Luckywilder skrifaði:
There is an error in the sleeve marker split for the medium size. It indicates 18 - 26 - 18 - 26 it should be 20 -26 - 20 - 26 since next instructions are knit 20 and adds up to the correct # of stitches
24.02.2025 - 20:58DROPS Design svaraði:
Dear Luckywilder, please note that the 4 markers are each inserted in one stitch (not between stitches), so that you will have: 1+18+1+26+1+18+1+26=92. Happy knitting!
25.02.2025 - 10:12
Anna Paola Majer skrifaði:
Ho finito lo sprone e devo dividere corpo e maniche: perchè "Lavorare le prime 52 maglie in sospeso per la manica, avviare 10-maglie (a lato sotto la manica)": non dovrei mettere subito in sospeso le maglie per la manica per iniziare il corpo? Grazie!
12.02.2025 - 22:40DROPS Design svaraði:
Buonasera Anna Paola, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!
13.02.2025 - 22:17
AH skrifaði:
Leider wieder eine Anleitung ohne verkürzte Reihen, womit der Halsausschnitt besser sitzen könnte.
24.01.2025 - 10:20
Frosted Dawn#frosteddawnsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir herra úr 2 þráðum DROPS Alpaca eða DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 251-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfalt að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Alpaca eða DROPS Flora (= 2 þræðir) – öll peysan er prjónuð með 1 þræði í hvorum lit. Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 10-10-10-12-12-12 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 5-5-5-6-6-6 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 33-33-35-35-37-37 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjóni 5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur kallast nú laskalykkjur. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 20-18-20-18-20-18 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 22-26-26-30-30-34 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 20-18-20-18-20-18 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það er eftir 22-26-26-30-30-34 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið 1 umferð þannig: * Prjónið 22-20-22-20-22-20 lykkjur slétt, prjónið næstu 22-26-26-30-30-34 lykkjur slétt jafnframt því sem aukið er út um 6-4-6-6-6-6 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= 28-30-32-36-36-40 lykkjur) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 100-100-108-112-116-120 lykkjur. Nú er prjónað sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalínu (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-8-7-10-7-9 sinnum (= 4-16-14-20-14-18 prjónaðar umferðir) = 116-164-164-192-172-192 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu á undan / á eftir hverri laskalykkju þannig að einungis er aukið út á framstykki og bakstykki (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur – munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er að ofan. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 10-8-9-8-11-11 sinnum (= 40-32-36-32-44-44 prjónaðar umferðir). Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út alls 22-24-25-26-29-31 sinnum á framstykki og bakstykki og 12-16-16-18-18-20 sinnum á ermum = 236-260-272-288-304-324 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-23-24-26-28 cm frá merki eftir kant í hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 46-52-54-56-58-60 lykkjur á þráð, fitjið upp 10-10-14-16-18-20 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 72-78-82-88-94-102 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-52-54-56-58-60 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 72-78-82-88-94-102 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-208-224-244 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 50-52-54-55-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 20-20-20-24-28-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 184-196-212-232-252-272 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 56-58-60-62-64-66 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 62-64-66-68-70-72 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-52-54-56-58-60 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið leiðbeiningar ERMI = 56-62-68-72-76-80 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-14-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6-4½-3½-3-2½-2½ cm alls 8-10-12-13-14-15 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 47-46-45-44-42-40 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm er fellt laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 53-52-51-51-49-47 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frosteddawnsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 251-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.