Andrea skrifaði:
Wenn ich beim Vorder und Rückenteil die zweite Runde des Diagramms stricke endet meine Reihe nicht wie das Diagramm mit einer linken Masche,obwohl die Anzahl der Maschen richig ist ...? Gruß Andrea
23.11.2024 - 20:15DROPS Design svaraði:
Siehe Antwort unten :)
25.11.2024 - 08:26
Andrea skrifaði:
Strickt man die zugenommenen Maschen im Muster A1 in der zweiten Runde beginnend also links ab? Vielen Dank
23.11.2024 - 09:47DROPS Design svaraði:
Liebe Andrea, die neuen Maschen beim Vorder- und Rückenteil stricken Sie im Muster, dh am Anfang Vorder/Rückenteil stricken Sie die neuen Maschen wie ein neues Rapport aber lesen Sie das Diagram links nach rechts und am Ende Vorder/Rückenteil stricken Sie die neuen Maschen wie ein neues Rapport aber dieses Mal lesen Sie das Diagram rechts nach links, so wird sich das Muster erweitern. Viel Spaß beim Stricken!
25.11.2024 - 08:03
Sigrid skrifaði:
Tere, Passe osas on vist väike viga: “Jätka kasvatustega raglaani jaoks igal ringil, aga iga teine kord kasvata ainult hõlmadel ja seljaosal”. Peaks vist ikka olema: “ Jätka kasvatustega raglaani jaoks igal TEISEL ringil, aga iga teine kord….”. Muidu ei lähe järgnevaga sugugi kokku ja inglise keeles on samuti kirjas “every other round” ehk igal teisel. Saan ma õigesti aru? Aitäh!
07.11.2024 - 21:43DROPS Design svaraði:
Tere Sigrid! Viga parandatud, tänan teatamast!
13.11.2024 - 23:18
Christiane skrifaði:
Beste,jullie hebben fantastische patronen,spijtig genoeg kan ik ze niet breien met rondbreinaalden. Zijn er gewone patronen met gewone priemen ook aub Dank u
07.11.2024 - 13:43
Femke Verdegem skrifaði:
Word bij de halsrand de 1ste markeerdraad geplaatst na de eerste de eerste 28 gebreen steken of moet je die gewoon overzetten zonder te breien en begint de pas hier?
23.10.2024 - 11:48DROPS Design svaraði:
Dag Femke,
Je breit die steken niet wanneer je die markeerdraad invoegt en je zet de steken ook niet over. Je plaatst dus een markeerdraad 28 steken verderop.
30.10.2024 - 19:42
Iced Mint#icedmintsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-36 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni á ermum og í A.1 á framstykki og bakstykki. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (merkið situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-112-120-120-128-128 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Merino Extra Fine. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt. Prjónið stroff í 15 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 7 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 26-27-28-28-30-31 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja og þessar lykkjur kallast nú fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 24 lykkju (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 32-32-36-36-40-40 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 24 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 32-32-36-36-40-40 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið síðan þannig: 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt yfir næstu 22 lykkjur, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt, aukið út fyrir 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt yfir næstu 30-30-34-34-38-38 lykkjur og aukið út 3-3-7-7-11-15 lykkjur jafnt yfir (þessi umferð jafngildir fyrstu umferð í A.1), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt yfir næstu 22 lykkjur, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið slétt yfir næstu 30-30-34-34-38-38 lykkjur og aukið út 3-3-7-7-11-15 lykkjur jafnt yfir (þessi umferð jafngildir fyrstu umferð í A.1), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, 1 lykkja slétt. Nú eru 126-126-142-142-158-166 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur A.1 á framstykki og bakstykki – byrjið í 2. umferð í mynstri. Ermar og 2 lykkjur í hverri laskalínu eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á ermum í 4. hverri umferð, aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur. Aukið svona út þar til aukið hefur verið út alls 40-44-40-44-48-50 sinnum á framstykki / bakstykki ásamt fyrstu útaukningu (20-22-20-22-24-25 sinnum á ermum) = 358-382-374-398-438-458 lykkjur. Útaukningar í stærð S og M er nú lokið. Í stærð L-XL-XXL- XXXL er aukið út þannig – í stærð S og M er útaukningu lokið: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið er út á framstykki / bakstykki og ermum, endurtakið þessa útaukningu alls 0-0-4-4-4-2 sinnum (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). ALLAR STÆRÐIR: Nú hefur verið aukið út alls 40-44-44-48-52-52 sinnum á framstykki / bakstykki og 20-22-24-26-28-27 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 358-382-406-430-470-474 í umferð og stykkið mælist ca 25-28-28-30-33-33 cm frá merki mitt að framan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 64-68-72-76-80-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-9-13-13-21 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 115-123-131-139-155-159 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 64-68-72-76-80-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-9-13-13-21 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 115-123-131-139-155-159 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 240-256-280-304-336-360 lykkjur. Prjónið mynstur hringinn þar til stykkið mælist 44-46-47-49-51-53 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist Þegar stroffið mælist 6-6-7-7-7-7 cm fellið af. Peysan mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 64-68-72-76-80-78 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 5-5-9-13-13-21 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 69-73-81-89-93-99 lykkjur. Setjið 1 merki mitt í 5-5-9-13-13-21 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkið. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6½-5-3-2-1½-1½ cm alls 5-6-9-11-12-14 sinnum = 59-61-63-67-69-71 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 36-34-32-31-28-28 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-7-9-9-7-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 64-68-72-76-76-80 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-7-7-7-7 cm eru prjónaðar 4 umferðir sléttprjón. Fellið af aðeins laust með garðaprjóni. Ermin mælist ca 42-40-39-38-35-35 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #icedmintsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.