1 lykkja slétt, 3 kantlykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 kantlykkjur og brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 13-14-14-16-17-17 sinnum (= 26-28-28-32-34-34 umferðir prjónaðar) = 37-40-42-46-49-53 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu, síðan eru lykkjurnar settar á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI ÖXL: Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 24-26-28-30-32-36 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón með 3 KANTLYKKJUR við miðju að framan – lesið leiðbeiningar að ofan (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 9 cm , aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 kantlykkjur, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 kantlykkjur. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 13-14-14-16-17-17 sinnum (= 26-28-28-32-34-34 umferðir prjónaðar) = 37-40-42-46-49-53 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu (næsta umferð er prjónuð frá röngu). Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 37-40-42-46-49-53 lykkjur frá vinstri öxl, setjið lykkjur frá hægri öxl á vinstri prjón og prjónið þær síðan í sléttprjóni = 74-80-84-92-98-106 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: Prjónið 36-39-41-45-48-52 lykkjur slétt, setjið næstu lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið lykkjuna af kaðlaprjóni slétt, prjónið síðustu 36-39-41-45-48-52 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 24-25-25-26-27-28 cm. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ATH! Það er 1 lykkja færri á framstykki en á bakstykki. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-3-3-4-4 sinnum (= 4-4-6-6-8-8 prjónaðar umferðir) = 78-84-90-98-106-114 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 26-27-28-29-31-32 cm, endið á umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón yfir 78-84-90-98-106-114 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið síðan sléttprjón yfir 79-85-91-99-107-115 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 4-4-6-6-8-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 165-177-193-209-229-249 lykkjur í umferð. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið, fyrir miðju í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 25-26-27-28-28-29 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp undir ermi. Fellið af með I-CORD – lesið útskýringu að ofan. ERMAR: Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg (ATH! Ekki þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 5-6 cm niður á framstykki = miðja ofan á öxl). Notið hringprjón 4, byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi og prjónið upp 68-70-76-78-82-86 lykkjur í kringum handveg – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki meðfram handveg. Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fá betra form og passi betur, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 9-10-10-10-11-11 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 9-10-10-10-11-11 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7-7-6-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 7-7-6-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Snúið hefur verið við alls 8-8-10-14-14-16 sinnum (= 4-4-5-7-7-8 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun á umferð (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt frá miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 2-2-3-3-4-4 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan lykkjum í hverjum 10-10-10-10-5-5 cm 1-1-1-1-2-2 sinnum, fækkið alls 3-3-4-4-6-6 sinnum = 62-64-68-70-70-74 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 24-24-24-22-21-20 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir ermi. Fellið af með I-CORD – munið eftir útskýringu að ofan. Ermin mælist ca 25-25-25-23-22-21 cm frá merki fyrir miðju ofan á öxl. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #harbourdaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.