Wendy Allen skrifaði:
I am setting the markers for the raglan, working the yoke. If I use the four numbers for XL (24, 44, 24, 44) there are four stitches remaining. (Cast on 140; markers total 136) Is this an error in the sizing adjustment? Should I make the front and back 46 stitches (vice 44) so they are balanced? Or do I do something else with the four stitches? Wendy Allen
01.06.2025 - 02:24DROPS Design svaraði:
Dear Wendy, the markers are inserted into stitches. So those 4 remaining stitches are the stitches with markers. So you have: stitch with marker-1 (=1), 24 stitches (=sleeve), stitch with marker-2 (=1), 44 stitches (= front piece), stitch with marker-3 (=1), 24 stitches (= sleeve), stitch with marker-4 (=1), 44 stitches (= back piece) = 140 sts. Happy knitting!
01.06.2025 - 23:16
Mary Ridd skrifaði:
What is medium size?
22.02.2025 - 19:56DROPS Design svaraði:
Dear Mary, the measurements for the M size are indicated in the size chart at the bottom of the pattern; you can read more on how to interpret this chart here. Happy knitting!
24.02.2025 - 00:25
Sylviane Carrée skrifaði:
Rebonjour, Au sujet de la pose des marqueurs pour le raglan de la taille XL : - faut-il poser les marqueurs à partir du marqueur des 48 premières mailles ? - j’ ai recompter à plusieurs reprises mais après avoir posé les marqueur, il me reste 3 mailles. Je ne comprends pas ?
08.12.2024 - 12:26Sylviane Carrée svaraði:
Bonjour, Hier, j.ai déposé une question concernant la pose des 4 marqueurs pour le raglan. Ne vous dérangez pas car j’ai trouvé la solution. Excusez-moi pour le dérangement
09.12.2024 - 06:55
Sylviane CARREE skrifaði:
Bonjour, pour la taille XL, je ne comprends pas l’explication : On doit augmenter pour le raglan 1 : de chaque côté des mailles avec marqueurs 8 mailles 18 fois tous les 2 rangs = 284 mailles 2 : ENSUITE tous les 2 tours pour devant et dos et tous les.4 tours pour les manches 4 et 8 mailles soit 36 fois au total = 392 mailles Pouvez-vous m’expliquer ? Merci
08.12.2024 - 07:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Carree, quand vous avez augmente 18 fois tous les 2 tours et que vous avez 284 mailles, augmentez maintenant ainsi: (1 tour en augmentant 8 m comme avant = 2 m pour le dos, 2 pour le devant et chaque manche, 1 tour sans augmenter, 1 tour en augmentant seulement 2 m pour le dos et le devant, pas pour les manches, 1 tour sans augmenter), tricotez 9 fois ces 4 tours = vous augmentez ainsi 18 fois pour le dos/le devant et 9 fois pour les manches soit 284+(18x4)+(9x4)=392 mailles. Bon tricot!
09.12.2024 - 08:42
Ayda skrifaði:
Hei! Jeg har et spørsmål angående bærestykket; i oppskriften står det at det skal tas ut til raglan på hver 2. pinne for forstykket og bakstykket, men bare hver 4. pinne for ermene. Jeg forstår ikke helt hva som menes/ utførelsen. Takk på forhånd!
20.11.2024 - 10:03DROPS Design svaraði:
Hej Ayda. På hver 4. pinne ökar du då på båda sidor av alla markörer (= 8 m ökade), men på var 2. pinne så ökar du kun på de sidor av markörerna som hör til forstykket og bakstykket (= 4 m ökade). Mvh DROPS Design
21.11.2024 - 13:53
Deep River#deepriversweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN MERKI: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur. Á EFTIR MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykki og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 128-132-136-140-144-148 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Daisy eða DROPS Karisma. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 45-46-47-48-49-50 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja og þessar lykkjur kallast nú laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1. merki í fyrstu lykkju, teljið 24 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 38-40-42-44-46-48 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 24 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 38-40-42-44-46-48 lykkjur á eftir síðasta merkiþræði (= bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkin – lesið útskýringu að ofan. Aukið er út fyrir laskalínu á undan og á eftir hverri lykkju með merki (= 8 lykkjur fleiri) alls 11-11-15-18-16-13 sinnum í annarri hverri umferð = 216-220-256-284-272-252 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Síðan heldur útaukningin áfram þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki, en á ermum er nú einungis aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptis 4 og 8 lykkjur fleiri), endurtakið þessa útaukningu alls 18-20-18-18-24-32 sinnum á framstykki og bakstykki og 9-10-9-9-12-16 sinnum á ermum. Nú hefur verið aukið út alls 29-31-33-36-40-45 sinnum fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki 20-21-24-27-28-29 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 324-340-364-392-416-444 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 23-24-26-27-30-34 cm, mælt frá merki fyrir miðju að framan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju (= tilheyrir bakstykki), setjið næstu 64-66-72-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 98-104-110-118-128-140 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 64-66-72-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 97-103-109-117-127-139 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 212-228-244-264-288-316 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= mitt í 8-10-12-14-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 45-47-49-50-52-54 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 24-28-28-28-32-36 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 236-256-272-292-320-352 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af aðeins laust. Peysan mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 56-58-60-62-64-cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 64-66-72-78-80-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN = 72-76-84-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 merkþráð mitt í 8-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað eru um 2 lykkjur í hverjum 4-3½-2½-2-1½-1½ cm alls 7-8-10-13-14-15 sinnum = 58-60-64-66-68-70 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 34-33-31-30-29-27 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-8-8-6-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 64-68-72-72-76-78 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 42-41-39-39-38-36 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #deepriversweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.