Angela Brand skrifaði:
Sorry, I didn’t make it clear what I meant. What I am asking is that surely the method you suggest use to make the increase makes two stitches each time, not one. I understand that I increase on both edges but if I use the method you suggest, it makes two stitches each end, making 4 stitches each row.
08.02.2026 - 21:18
Angela Brand skrifaði:
Hi, I’m confused about the increases in the sleeve. The pattern says to increase by 1 stitch but surely the increase method given increases by two stitches each time? Can you clarify please, thanks
08.02.2026 - 13:40DROPS Design svaraði:
Dear Angela, it says: "increase in each side – read INCREASE TIP and increase as follows: Increase 1 stitch every 3½-3-3-2½-2-1½ cm 10-11-12-12-13-15 times in total". So you increase 1 stitch, in each side (2 stitches total) and you can check that the number of stitches before and after the increases have a difference of 2x "number of times for your size". Happy knitting!
08.02.2026 - 19:30
Kraaijenhof skrifaði:
Zit er een fout in de stekenverhouding? LET OP! De naalddikte is slechts een richtlijn. Als u te veel steken heeft op 10 cm, brei dan verder met grotere naalden. Als u te weinig steken heeft op 10 cm, brei dan verder met kleinere naalden. Moet het niet zijn: bij te weinig steken op 10 cm dikkere naalden gebruiken en teveel steken op 10cm dunnere naalden gebruiken ?
31.01.2026 - 12:35
Graziella skrifaði:
Ringrazio. Tutti i modelli spettacolari e spiegati benissimo. Complimenti
09.12.2025 - 22:42
Grainne skrifaði:
It would be really useful if the comments could be translated as there is so,much information there. Possibly the ones that you answer rather than just every comment. Great website thank you.
22.11.2025 - 16:41
Benita skrifaði:
Bij het voorpand staat voor maat M dat de middelste 17 steken op een hulpdraad gezet moet worden en vervolgens 2x 2 steken en 3x 1 steek minderen. Dan houdt ik er nog 30 over voor de schouder, dat is 5 steken teveel! Ik neem aan dat ik de middelste 27 steken op een hulpdraad moet zetten! Dan kom ik wel goed uit.
02.11.2025 - 20:24
Hélène skrifaði:
Bonjour, Les dimensions du schéma correspondent -elles aux mesures une fois le pull terminé et bloqué ou bien lors du tricot avant blocage ? Je ne comprends pas pourquoi on me dit pour la taille XL de tricoter un dos de 60cm de haut..qui va forcément s'étirer au blocage et donnera une hauteur finale >60cm après blocage. Ou bien il faut que je vise de faire moins de 60cm afin d'arriver aux 60 cm après blocage ? Merci.
31.10.2025 - 22:19DROPS Design svaraði:
Bonjour Hélène, les mesures indiquées dans le schéma s'entendent ouvrage terminé, sur la base de l'échantillon indiqué; nous ne pratiquons pas le blocage des pulls, la tension doit être la même pour l'échantillon et à la fin. Retrouvez plus d'infos sur les tailles ici. Bon tricot!
03.11.2025 - 07:27
Leroy skrifaði:
Bonjour Je voudrais changer la laine et la couleur Je ne sais pas comment faire Merci
19.09.2025 - 08:36
Anna skrifaði:
Hvor mange garnnøgler skal jeg brug hvis jeg vil stikke Midnight Meetup i str L i drops kids silk garnet med 75% Mohair, 25% Silke??
16.09.2025 - 11:48DROPS Design svaraði:
Hi Anna, to get the same tension and look, you will have to work with 3 strands together of DROPS Kid-Silk. For the sweater in size L, you will need about 300 g of this yarn. You may do it with 2 strands as well, but the sweater will be much lighter, airy. You will need 200 g in this case. Please contact the store where you buy yarn for advice as well. Happy knitting!
17.09.2025 - 09:42
Chantal skrifaði:
Bonjour, Je souhaiterais tricoter chaque manche d'une couleur différente du corps du pull, pourriez-vous m'indiquer quelle est la quantité de laine nécessaire pour chaque manche, s'il-vous-plaît ? Merci d'avance, Chantal
13.09.2025 - 16:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Chantal, nous n'avons pas cette info car le pull présenté a été tricoté avec une seule couleur et nous n'avons plus le pull, mais votre magasin pourra vous assister dans ce calcul, même par mail ou téléphone. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!
15.09.2025 - 08:04
Midnight Meetup#midnightmeetupsweater |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, með ísaumuðum ermum og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-15 |
||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um ermar): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 lykkjur í hvorri hlið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. I-CORD AFFELLING: Lyftir þessum 3 nýju lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sitji 3 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn á stykkinu, þannig að það myndast lítil snúru kantur). UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 næstu lykkjur snúnar slétt saman. Ekki snúa stykkinu. Endurtakið UMFERÐ 1 þar til 3 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 3 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af. Saumið eitt lítið spor sem bindur saman byrjun og lokin á I-cord kantinn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Framstykkið, bakstykkið og ermar er prjónað hvert fyrir sig. Stykkið er prjónað neðan frá og upp, stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og fellt er af með i-cord affellingu. BAKSTYKKI: Fitjið upp 101-111-119-129-141-157 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 5-5-5-6-6-7 cm, endið eftir eina umferð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón jafnframt sem fækkað er um 18-20-22-24-26-30 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 83-91-97-105-115-127 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm fellið af 3-5-6-7-8-11 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg = 77-81-85-91-99-105 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, fellið af miðju 27-29-29-31-31-33 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Nú eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 1 lykkju 1 sinni = 24-25-27-29-33-35 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 50-52-53-55-56-58 cm. Nú eru miðju 15-17-17-19-19-21 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Nú eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 24-25-27-29-33-35 eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 56-58-60-64-66-66 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorri tegund. Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5-5-5-6-6-7 cm. Í næstu umferð frá réttu er skipt yfir á hringprjón 5 og prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 10-10-10-12-12-12 lykkjur jafnt yfir í umferð = 46-48-50-52-54-54 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni og 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 12-13-11-13-15-15 cm, aukið út í hvorri lið - lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út 1 lykkju í hverjum 3½-3-3-2½-2-1½ cm alls 10-11-12-12-13-15 sinnum = 66-70-74-76-80-84 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 47-47-46-44-43-40 cm. Setjið 1 merki í hvora hlið á ermi – þessi merki merkja hvar umferð á botni í handvegi byrjar og merkin eru notuð þegar sauma á ermina við handveg. Prjónið síðan þar til ermin mælist 2-2-3-4-4-6 cm frá merkjum, ermin mælist ca 49-49-49-48-47-46 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermasauma upp að merki. Saumið ermi við handveg, klauf í ermi er saumuð í botninn á handvegi – sjá teikningu. Saumið hliðarsauma. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir), prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 70 til 85 lykkjur (ásamt lykkjum af þræði fyrir miðju að framan). Í lok umferðar eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur á hægri prjón frá réttu, ekki snúa stykkinu. Fellið af með I-CORD AFFELLING – lesið útskýringu að ofan. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #midnightmeetupsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.