DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 1078.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5236.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Peppermint Dream

Prjónað hálsskjól úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með axlarsæti og i-cord.

Velja stærð:
DROPS 253-26

#peppermintdreamneckwarmer

DROPS Design: Mynstur z-1046
Garnflokkur A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S/M - L/XL
Lengd frá efst á öxl: Ca 39-41 cm
Breidd: Ca 36-38 cm

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100 gr litur 9030, pistasiuís
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50 gr litur 45, mjúk mynta

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm (1 stykki) og 80 cm (2 stykki).
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: Lengd 40 cm.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund med prjóna nr 5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 1078.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5236.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR PRJÓN:
Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig:
Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum).
Þessar lykkjur eru prjónaðar saman eins og þær væru 1 venjuleg lykkja þegar kanturinn er prjónaður í hring í lokin.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá aftan á öxl, ofan frá og niður.
Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki sem prjónað er fram og til baka hvort fyrir sig. Þegar bakstykkið hefur verið prjónað, eru lykkjur látnar bíða fyrir kant ásamt því að stykkið er prjónað áfram. Þegar bakstykkið hefur verið prjónað til loka, eru þessar kantlykkjur látnar bíða á prjóninum á meðan framstykkið er prjónað á öðrum hringprjóni. Í lokin er prjónaður i-cord kantur í kringum allt stykkið.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-104 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 9-9 cm.
Setjið 1 merki í stykkið hér, berustykkið er nú mælt frá þessu merki.

BERUSTYKKI:
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið sléttprjón yfir fyrstu 18-18 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 1. merki hér.
Prjónið sléttprjón yfir næstu 30-34 lykkjur á meðan fækka er um 1-1 lykkju (= framstykki), setjið 2. merki hér.
Prjónið sléttprjón yfir næstu 18-18 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 3. merki hér.
Prjónið sléttprjón yfir síðustu 30-34 lykkjur á meðan fækkað er um 1-1 lykkju jafnt yfir (= bakstykki), setjið 4. merki hér = 94-102 lykkjur.

ÚTAUKNING FYRIR AXLASÆTI:
Prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 4 lykkjur í umferð þannig:
Aukið er út á EFTIR 1. og 3. merki og á UNDAN 2. og 4. merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Einungis er aukið út á framstykki og bakstykki og fjöldi lykkja á öxl verður sá sami.
Aukið svona út í hverri umferð alls 16-16 sinnum = 158-166 lykkjur.
Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 7-7 cm frá merki í hálsmáli.

Í næstu umferð (= síðustu umferð þar sem prjónað er í hring), setjið axlalykkjurnar á þráð og framstykkið og bakstykkið skiptist upp.
Prjónið 18-18 lykkjur sléttprjón og setjið samtímis þessar lykkjur á þráð (= axlalykkjur), prjónið sléttprjón yfir næstu 61-65 lykkjur (= framstykki), prjónið 18-18 lykkjur sléttprjón og setjið samtímis þessar lykkjur á þráð (= axlalykkjur), prjónið sléttprjón yfir næstu 61-65 lykkjur (= bakstykki).
Prjónið síðan framstykkið og bakstykkið fram og til baka hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 61-65 lykkjur.
Nú á að prjóna sléttprjón fram og til baka jafnframt því sem prjónaðar eru stuttar umferðir – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. Lykkjurnar sem verða óprjónaðar í hvorri hlið í hverri umferð, eru notaðar í lokin til að prjóna kantinn í hring á stykkinu. Látið þessar lykkjur hvíla á prjóninum, setjið e.t.v. lykkjur á hjálparprjón saman með axlalykkjum, en passið vel uppá að ef prjónað hefur verið með aðferðinni german short row þá líta lykkjurnar út eins og þær séu tvöfaldar.

Prjónið 1 umferð sléttprjón frá röngu, síðan er prjónað þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Lyftið af fyrstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði – munið eftir LEIÐBEININGAR, prjónið sléttprjón út umferðina, snúið.
UMFERÐ 2: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir fleiri en í fyrra skipti sem snúið var við í þessari hlið (þ.e.a.s. snúið við þegar komið er að lykkju sem snúið var við og hert var á í fyrri umferð) og snúið.
Endurtakið UMFERÐ 2 þannig að eftir 60-64 umferð er einungis eftir 1 lykkja (= miðjulykkjan), ásamt 30-32 lykkjum sem bíða fyrir kant í hvorri hlið = 61-65 lykkjur fyrir kant.
Látið allar lykkjur bíða á hringprjóni þar til framstykkið hefur verið prjónað til loka.

FRAMSTYKKI:
= 61-65 lykkjur.
Setjið lykkjur fyrir framstykki á hringprjón 5 og prjónið á sama hátt og bakstykki.

KANTUR:
= 158-166 lykkjur.
Nú á að prjóna kant hringinn yfir allar lykkjurnar, byrjið við útaukninguna fyrir axlarsætið á bakstykki þannig að prjónað sé fyrst yfir lykkjur frá hægri öxl, síðan meðfram framstykki, yfir vinstri öxl og í lokin meðfram bakstykki.
Notið hringprjón 5 og prjónið 1. umferð þannig:
Prjónið 18-18 lykkjur slétt (= axlalykkjur), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 61-65 lykkjur – munið eftir LEIÐBEININGAR PRJÓN, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18-18 lykkjur slétt (= axlalykkjur), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* yfir næstu 61-65 lykkjur, endið með að slá 1 sinni uppá prjóninn = 282-298 lykkjur.

Nú á að fella af með i-cord frá réttu.
Byrjið á að fitja upp 2 lykkjur í umverð í lok fyrri umferðar – ekki snúa stykkinu.
Lyftið 2 nýju lykkjunum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón þannig að þráðurinn sem prjónað er með sitji 2 lykkjum inn á vinstri prjóni (þegar prjónað er þá herðir þráðurinn sem prjónað er með á stykkinu, þannig að það myndist smá snúra / kantur).
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið 1 lykkju slétt, prjónið næstu 2 lykkjur snúnar slétt saman.
Lyftið til baka 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Ekki snúa stykkinu.
Endurtakið UMFERÐ 1 þar til 2 lykkjur eru eftir á hægri prjóni. Lyftið til baka 2 lykkjum af hægri prjóni yfir á vinstri prjón. Fellið af.
Saumið smá spor sem bindur saman byrjun og lokin á i-cord.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #peppermintdreamneckwarmer eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 253-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Laila skrifaði:

Hallo! Seit einiger Zeit finde ich keine Möglichkeit mehr, eure wunderbaren Anleitungen bei Pinterest hinzuzufügen. Gibt es diese Option nicht mehr, oder ist das kleine rote P nur gut versteckt? Ich wäre sehr glücklich, wenn Ihr mir helfen könntet. Laila

03.10.2024 - 12:43

DROPS Design svaraði:

Liebe Laila, oben neben dem Titel der Anleitung finden Sie einen gebogenen Pfeil und ein Herz. Wenn Sie auf den Pfeil klicken, können Sie Pinterest auswählen. Weiterhin viel Spaß mit unseren Anleitungen! :-)

03.10.2024 - 19:27

country flag Monica skrifaði:

Ønsker i barnestørrelse også 🥰

10.08.2024 - 12:15

country flag Alix skrifaði:

Your Perfect Bib

09.08.2024 - 22:53

country flag Heidi skrifaði:

Sehr elegant!

09.08.2024 - 11:16

country flag Brenda Bradshaw skrifaði:

Sea Bib

08.08.2024 - 21:02

country flag Fée Clochette skrifaði:

Pistachio Heart

08.08.2024 - 20:26

country flag Anja Freund skrifaði:

Passt bestimmt gut unter einen Blazer und nimmt durch die spitze Form nicht so viel Platz weg von der Jacke oder dem Blazer. Gefällt mir sehr 👍

08.08.2024 - 16:43

country flag Iren skrifaði:

V-krave

08.08.2024 - 13:04