Vintage Vibe Baubles#vintagevibebaubles |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð jólakúla / jólaskraut úr DROPS Safran. Stykkið er heklað í 2 hlutum í hring frá miðju og út. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1633 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið fyrsta stuðli út með 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Í byrjun umferðar með hálfum stuðlum, skiptið fyrsta hálfa stuðli út með 2 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun umferðar Í byrjun umferðar með fastalykkjum, skiptið fyrstu fastalykkju út með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. 4 STUÐLAR SAMAN: Heklið 1 stuðul á milli 2 stuðla frá fyrri umferð, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 2 stuðla til viðbótar um sama bilið, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegnum alla stuðlana, heklið 1 stuðul til viðbótar um sama bilið, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni. ATH: Þegar fyrsti stuðlahópurinn í umferð er heklaður saman, skiptið fyrsta stuðlinum út með 2 loftlykkjur. 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Heklið 1 stuðul um sama loftlykkjuboga, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul um næsta loftlykkjuboga, en nú er síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LITASKIPTI: Þegar skipta á um lit í næstu umferð, verður skiptingin fallegri með nýjum lit með því að skipta um lit áður en síðasta keðjulykkjan er hekluð frá fyrri umferð. LITIR: Kúlurnar eru heklaðar í mismunandi litasamsetningum. LITUR-1 = marsipan LITUR-2 = sægrænn LITUR-3 = kaffi LITUR-4 = kirsuber LITUR-5 = mosagrænn KÚLA-1: Uppfitjun + umferð 1: Litur-1. Umferð 2: Litur-2. Umferð 3 og 4: Litur-3. Umferð 5: Litur-1. Umferð 6: Litur-2. KÚLA-2: Uppfitjun + umferð 1: Litur-3. Umferð 2: Litur-5. Umferð 3 og 4: Litur-1. Umferð 5: Litur-3. Umferð 6: Litur-5. KÚLA-3: Uppfitjun + umferð 1: Litur-2. Umferð 2: Litur-1. Umferð 3 og 4: Litur-3. Umferð 5: Litur-2. Umferð 6: Litur-1. KÚLA-4: Uppfitjun + umferð 1: Litur-1. Umferð 2: Litur-3. Umferð 3 og 4: Litur-5. Umferð 5: Litur-1. Umferð 6: Litur-3. KÚLA-5: Uppfitjun + umferð 1: Litur-1. Umferð 2: Litur-5. Umferð 3 og 4: Litur-4. Umferð 5: Litur-1. Umferð 6: Litur-5. KÚLA-6: Uppfitjun + umferð 1: Litur-5. Umferð 2: Litur-1. Umferð 3 og 4: Litur-4. Umferð 5: Litur-5. Umferð 6: Litur-1. KÚLA-7: Uppfitjun + umferð 1: Litur-2. Umferð 2: Litur-4. Umferð 3 og 4: Litur-1. Umferð 5: Litur-2. Umferð 6: Litur-4. KÚLA-8: Uppfitjun + umferð 1: Litur-4. Umferð 2: Litur-1. Umferð 3 og 4: Litur-2. Umferð 5: Litur-4. Umferð 6: Litur-1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLAKÚLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Jólakúlan er hekluð í hring frá miðju og út, í tveimur alveg eins stykkjum. Stykkin eru hekluð saman í jólakúlu eins og útskýrt er í uppskrift og fyllt með vatt. Í lokin er heklaður kantur í kringum jólakúluna og lykkja fest í toppinn á jólakúlunni. STYKKI-1: Lesið LITIR í útskýringu að ofan. Notið heklunál 3 og uppfitjunar lit í DROPS Safran. Heklið 4 loftlykkjur og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LITASKIPTI og heklið mynsturteikningu A.1 hringinn, eða heklið eins og útskýrt er að neðan. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. UMFERÐ 1: Heklið 12 stuðla um hringinn, skiptið um lit. UMFERÐ 2: * Heklið 4 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN á milli 2 fyrstu / næstu stuðla frá fyrri umferð – lesið útskýringu að ofan, 2 loftlykkjur *, heklið frá *-* umferðina hringinn = 12 stuðlahópar með 2 loftlykkjur á milli hverra stuðlahópa, skiptið um lit. UMFERÐ 3: Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta loftlykkjuboga, * 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, síðan eru 2 STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN – lesið útskýringu að ofan, með því að hekla fyrsta stuðul um sama loftlykkjuboga og annan stuðul um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* alls 12 sinnum = 36 lykkjur í umferð. UMFERÐ 4: * Heklið 1 hálfan stuðul í hverja af 8 fyrstu / næstu lykkjum, 2 hálfir stuðlar í næstu lykkju *, heklið frá *-* alls 4 sinnum = 40 lykkjur. Klippið og festið þráðinn. STYKKI-2: Heklið á sama hátt og stykki-1. FRÁGANGUR: Munið eftir LITIR í útskýringu að ofan. Leggið 2 stykkin saman – passið uppá að byrjun umferðar liggi yfir hvora aðra á báðum stykkjunum. Byrjið við byrjun umferðar og heklið saman bæði stykkin frá réttu með því að hekla A.2 hringinn (= 5. og 6. umferð – munið eftir að fylla kúluna með vatti jafnframt því sem 5. umferð er hekluð), eða heklið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 5: Heklið í gegnum bæði lögin og í gegnum allan lykkjubogann með 1 fastalykkju í hverja lykkju, en skiljið eftir smá op í lok umferðar, fyllið kúluna með vatti og heklið saman síðasta hlutann af opinu, skiptið um lit. UMFERÐ 6: * 3 loftlykkjur, 1 stuðul í fyrstu loftlykkju sem var hekluð, heklið yfir 1 fastalykkju frá umferðinni að neðan, heklið 1 keðjulykkju í næstu lykkju *, heklið frá *-* umferðina hringinn. Klippið og festið þræði. LYKKJA: Klippið snúru eða afgangsgarn ca 16 cm, þræðið snúruna í gegnum fyrstu lykkju í umferð, hnýtið hnút í endann. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #vintagevibebaubles eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1633
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.