DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Alpaca Bouclé yarn
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1122.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11770.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Nimbus Haze

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 252-33

#nimbushazesweater

DROPS Design: Mynstur ab-160
Garnflokkur C + A eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 gr litur 0100, natur
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-125-125-150 gr litur 44, tunglskin

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 7 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1122.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11770.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Fram- og bakstykki skiptist fyrir klauf í hvorri hlið og síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 72-76-80-80-88-92 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Alpaca Bouclé og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 5 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur).
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 14 cm. Síðar er kantur í hálsmáli brotinn tvöfaldur að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 7 cm.
Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 26-27-28-28-30-31 lykkjur í umferð (= ca miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Prjónið síðan með hringprjón 7 og prjónið síðan þannig, allar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.
Prjónið 1 lykkju slétt, aukið út 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, prjónið 13 lykkjur slétt (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 3 lykkjur (= laskalykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 17-19-21-21-25-27 lykkjur (= framstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 3 lykkjur (= laskalykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 13 lykkjur (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 3 lykkjur (= laskalykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 17-19-21-21-25-27 lykkjur (= bakstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 2 lykkjur.
ATH! Þær 3 lykkjur í hverri laskalínu eiga að halda áfram yfir 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt frá stroffi.
Prjónið sléttprjón hringinn jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við 3 laskalykkjur í annarri hverri umferð alls 2-3-6-6-7-7 sinnum = 88-100-128-128-144-148 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningumferð). Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
Síðan heldur útaukningin áfram þannig:
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki, en á ermum er nú einungis aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptis 4 og 8 lykkjur fleiri), endurtakið þessa útaukningu alls 18-18-16-18-18-18 sinnum á framstykki og bakstykki og 9-9-8-9-9-9 sinnum á ermum.
Á eftir síðustu útaukningu eru 196-208-224-236-252-256 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist ca 25-26-28-30-31-32 cm frá merki mitt að framan.
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Setjið fyrstu 37-39-43-45-47-47 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 61-65-69-73-79-81 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 37-39-43-45-47-47 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-10-12-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 61-65-69-73-79-81 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 134-142-154-166-182-194 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 6-6-8-10-12-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 39-41-43-44-46-48 cm frá merki fyrir miðju að framan.
Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki, skiptið stykkinu við merkiþræðina með því að bíða með lykkjur frá bakstykki og prjónið lykkjur frá framstykki fram og til baka eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
= 67-71-77-83-91-97 lykkjur. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 16-18-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir í umferð = 83-89-95-103-113-121 lykkjur, prjónið þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 2 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu), þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni.
Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm er fellt af.
Peysan mælist 47-49-51-53-55-57 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki.

ERMAR:
Setjið 37-39-43-45-47-47 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 7 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-10-12-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 43-45-51-55-59-63 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð í miðju á 6-6-8-10-12-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkþráðinn.
Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað eru um 2 lykkjur í hverjum 14-9-5½-4½-3-2½ cm alls 3-4-6-7-9-10 sinnum = 37-37-39-41-41-43 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 36-35-33-32-31-30 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 7-7-7-9-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 44-44-46-50-50-52 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af. Ermin mælist ca 42-41-39-38-37-36 cm frá skiptingunni.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 252-33

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nimbushazesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Debbie G skrifaði:

Thank you for your last detailed explanation. That helped a lot. I would've never figured it out without your help!

19.03.2025 - 00:08

country flag Debbie G skrifaði:

Hi, I'm confused. I went to my local shop and they are a confused as well. We don't understand your increase totals. Can I ask the question another way? If so --Am I correct in assuming rows 1-4 will basically repeat? Maybe can you provide more detail row, by row for 4 rows, with total stitch count at the end of each row? I don't want to frog this project because I love the sweater design! I also have left my email address if you'd rather email me.

16.03.2025 - 23:25

DROPS Design svaraði:

Dear Debbie, first round: increase 8 stitches (2 stitches for each sleeve, 2 stitches for the front piece, 2 stitches for the back piece). 2nd round: No increases. 3rd round: like 1st round. 4th round: like 2nd round. Work like this until you have worked a total of 2 to 7 (depending on the size) increase rounds. Now, you increase for the back/front as before but for the sleeve once every 4th round: First round: increase 8 stitches as before. 2nd round: no increases. 3rd round: increase 2 stitches for front piece, 2 stitches for the back piece (= 4 stitches increased). 4th round: No increases. Repeat these 4 rounds 9 times in total. Happy knitting!

16.03.2025 - 23:57

country flag DEBBIE G skrifaði:

Follow on to Rania's question. When I calculate the # stitches for the increases from 88 stitches (size SM), I end up with too many st. I'm figuring: R1: Incr F&B raglan (Total 92 st). R2: Incr 0. R3: Incr F&B raglan (96 st.). R4: Incr Sleeve raglan + F&B (104 st) and so on. 18x for F&B and 9 for Sleeves would take me 36 rows with a total of 232 st. This is way off from the pattern. Help!

13.03.2025 - 17:44

DROPS Design svaraði:

Dear Debbie, at the beg you get 17 sts for front & back piece and increase then for raglan a total of 2 sts 2 times then 2 sts 18 times= 57 sts ; for sleeves there are 13 sts + 2 sts 2 times + 2 sts 4 times = 35 sts, so that you have 57 x 2 (front and back pieces) + 35 x2 (sleeves) + 3 sts x 4 (raglan sts) = 196 sts in total. Note that you will increase 18 times 2 times on back /front pieces but at the same time only 9 times on sleeves: R1 increase 8 sts: as before back/front and sleeves, R3: increase sts: back/front only.Happy knitting!

14.03.2025 - 07:25

country flag DEBBIE G skrifaði:

Sorry, I hit SEND too fast. To add on to my question. That would mean at the end of the round, since it's 2 stitches of the raglan, I should P1 K1 the last 2 stitches, correct?

12.03.2025 - 01:51

DROPS Design svaraði:

Dear Debbie, see previous answer, the 3 raglan stitches should be all knitted, but should match the (K1, P1, K1) worked on neck before. Happy knitting!

13.03.2025 - 14:12

country flag DEBBIE G skrifaði:

I think my question was answered. To be sure: I need to increase AFTER the first stitch in the round and then BEFORE the last 2 stitches at the end of the round. Furthermore, am i to understand that for the 3 raglan stitches I should be doing a K1 P1 K1? If that's the case, it would be easier if the pattern was written that way rather than as a notation.

12.03.2025 - 01:47

DROPS Design svaraði:

Dear Debbie, that's right you will increase for sleeve after the first stitch of the round and increase at the end of back piece before the last 2 stitches. The 3 raglan stitches are knitted but they should match (K1, P1, K1) from rib on neck before. Happy knitting!

13.03.2025 - 14:09

country flag Debbie G skrifaði:

I'm on the Yoke and did the first row of increases. Next the pattern says to increase on both sides of the 3 raglan stitches. In my calculation that would = 6 stitches increased. But the pattern says 8 st increased and I can't figure out where the other 2 stitches come from. Please advise

12.03.2025 - 01:04

country flag Judith skrifaði:

In der Beschreibung zur Passe ist angegeben dass ich an 3 Stellen 3 Raglanmaschen zu stricken habe. Ist dann denn richtig? Muss nicht ein Pullover 4 Raglanlinien haben, so dass man an 4 Stellen je 3 Raglanmaschen stricken müsste. Ich bin leider noch Anfänger und halte mich daher an die Anleitung. Würde mich über eine Antwort freuen

26.11.2024 - 14:52

DROPS Design svaraði:

Liebe Judith, am Anfang der Runde stricken Sie die 1. Masche von diesen 3 Raglan-Maschen und am Ende der Reihe stricken Sie die 2 letzten von den 3 Raglanmaschen, so beginnen die Runden ca in der Mitte von den Raglanmaschen so sind es insgesamt 4 Mal 3 Raglanmaschen. Viel Spaß beim Stricken!

26.11.2024 - 16:44

country flag Antonella Serio skrifaði:

Sorry, war ein Denkfehler von mir. Die Anleitung ist richtig ! FG

03.11.2024 - 00:19

country flag Serio Antonella skrifaði:

Hallo, wenn nach den ersten 28 Maschen 1 Markierer angebracht wird, ist der Rundenbeginn bei mir an der linken hinteren Schulter und nicht wie in der Anleitung vermerkt an der rechten hinteren Schulter. Liegt bei mir ein Denkfehler vor oder muss die Anleitung korrigiert werden? Vielen lieben Dank für eine hoffentlich schnelle Antwort. Herzlichst, Antonella Serio

02.11.2024 - 18:49

country flag Rania Mohamed skrifaði:

"Increase for raglan on every other round on front piece and back piece, " does this mean every row or in 2nd row

10.10.2024 - 01:41

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Rania, when increasing on every other round you will increase as follows: *work 1 round with increases, 1 round without increases* and repeat these 2 rounds the number of times required. Happy knitting!

10.10.2024 - 09:27