Ac skrifaði:
Do you knit this with just one strand or is it double stranded?
14.06.2025 - 15:44DROPS Design svaraði:
Hi Ac, this jumper is knitted with only one strand. Happy knitting!
14.06.2025 - 19:01
Ingri skrifaði:
Hei, skal det ikke strikkes frem og tilbake med forkortede pinner for en ermetopp, slik det står i beskrivelsen? Det står ikke noe om dette i selve oppskriften.
23.05.2025 - 11:54DROPS Design svaraði:
Hei Ingri. Oppskriften er oversendt Design avd. slik at de kan ta en dobbeltsjekk. mvh DROPS Design
26.05.2025 - 11:24
Cassie skrifaði:
If I want slimmer sleeves can I dcrease by 4 stitches (2 on each side) instead of two stitches?
12.05.2025 - 08:19DROPS Design svaraði:
Hi Cassie, it will be better to decrease 2 stitches per round but more often, e.g. decrease 2 stitches every 1 cm 5-5-6-6-7-7 times (instead of 1½ cm). You have to calculate that for your size and desired sleeve length. Happy knitting!
12.05.2025 - 09:54
Ester Morén skrifaði:
I den svenska översikten står det att ärmen ska stickas med förkortade varv för att skapa en ärmkulle, men sedan är det inga förkortade varv i själva mönstret. Kollade det engelska mönstret för att vara säker och där nämns inte förkortade varv alls. Kanske ett fel i det svenska mönstret?
05.05.2025 - 22:31
Maribel Muñoz skrifaði:
Ahora sí aparece esa sección. Gracias por corregirlo.
04.03.2025 - 19:18
Maribel Muñoz skrifaði:
Afortunadamente en la versión en inglés sí está la explicación, lo seguiré ahí. Pero por favor, corrijan la explicación en español, no todas las tejedoras podrán seguir un patrón en inglés. Muchas gracias.
28.02.2025 - 22:53
Maribel Muloz skrifaði:
¿No faltan explicaciones entre FRENTE DERECHO y CUERPO? No explica cómo unir los dos frentes ni cuánto tejer antes de unir frente y espalda. He llegado tejiendo a este punto y me encuentro con que no puedo continuar!!
28.02.2025 - 22:48DROPS Design svaraði:
Hola Maribel, las explicaciones para unir los dos delanteros están en la sección: FRENTE (sección derecha e izquierda juntas). Aquí se unen ambos delanteros: trabajas sobre los puntos del frente derecho, montas para el escote y trabajas sobre los puntos del frente izquierdo. En la 1ª fila del cuerpo te explican cómo unen el delantero y la espalda: trabajas sobre el delantero, montas puntos bajo la manga, trabajas la espalda, montas puntos bajo la segunda manga. Seguir trabajando el cuerpo en redondo, comenzando en el delantero.
02.03.2025 - 19:51
Neptune Rings#neptuneringssweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, röndum og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-8 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR: Sjá mynsturteikningu A.1 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ATH: Þegar rendur eru prjónaðar fram og til baka og þráðurinn sem prjóna á með er í gagnstæðri hlið, færið lykkjurnar aftur að byrjun umferðar, þannig að prjónaðar séu 2 umferðir frá sömu hlið til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi lykkjum jafnt yfir í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fjölga á út (t.d. 196 lykkjur), deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 6,5. Í þessu dæmi er lykkjum fjölgað með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 6. og 7. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónað rendur jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmáli. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmáli hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermi í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við í hring. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur prjónaður í hring í hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið aðeins laust upp 30-32-34-36-40-42 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum kyrrahafsblár DROPS Brushed Alpaca Silk. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið síðan RENDUR – lesið leiðbeiningar að ofan JAFNFRAMT því sem aukið er út – prjónið þannig: UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið A.1, lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 1 lykkju brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 1 lykkja brugðið. EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 15-16-17-18-19-21 sinnum (= 30-32-34-36-38-42 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru = 90-96-102-108-116-126 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni í röndum - Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu – þar til stykkið mælist 14-15-15-16-17-18 cm mælt frá merki yst meðfram handveg, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur inn að öxl þannig: Notið litinn kyrrahafsblár og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 30-32-34-36-38-42 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið A.1 fram og til baka (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 34-36-38-40-42-46 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Notið litinn kyrrahafsblár og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 30-32-34-36-38-42 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Prjónið A.1 fram og til baka (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 34-36-38-40-42-46 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 34-36-38-40-42-46 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 22-24-26-28-32-34 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar (passið uppá að uppfitjunarkanturinn verði ekki of stífur), prjónið 34-36-38-40-42-46 lykkjur frá vinstra framstykki = 90-96-102-108-116-126 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 26-27-29-30-31-32 cm, endið með umferð frá röngu – stillið af að rendurnar endi á sama stað og á bakstykki þannig að rendurnar passi þegar stykkið er prjónað í hring. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 90-96-102-108-116-126 lykkjur frá framstykki eins og áður, fitjið upp 8-8-10-12-16-16 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 90-96-102-108-116-126 lykkjur frá bakstykki eins og áður og fitjið upp 8-8-10-12-16-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 196-208-224-240-264-284 lykkjur í umferð. Nú er umferðin prjónuð í hring. Prjónið A.1 þar til stykkið mælist ca 33-34-33-34-34-35 cm frá handvegi – endið eftir rönd með litnum kyrrahafsblár. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum kyrrahafsblár JAFNFRAMT sem aukið er út um 30-36-36-42-42-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 = 226-244-260-282-306-332 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm, mælt frá innst við hálsmál. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = fyrir miðju ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki sami staður og þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur ca 6 til 7 cm niður á framstykki). Notið litinn kyrrahafsblár og prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 3 og byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 80-84-90-94-102-106 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið A.1 hringinn JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt fyrir miðju undir ermi fækkið um 2 lykkjur 3 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 1½ cm alls 5-5-6-6-7-7 sinnum = 64-68-72-76-82-86 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 47-46-44-44-42-41 cm frá miðju ofan á öxl – endið eftir rönd með litnum kyrrahafsblár. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með litnum kyrrahafsblár JAFNFRAMT því sem aukið er út um 12-12-12-12-14-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 76-80-84-88-96-100 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 51-50-49-49-48-47 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3 og litinn kyrrahafsblár. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 100 til 130 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Prjónið 4 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og fellið af aðeins laust. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #neptuneringssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.