Francine Mascart skrifaði:
Le modèle ne parle pas de creuser l encolure en rang raccourci je suppose que l on peut inclure cette encolure
14.10.2024 - 10:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mascart, effectivement, dans ce modèle, l'encolure devant et dos sont identiques, vous pouvez ajouter des rangs raccourcis si besoin pour que l'encolure dos soit plus haute que l'encolure devant; on procède de cette façon dans cette vidéo qui devrait pouvoir vous aider. Bon tricot!
16.10.2024 - 09:35
Åsa Palm skrifaði:
Hej, är mönstret gjort så det är högre i bak? Ser så ut på bilden men framgår inte obeskrivlig gen. Jag vill ha förhöjt i nacken för då sitter tröjor bättre. Hur gör man en sån förhöjning i så fall?
13.10.2024 - 13:18DROPS Design svaraði:
Hej Åsa. Nej, detta mönster har ingen förhöjning bak i nacken. Vill du ha det så får du sticka några förkortade varv på bakstycket (som t.ex. i detta mönster). Mvh DROPS Design
14.10.2024 - 10:29
Angelika Schadt skrifaði:
Liebes Team, warum muss ich bei Größe L 124 Maschen aufnehmen, und dann in der ersten Rippenreihe für die Halsblende nur 88 Maschen zu Stricken sind. Ich komme an dieser Stelle nicht weiter. Wäre schön wenn ich da eine Erklärung hätte! Mit freundlichen Grüßen Angelika Schadt
09.10.2024 - 20:31DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schadt, vergessen Sie die 9 Maschen von jedem A.1 nicht, dh so stricken Sie die 124 Maschen: * 2 M rechts, 2 Mlinks *, von *-* über insgesamt 20 M arbeiten, 2 M rechts, A.1 (9 M), * 2 M rechts, 2 M links *, von *-* über insgesamt 20 M arbeiten, 2 M rechts, A.1 (9 M), * 2 M rechts, 2 M links *, von *-* über insgesamt 20 M arbeiten, 2 M rechts, A.1 (9M), * 2 M rechts, 2 M links *, von *-* über insgesamt 20 M arbeiten, 2 M rechts, A.1 (9 M) =20+2+9+20+2+9+20+2+9++20+2+9=124 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
10.10.2024 - 09:08
Magpie skrifaði:
Armchair by the fireplace
12.08.2024 - 11:01
Hanne Lise skrifaði:
Myst havet it!
10.08.2024 - 19:03
Pam skrifaði:
Chocolate con churros
08.08.2024 - 23:21
Under the Oak#undertheoaksweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Daisy eða DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-21 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN A.2: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR A.2: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 116-116-124-132-132-140 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Daisy eða DROPS Fiesta. Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 20 lykkjur, 2 lykkjur slétt (= ermi), A.1), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 16-16-20-24-24-28 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1 (= framstykki), * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 20 lykkjur, 2 lykkjur slétt (= ermi), A.1, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur bruðgið *, prjónið frá *-* yfir næstu 16-16-20-24-24-28 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1 (= bakstykki). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið síðan með A.2 yfir lykkjur í A.1. Prjónið stroff í alls 7 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 40-40-42-44-44-46 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Haldið áfram með A.2 eins og áður og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru, jafnframt í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. AUKIÐ út þannig: UMFERÐ 1: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir hverju A.2 (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið umferð 1 og 2 alls 7-6-10-15-11-10 sinnum (= 14-12-20-30-22-20 prjónaðar umferðir) = 172-164-204-252-220-220 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni og A.2 eins og áður og aukið síðan út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir hverju A.2 (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að snúa uppslættinum eins og útskýrt er að ofan). UMFERÐ 3: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. mynstureiningu af A.2, á undan 2. mynstureiningu af A.2, á eftir 3. mynstureiningu af A.2 og á undan 4. mynstureiningu af A.2, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykki og bakstykki, ekki er aukið út yfir ermar (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið umferð 1 til 4 alls 13-16-14-13-17-20 sinnum (= 52-64-56-52-68-80 prjónaðar umferðir) = 328-356-372-408-424-460 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út 33-38-38-41-45-50 sinnum á framstykki/bakstykki og 20-22-24-28-28-30 sinnum á ermum. Prjónið síðan í sléttprjóni og A.2 eins og áður, án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 24-28-30-30-32-36 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 62-66-70-78-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 102-112-116-126-134-148 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 62-66-70-78-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 102-112-116-126-134-148 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 216-236-252-272-296-324 lykkjur. Prjónið sléttprjón og A.2 eins og áður, þar til stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm frá merki mitt að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – ATH: Prjónið A.1 yfir lykkjur í A.2) JAFNFRAMT er aukið út um 20-24-24-28-28-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – ATH! Passið uppá að stroffið gangi jafnt upp á milli A.1, aukið út 10-12-12-14-14-16 lykkjur á milli hverra A.1 á framstykki og bakstykki, ekki er aukið út yfir 6-6-10-10-14-14 lykkjur á milli hverra A.1 í hliðum = 236-260-276-300-324-356 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af. Peysan mælist 49-51-53-55-57-59 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 62-66-70-78-78-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-10-10-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6½-5-3½-2½-2-1½ cm alls 5-6-8-11-12-13 sinnum = 58-60-64-66-68-70 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-34-33-32-31-28 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-8-4-6-4-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 64-68-68-72-72-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6 cm er fellt af. Ermin mælist ca 43-40-39-38-37-34 cm frá skiptingunni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #undertheoaksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.