Madde skrifaði:
Sunday clouds
18.01.2025 - 12:31
Chris skrifaði:
Cloud
17.01.2025 - 14:05
Anne skrifaði:
Hyacinth
16.01.2025 - 19:50
Judy Del Signore skrifaði:
Beautiful
16.01.2025 - 13:34
Lynn Daines skrifaði:
Love it!
16.01.2025 - 13:00
Petra skrifaði:
Wird von oben nach unten gearbeitet. Halsbündchen gefällt mir.
16.01.2025 - 12:50
Morning Dream#morningdreamsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-104-108-116-120 lykkjur á hringprjón 4,5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Prjónið 3 umferðir slétt. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið). Prjónið sléttprjón 4-4-4-5-5-5 cm. Kantur í hálsmáli mælist ca 6-6-6-7-7-7 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 33-34-35-36-38-39 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 27-29-31-33-37-39 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 27-29-31-33-37-39 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. Munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-8-9-8-7 sinnum (= 6-6-16-18-16-14 prjónaðar umferðir) = 120-124-168-180-180-176 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni og aukið síðan út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 11-12-10-11-13-15 sinnum (= 44-48-40-44-52-60 umferðir prjónaðar = 11-12-10-11-13-15 sinnum útaukning á ermum, 22-24-20-22-26-30 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 252-268-288-312-336-356 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið, hefur verið aukið út alls 25-27-28-31-34-37 sinnum á framstykki/bakstykki og 14-15-18-20-21-22 sinnum á ermum. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 21-23-24-27-29-32 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Haldið eftir fyrstu lykkju í umferð (þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 47-49-55-59-61-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 79-85-89-97-107-115 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 47-49-55-59-61-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 78-84-88-96-106-114 lykkjur sléttprjón (= alls 79-85-89-97-107-115 lykkjur á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 178-194-206-226-250-270 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið), síðan eru prjónaðar 4 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Fellið af með hringprjón 4,5. Peysan mælist 45-47-49-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 47-49-55-59-61-63 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 57-61-69-75-79-83 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skipting, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 10-10-5-3½-3-2½ cm alls 3-4-7-9-10-11 sinnum = 51-53-55-57-59-61 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-39-39-36-34-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 1 lykkju í umferð 1 = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið 4 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Fellið af með sokkaprjóna 4,5. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #morningdreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.