Donatella Loss skrifaði:
Sono arrivata alla divisione per il corpo e le maniche, le istruzioni dicono di tagliare il filo e continuare partendo da sotto la manica. Non capisco il significato di questa operazione, non si può continuare dove si è? Grazie per una risposta
20.11.2024 - 13:58DROPS Design svaraði:
Buonasera Donatella, con la divisione si finisce a lavorare al centro dietro. Mentre dopo la divisione si comincia sotto la manica. Buon lavoro!
13.12.2024 - 23:18
Laura Stel skrifaði:
Petra, Nepal ist die gleiche Qualität wie Lima aber categorie C, leichter umzusetzen
13.10.2024 - 13:39
Petra skrifaði:
Ich würde gerne diesen Norwegerpullover Winter Swirl mit der Drops Lima in diesen Farben nachstricken. Ich weiß, dass dies dann eine andere Garngruppe ist. Von C nach B! So werde ich die Garnmenge ändern müssen. Dies ist das kleinere Problem! Aber wie ändere ich das Norwegermuster auf das neue Garn? Kann mir da irgend Jemand weiterhelfen??? :-)
12.10.2024 - 22:21DROPS Design svaraði:
Liebe Petra, hier finden Sie unsere Pullover (von oben nach unten mit Rundpasse und Garngruppe B), damit können Sie sich inspirieren um diese Anleitung umzurechnen und anzupassen. Viel Spaß beim Stricken!
14.10.2024 - 08:24
Janette Langendoen skrifaði:
Rij 14 van A1 is niet symmetrisch?
28.09.2024 - 11:46
Carol S skrifaði:
Sweet Snowflakes
10.08.2024 - 11:43
Fabiola skrifaði:
Frosty Princess
09.08.2024 - 16:52
Hanna-Ingrid skrifaði:
November Frost
09.08.2024 - 13:19
Jesse skrifaði:
Winter Morning
09.08.2024 - 00:20
Rae skrifaði:
Snow drifts
08.08.2024 - 22:13
Simona skrifaði:
Lovely winter
08.08.2024 - 16:17
Winter Swirl#winterswirlsweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, norrænu mynstri með stórum stjörnum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-27 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 90 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 4,5. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR RENDUR: Til að ná fram fallegri litaskiptingu í byrjun og lok umferðar þegar rendur er prjónaðar, er hægt að prjóna þannig: Skiptið yfir í nýjan lit og prjónið 1 umferð. Fyrsta lykkja í 2. umferð er prjónuð þannig: Lyftið fyrstu lykkju frá fyrri umferð upp á prjóninn, prjónið þessa lykkju slétt saman með fyrstu lykkju. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt í grunnlit (merkið situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 90-94-98-104-108-114 lykkjur á hringprjón 5 með litnum morgunþoka í DROPS Air. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 11-11-12-12-13-13 cm. Prjónið síðan þar til kantur í hálsmáli er brotinn inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 5-5-5½-5½-6-6 cm. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= mitt að aftan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 20-24-26-28-28-30 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 110-118-124-132-136-144 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 2-2-2-2-2-2 cm frá merki, aukið út um 24-28-26-24-28-31 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 134-146-150-156-164-175 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 4-4-4-4-4-4½ cm frá merki, aukið út um 24-28-26-24-28-31 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 158-174-176-180-192-206 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 6-6-6-6-6-7 cm frá merki, aukið út um 24-28-26-24-28-31 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 182-202-202-204-220-237 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 7-8-8-8-8-9½ cm frá merki, aukið út um 25-28-28-24-28-31 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 207-230-230-228-248-268 lykkjur. Útaukningu er nú lokið í stærð S, M og L. Aukið út í 3 stærstu stærðunum eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ XL, XXL OG XXXL: Þegar berustykkið mælist 10-10-12 cm frá merki, aukið út um 25-28-31 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 253-276-299 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 207-230-230-253-276-299 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 8-9-10-11-11-13 cm frá merki, prjónið MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, lesið LEIÐBEININGAR RENDUR og prjónið þannig: Prjónið A.1 alls 9-10-10-11-12-13 sinnum berustykkið hringinn. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út í mynstri eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Prjónið þar til berustykkið mælist ca 21-22-23-24-24-26 cm frá merki. Nú á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar – ATH: Stillið af þannig að skiptinginn sé á þeim stað í mynstri eftir að aukið hefur verið út 5 sinnum á hæðina í hverri einingu með A.1 (þ.e.a.s. það eru eftir 2 útaukningar í hverri einingu með A.1 – þessar útaukningar eru gerðar á fram- og bakstykki) = 252-280-280-308-336-364 lykkjur í umferð. Ef prjónfestan passar á hæðina kemur stykkið til með að skiptast mitt í rönd þar sem grunnliturinn er í litnum bleikur marmari. Mynstrið er prjónað til loka á fram- og bakstykki og ermum. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 39-44-44-47-53-58 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 49-53-53-61-63-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-11-11-11-11 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 77-87-87-93-105-115 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 49-53-53-61-63-67 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7-7-11-11-11-11 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 38-43-43-46-52-57 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 168-188-196-208-232-252 lykkjur. Setjið 1 merki í hvora hlið á fram- og bakstykki – merkið er set í miðju af 7-7-11-11-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum. Byrjið umferðina við annað merkið og haldið áfram hringinn með mynstur eins og áður – ATH: Mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hvorri hlið undir ermum, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er fram að lykkju með merki í og prjónið lykkjuna með merki í grunnlit. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 180-200-208-224-248-268 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón hringinn í litnum morgunþoka þar til stykkið mælist 45-47-49-49-51-53 cm frá merki mitt að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 32-36-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 212-236-244-264-292-316 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60 cm frá merki mitt að aftan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 49-53-53-61-63-67 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 7-7-11-11-11-11 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-60-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 merki í miðjulykkju undir ermi. Merkið er notað þegar fækka á lykkjum undir ermi. Nú á að prjóna mynstur JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað mitt undir ermi – lesið þess vegna MYNSTUR og ÚRTAKA að neðan áður en ermin er prjónuð áfram. MYNSTUR: Munið eftir úrtöku að neðan áður en prjónað er áfram. Byrjið umferð við merki mitt undir ermi og haldið áfram með mynstur frá berustykki, þ.e.a.s. prjónið A.1 til loka til og með umferð merktri með ör í A.1, prjónið síðan A.2 hringinn á ermi – ATH: Stjarnan er ekki samhverf á erminni, en stjarnan í A.2 á að halda áfram beint yfir stjörnu í A.1 – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir erminni, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er inn að lykkju með merki í og prjónið lykkju með merki í grunnlit. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið síðan sléttprjón með litnum morgunþoka. ÚRTAKA: Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 2-1½-1½-1-1-1 cm alls 4-5-7-10-10-11 sinnum = 48-50-50-52-54-56 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-39-38-39-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-58-58-62-64-66 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af. Ermin mælist ca 46-46-45-45-46-44 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterswirlsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.