Åsa Säfström skrifaði:
Hej igen, det stämmer inte. Jag jämför möster med \"Winter Swirl Cardigan\"\r\nStickad kofta i DROPS Air. Det är en liknande modell i annat garn och stickor. Till den stickbeskrivningen finns ökning och slätstickning i \"ok\"- delen beskrivet samt när mösterstickning ska komma igång. Vem kan översätta den delen till detta stickmönstret?
04.12.2024 - 15:18
Åsa Säfström skrifaði:
Hej, Enligt stickbeskrivning ska mönstret börja direkt efter halskant. Detta kan inte stämma. När ska den börja?
03.12.2024 - 20:24DROPS Design svaraði:
Hej Åsa. Du börjar att sticka diagrammen direkt efter halskanten, men om du ser på diagrammen så ser du den tvåfärgade delen börjar en bit upp på diagrammen. Mvh DROPS Design
04.12.2024 - 08:06
COLOMBUS LAURENCE skrifaði:
Bonjour, je voudrais tricoter ce modèle de veste sans aucun motif une veste unie. Combien de pelotes me faudrait-il s’il vous plaît ? Je vous remercie.
12.11.2024 - 14:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Colombus, comme ce modèle a été tricoté avec jacquard, nous avons seulement la quantité pour chaque couleur - et nous n'avons plus le modèle original; vous pouvez ainsi simplement additionner toutes les couleurs, il vous en faudra peut être un peu moins - vous pouvez vous inspirer d'un modèle similaire de même tension (cf ici par ex.). Bon tricot!
12.11.2024 - 16:05
Siv skrifaði:
Oppskriften mangler
22.10.2024 - 18:52
Spirit of Winter Cardigan#spiritofwintercardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, tvöföldum kanti í hálsmáli, i-cord og norrænu mynstri með stórum stjörnum. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-30 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þessi samhverfa útaukning gefur 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1-4 að neðan: 1. Lyftið yfir fyrstu lykkju af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Hafið þráðinn sem prjónað er með aftan við stykkið. 2. Stingið inn vinstri prjóni aftan í lyftu lykkjuna og síðan inn á milli lyftu lykkjunnar og fyrstu lykkju á hægri prjóni. 3. Sláið 1 sinni uppá prjóninn með þráðinn utan um hægri prjón og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndist 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppi ysta hluta af lykkjunni af vinstri prjóni og prjónið síðan hinn þráðinn á lykkjunni slétt í gegnum fremri lykkjubogann. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju. LEIÐBEININGAR PRJÓN-1: Þegar prjónuð er rönd með litnum marshmallow fyrir miðju í mynsturteikningu, á að halda á fram að prjóna kanta að framan í litnum ljós beige. Notið auka dokku í hvorri hlið á stykkinu til að prjóna kanta að framan með, passið uppá að þráðurinn í litnum ljós beige og þráður í litnum marshmallow séu tvinnaðir saman að innanverðu í kanti að framan – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR PRJÓN-2: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr fyrir miðju á þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 11-11½-9½-9½-10-10 cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 60-64-64-68-68-72 lykkjur á hringprjón 8 með litnum ljós beige í DROPS Snow. Skiptið yfir á hringprjón 6 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 5-5-5-6-6-6 cm (= ca hæð á kanti í hálsmáli þegar hann er brotinn tvöfaldur). Í lok hvorra af næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 5 lykkjur fyrir kant að framan = 70-74-74-78-78-82 lykkjur í umferð. Haldið áfram með stroff eins og áður, en ystu 6 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 11-11-11-13-13-13 cm – endið með umferð frá röngu og jafnið lykkjufjöldann út til 67-73-73-76-76-81 lykkjur í síðustu umferð. Setjið 1 merki innan við kant að framan í annarri hliðinni á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Skiptið yfir á hringprjón 8, prjónið kant að framan eins og áður, prjónið A.1, * prjónið A.2, prjónið A.3 *, prjónið frá *-* alls 5 sinnum, prjónið A.2, prjónið A.4 og prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út í mynstri eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar grunnliturinn hefur breyst frá litnum ljós beige yfir í litinn marshmallow, á að prjóna kant að framan áfram í litnum ljós beige – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN-1. Prjónið þar til berustykkið mælist 21-23-24-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar – ATH: Öll útaukning í mynsturteikningu á nú að vera lokið = 169-191-191-227-227-239 lykkjur í umferð. Mynstrið er prjónað til loka á fram- og bakstykki og ermum. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 30-34-34-39-40-42 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30-34-34-42-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-10-6-10-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 49-55-55-65-67-71 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 30-34-34-42-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-10-6-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 30-34-34-39-40-42 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 121-135-143-155-167-175 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-10-6-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður með 6 lykkjur í kanti að framan í hvorri hlið eins og áður - ATH: Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hvorri hlið undir ermum, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er þar til 1 lykkja er eftir hvoru megin við merkiþræðina og prjónið þessar 2 lykkjur í grunnlit. Þegar A.1 til A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón og kant að framan fram og til baka eins og áður í litnum ljós beige þar til stykkið mælist 43-45-47-47-49-51 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 21-23-27-27-27-31 lykkjur jafnt yfir í umferð = 142-158-170-182-194-206 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Peysan mælist 49-51-53-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 30-34-34-42-40-42 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-10-6-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 36-40-44-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-10-6-10-10 nýjar lykkjur undir ermi – merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Nú á að prjóna mynstur JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað mitt undir ermi – lesið þess vegna MYNSTUR og ÚRTAKA að neðan áður en ermin er prjónuð áfram. MYNSTUR: Munið eftir úrtöku að neðan áður en prjónað er áfram. Byrjið umferð við merkiþráðinn mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur frá berustykki – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN-2 – ATH: Stjarnan er ekki samhverf á erminni og mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir erminni, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er þar til 1 lykkja er eftir hvoru megin við merkiþráðinn og prjónið þessar 2 lykkjur í grunnlit. Þegar mynstrið hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón með litnum ljós beige. ÚRTAKA: Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-3-3-2-2-1½ cm alls 1-3-4-6-6-7 sinnum = 34-34-36-36-38-38 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-38-38-37-35 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 6-6-8-8-6-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 40-40-44-44-44-44 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 46-44-44-45-44-42 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #spiritofwintercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.